Heilsa

Heilsa

Allt um heilsu, hreyfingu og hollan mat

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fékk nýtt tæki­færi með nýra frá mömmu

„Ég er ungur en á sama tíma er ég búinn að upplifa ótrúlega mikið. Auðvitað hefur allt þetta haft áhrif á mann en samt aldrei þannig að mig langi að grafa mig í holu og hætta að lifa lífinu,“ segir hinn 29 ára gamli Guðmundur Elvar Orri Pálsson, oftast þekktur sem Elvar Orri. 

Lífið
Fréttamynd

For­eldrar sofa meira en margir halda

Að sofa vel eða jafnvel að sofa út er draumur margra foreldra með ung börn. Sumir foreldrar hafa meira að segja ákveðið kerfi þannig að fólk skiptist á; annað vaknar á ókristilega tímanum til að sjá um krílið svo hitt geti sofið lengur og svo framvegis.

Áskorun
Fréttamynd

Næsta kyn­slóð sólarvarna fyrir and­lit

Sólarvörn er einn mikilvægasti hluti góðrar húðumhirðu. Samt er hún oft fyrsta skrefið sem gleymist á morgnana. Af hverju sleppa svo margir sólarvörn í daglegri húðrútínu þrátt fyrir að vita að hún er nauðsynleg? Kannski vegna þess að hefðbundnar sólarvarnir virka oft þungar eða fitukenndar og geta stíflað svitaholur. Nivea kynnir nú nýja línu sem er ósýnileg, létt og andar með húðinni.

Lífið samstarf
Fréttamynd

PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir

Hópur sérfræðinga hefur ákveðið að það sem áður var kallað „polycystic ovary syndrome“ verði hér eftir kallað „polyendocrine metabolic ovarian syndrome“. Heilkennið, sem margar konur kannast við, verður þannig hér eftir PMOS í stað PCOS.

Erlent
Fréttamynd

Stuðningur sem skiptir raun­veru­lega máli

Þórunn Eva G. Pálsdóttir er tveggja barna móðir úr Hafnarfirði sem hefur tileinkað starf sitt stuðningi við langveik börn og fjölskyldur þeirra. Hún er stofnandi Mía Magic og einn helsti frumkvöðull á Íslandi í stuðningi sem slíkum, en starf hennar byggir bæði á faglegri þekkingu og persónulegri reynslu þar sem hún sjálf á tvö langveik börn.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Betri svefngæði með bambus

Góður svefn er ein af grunnstoðum vellíðunar og það sem við sofum við skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir. Ágústa Gísladóttir, annar eigenda Lín Design, segir að aukin vitund um svefngæði hafi leitt til mikillar eftirspurnar eftir bambusrúmfötum. Á undanförnum árum hefur Heimaey bambuslínan orðið ein af vinsælustu vörulínum Lín Design.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang

Vinsæla heilsuvörumerkið Bloom sem þekkt er fyrir hágæða og bragðgóð fæðubótarefni, er nú komið til landsins beint frá Bandaríkjunum. Merkið á sér fjölda aðdáenda hér á landi, meðal annars skemmtikraftinn og fjölmiðlakonuna Evu Ruza Miljevic sem kom meltingunni og brennslunni hjá sér í gang með Bloom.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Labbaði 57 kíló­metra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“

Halldór Áskell Stefánsson gerði sér lítið fyrir og labbaði heim úr vinnunni í gær. Það væri líklega ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Halldór vinnur í Reykjavík en býr á Selfossi. Ferðalagið tók rúmar þrettán klukkustundir, reyndist mikil áskorun og á tímabili þurfti hann að minna sig á að setja annan fótinn fram fyrir hinn.

Innlent
Fréttamynd

Jenner segist hafa veikst af Ozempic

Athafnakonan Kris Jenner segist hafa orðið veik af notkun þyngdarstjórnunarlyfsins Ozempic. Hún hafi í kjölfarið farið að sprauta sig með annars konar peptíðum samhliða því að neyta lýsis og ómega-3-fitusýra.

Lífið
Fréttamynd

„Enginn nema ég þekkir þessa Ragn­hildi“

„Því gleði er ekkert feik,“ segir Ragnhildur Gísladóttir tónlistarkona. Sem mælir með því að við einfaldlega klæðum okkur í gleðina. Svona eins og við séum að klæða okkur í buxur. Eða einhverja aðra flík.

Áskorun
Fréttamynd

„Mig langaði bara að deyja alla daga“

Tónlistarkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska1867, segist hafa byrjað að sýna fíknihegðun tólf ára gömul og byrjað að drekka sextán ára. Grunnurinn í fíkninni hafi verið sjálfshatur og hún notaði nammi, áfengi og sterkari efni sem snuð.

Lífið
Fréttamynd

Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax

Gunnar Þór Geirsson formaður Félags íslenskra heimilislækna segir að notkun ólöglegra peptíða geti haft óafturkræf áhrif á heilsu og hvetur þau sem nota slíkt til þess að hætta notkun þeirra hið fyrsta. Helst sé ungt fólk að spyrja lækna út í notkun slíkra efna en Gunnar segir þau sem taki ólöglega peptíða taka mikla áhættu.

Innlent
Fréttamynd

Ástin sem hjálpar mittismálinu

Nú þegar þyngdarstjórnunarlyf og ermiaðgerðir eru það nýjasta nýtt, dregur hratt úr vinsældum almennra frétta eða viðtala um þyngdartap og lífsstílsbreytingar fólks.

Áskorun
Fréttamynd

Þetta hefur gefið mér nýtt líf

Stella Björk Halldórsdóttir starfar við eigið hreingerningafyrirtæki sem hún stofnaði eftir sextugt, þegar hún upplifði að erfitt væri fyrir konu á hennar aldri að fá vinnu á almennum vinnumarkaði. Hún hefur glímt við verki frá barnsaldri og með árunum versnaði ástandið svo mikið að hún átti orðið erfitt með að ganga.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Andar sig reyk­laus í gegnum kosninga­baráttuna

„Það eru komnir átta dagar og ég finn fyrir of­boðs­legu frelsi og er að springa úr monti,“ segir Birna Gunn­laugs­dóttir, menntunar­fræðingur og fram­bjóðandi Sósíalista, sem eftir tæp­lega hálfa öld hefði sjálf­sagt getað valið betri tíma til að hætta að reykja en ætlar að hug­leiða og anda sig í gegnum kosninga­baráttuna.

Lífið
Fréttamynd

Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum

Sölustaðir nikótínpúða hafa margfaldast á aðeins örfáum árum og eru nú ríflega þrjú hundruð. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun berast reglulega tilkynningar um að börnum séu seldir nikótínpúðar. 

Innlent