Alexandra lagði upp og María fór á kostum í Íslendingaslag Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. nóvember 2025 20:04 Alexandra og María komu báðar mikið við sögu í Íslendingaslagnum í Svíþjóð. Íslendingaliðin Linköping og Kristianstad mættust í 25. umferð sænsku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta. Alexandra Jóhannsdóttir lagði upp mark en María Catharina Ólafsdóttir Gros gerði gott betur.
Alexandra var á miðjunni hjá Kristianstad með Elísu Lönu Sigurjónsdóttur á vinstri vængnum. Hinum megin var svo María Catharina ein af tveimur framherjum Linköping. Alexandra lagði opnunarmark leiksins upp fyrir Mathilde Janzen og Alice Nilsson tvöfaldaði forystuna fyrir Kristianstad skömmu síðar. María minnkaði hins vegar muninn og staðan í hálfleik var 2-1. Linköping náði svo að jafna leikinn 2-2 þegar Lisa Björk setti boltann í netið eftir stoðsendingu Maríu. Alexandra og Elísa voru svo teknar af velli skömmu síðar þegar Kristianstad reyndi að hrista upp í sóknarleiknum og sækja sigurinn sem þær höfðu misst úr höndum sér. Leikurinn varð spennandi á lokamínútunum en 2-2 jafntefli varð niðurstaðan. Stigið er mun dýrmætara fyrir Linköping, sem lenti undir í leiknum og situr í fallsæti. Leikmenn Kristianstad, sem sitja í 6. sæti deildarinnar, munu hins vegar eflaust ganga ósáttir með aðeins eitt stig úr þessum leik, en ekkert alltof ósáttir því liðið hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir þennan.
Sænski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Sjá meira