Reynir naut sín eftir langt hlé vegna hjartavandamála Sindri Sverrisson skrifar 25. nóvember 2025 20:28 Reynir Þór Stefánsson er byrjaður að láta til sín taka með Melsungen, eftir að hafa þurft að bíða þolinmóður alla leiktíðina vegna hjartavandamála. vísir/Anton Atvinnumannsferill Reynis Þórs Stefánssonar er loks formlega hafinn eftir að þessi efnilegi handboltamaður lék sinn fyrsta leik fyrir Melsungen í kvöld og lét til sín taka í sigri í Evrópudeildinni.
Eftir að hafa verið lykilmaður í tvöföldu meistaraliði Fram á síðustu leiktíð fór Reynir til Melsungen, eins af betri liðum Þýskalands, í sumar. Fljótlega kom hins vegar í ljós að hann væri með gollurhússbólgu og var honum þar með bannað að æfa og keppa. Reynir sagði hins vegar í viðtali við Sýn í lok október að bjartari tímar væru fram undan og nú er hann kominn á ferðina. Reynir skoraði fimm mörk í kvöld í 35-34 sigri á sænska liðinu Karlskrona, og var á meðal markahæstu manna Melsungen. Melsungen hafði þegar tryggt sig áfram upp úr sínum riðli og gat því leyft sér að hvíla leikmenn á borð við Arnar Frey Arnarsson sem tók ekki þátt í leiknum. Ólafur Guðmundsson og Arnór Viðarsson voru ekki heldur með Karlskrona sem er án stiga á botni E-riðils þegar ein umferð er eftir. Í sama riðli tapaði Benfica á útivelli gegn FTC, 33-31, þar sem Stiven Valencia skoraði þrjú marka Benfica. Melsungen er efst með 10 stig, Benfica er í 2. sæti með 6 stig og einnig á leið áfram, og FTC í 3. sæti með 4 stig. Kristján Örn Kristjánsson skoraði eitt marka SAH sem tapaði á heimavelli gegn Granollers, 28-29, en endar í efsta sæti C-riðils engu að síður.
Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Sjá meira