Vill lækka veikindahlutfall opinberra starfsmanna Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 6. janúar 2026 19:08 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra stefnir á með aðgerðum að lækka veikindahlutfall hjá opinberum starfsmönnum. Vísir Fjármálaráðherra segir hátt veikindahlutfall opinberra starfsmanna áhyggjuefni og stefnir á að lækka það með aðgerðum. Ný mannauðsáætlun hafi verið kynnt fyrir næstu þrjú ár sem á m.a. að stuðla að festu í stöðugleika og mönnun.
Hátt veikindahlutfall hefur verið áhyggjuefni hjá mörgum sveitarfélögum og opinberum stofnunum. Til að mynda var kostnaður Landspítala og Reykjavíkurborgar um sex milljarðar króna árið 2024 á hvora stofnun þegar veikindahlutfallið var um sjö og hálft prósent hjá þeim báðum. Það var svipað í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu en Seltjarnarnesbæ tókst að lækka það talsvert á síðasta ári með markvissum aðgerðum að sögn bæjarstjóra. Brýnt að lækka hlutfallið Opinberi vinnumarkaðurinn var með tvöfalt hærra veikindahlutfall en hin almenni síðast þegar Hagstofan mældi muninn árið 2020. (Grafík) Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir brýnt að lækka hlutfallið hjá hinu opinbera. „Við höfum alltaf áhyggjur af þessu hlutfalli. Í sumum tilvikum eru á þessu eðlilegar skýringar. Það er ekkert óeðlilegt að fólk verði veikt, það ganga alls konar sjúkdómar en þetta getur líka verið merki um ákveðið álag í starfi og við höfum verið að skoða aðgerðir í því að koma á móts við starfsfólk til að draga úr þessu,“ segir Daði. Stytting vinnuvikunnar gæti dregið úr veikindum Þar vísar Daði í nýja aðgerðaráætlun í mannauðsmálum fyrir næstu þrjú ár. Samkvæmt henni á m.a. koma á mælaborði um stöðu mála sem á að stuðla að festu og stöðugleika í mönnun. Þá á að gefa út leiðbeinandi viðmið um viðveru og fjarveru. Hann segir styttingu vinnuvikunnar eitt af því sem gæti dregið úr fjarvistum starfsmanna. Við höfum með innleiðingu á styttingu vinnuvikunnar verið að koma á móts við álag. En það er forgangsmál hjá okkur að bæta mannauðsstjórnun hjá okkur.. Aðspurður um hvort stjórnvöld hafi ákveðið einhver mælanleg markmið varðandi fjarvistir vegna veikinda svarar Daði: „Það er engin ákveðin prósenta en við erum með markmið um að lækka hlutfalli,“ segir hann.
Heilbrigðismál Vinnumarkaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Landspítalinn Reykjavík Heilsa Rekstur hins opinbera Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira