Gera hlé á veitingu verðtryggðra íbúðalána Eiður Þór Árnason skrifar 20. október 2025 15:12 Arion banki bíður nú niðurstöðu Hæstaréttar í máli gegn bankanum sem varðar verðtryggt íbúðalán. Á meðan ríkir óvissa um lögmæti skilmála þeirra. Vísir/vilhelm Arion banki hefur gert hlé á veitingu verðtryggðra íbúðalána í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka þar sem skilmálar óverðtryggðs láns voru að hluta dæmdir ólögmætir.
Að sögn Arion banka eru skilmálar íbúðalána bankans með breytilega vexti ólíkir þeim sem voru dæmdir ólögmætir í máli Íslandsbanka. Óháð því muni dómstólinn síðar taka fyrir mál sem snúi að láni Arion banka með breytilegum verðtryggðum vöxtum. Landsréttur hafi dæmt bankanum í vil í febrúar en óvissa ríki um lögmæti vaxtabreytingarskilmála verðtryggðra lána á meðan beðið er niðurstöðu Hæstaréttar í málinu gegn Arion. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en í ljósi aðstæðna hafa stjórnendur hans ákveðið að gera hlé á veitingu verðtryggðra lána, bæði með föstum og breytilegum vöxtum. Til skoðunar sé hvort hægt verði að bjóða upp á bráðabirgðalausn þar til óvissu um lögmæti skilmálanna hafi verið eytt. Arion banki bendir á að óverðtryggð lán verði áfram í boði. Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka.Arion banki Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, segir í samtali við fréttastofu að unnið sé að því að finna lausn í málinu og það verði að koma í ljós hvenær það takist því staðan sé nokkuð snúin. „Við hvetjum viðskiptavini til að hafa samband við okkur til að kanna með þá kosti sem eru í boði.“ Erfitt að meta nákvæm áhrif dómsins Arion banki gaf út þann 15. október að skilmálar íbúðalána bankans með ákvæðum um breytilega vexti væru frábrugðnir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Íslandsbanka. Því væri erfitt að meta nákvæm áhrif af dómnum á lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum. Að því gefnu að sambærileg niðurstaða fengist í áðurnefndu ágreiningsmáli um lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum væri það bráðabirgðamat bankans að fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu yrðu óveruleg. Ekki fyrsti bankinn sem gerir hlé á lánveitingum eftir dóminn Landsbankinn tilkynnti á miðvikudag að hlé yrði gert á vinnslu lánsumsókna fram yfir helgi á meðan bankinn greindi áhrif áðurnefnds dóms Hæstaréttar. Móttaka nýrra umsókna um íbúðalán yrði sett á bið en unnið með viðskiptavinum að afgreiðslu þeirra lánsumsókna sem þegar væru í vinnslu hjá bankanum. Á vef Landsbankans kemur nú fram að enn sé unnið að því að meta áhrif dóms Hæstaréttar og til standi að kynna breytingar á lánaframboði bankans á næstu dögum. Þá hefur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) einnig gert hlé á úrvinnslu íbúðalána með breytilegum vöxtum og afgreiðir nú eingöngu umsóknir um lán með föstum vöxtum út lánstímann. LSR hyggst afgreiða allar lánsumsóknir sem voru í vinnslu hjá sjóðnum fyrir tilkynninguna á föstudag. Skilmálar Íslandsbanka dæmdir ólögmætir Málið varðar dóm Hæstaréttar sem féllst í síðustu viku á kröfur neytenda að hluta í Vaxtamálinu svokallaða. Dómsmálið varðaði skilmála í skuldabréfi sem fól í sér heimild Íslandsbanka til að hækka vexti á óverðtryggðu láni. Allir sjö dómarar Hæstaréttar voru sammála um að skilmálar í lánasamningi Íslandsbanka um breytilega vexti hafi verið ólögmætir. Í málinu kröfðust lánþegar ógildingar á skilmálum um breytilega vexti óverðtryggðs húsnæðisláns. Samkvæmt þeim skyldu breytingar á vöxtum „meðal annars taka mið af breytingum á fjármögnunarkostnaði (lánskjörum) bankans, rekstrarkostnaði, opinberum álögum og/eða öðrum ófyrirséðum kostnaði, stýrivöxtum Seðlabanka Íslands, breytingum á vísitölu neysluverðs o.s.frv.“ Hæstiréttur taldi að Íslandsbanka hafi verið heimilt að miða vaxtakjör við stýrivexti Seðlabankans en ekki vísitölu neysluverðs þar sem óljóst væri hvert vægi vísitölunnar væri þegar kom að vaxtaákvörðunum Íslandsbanka. Jafnframt taldi Hæstiréttur að aðrir þættir skilmálans uppfylltu ekki skilyrði laga enda vísuðu þeir til þátta sem neytandi gæti ekki sannreynt og veittu Íslandsbanka þannig opna og ófyrirsjáanlega heimild til vaxtabreytinga. Skilmálinn raskaði því til muna jafnvægi milli réttinda og skyldna aðila samningsins neytendunum í óhag og teldist ósanngjarn í skilningi samningalaga. Þrátt fyrir þetta var Íslandsbanki sýknaður af fjárkröfu lánþeganna með vísan til þess að vextir á láni þeirra hafi hækkað minna en stýrivextir Seðlabankans á því tímabili sem ágreiningur málsins tók til. Hæstiréttur mun síðar taka fyrir annað mál gegn Arion banka sem snýr að verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Arion banki Dómsmál Neytendur Fjármálafyrirtæki Íslandsbanki Vaxtamálið Lánamál Tengdar fréttir Skilmálar Arion frábrugðnir en áhrifin væru óveruleg Arion banki bendir á að skilmálar íbúðalána bankans með ákvæðum um breytilega vexti séu frábrugðnir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Íslandsbanka og því sé erfitt að meta nákvæm áhrif af dómnum á lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum. Að því gefnu að sambærileg niðurstaða fengist í ágreiningsmáli um lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum sé það bráðabirgðamat bankans að fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu yrðu óveruleg. 15. október 2025 11:18 Vill laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ Bankastjóri Arion banka segir verðtryggingu hafa mikil áhrif á vaxtastigið hér á landi. Tímabært sé að ræða með opnum hug hvort rétt sé að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku hagkerfi og laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ sem farið hafi af stað árið 1979. Það myndi kalla á breytingar á uppbyggingu réttindakerfis lífeyrissjóðanna. 7. október 2025 14:06 Skilmálarnir umdeildu ógiltir Hæstiréttur hefur fallist á kröfur neytenda að hluta í Vaxtamálinu svokallaða. Málið varðaði tugmilljarða hagsmuni neytenda annars vegar og stóru viðskiptabankanna þriggja hins vegar. 14. október 2025 13:36 Mest lesið „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits Sjá meira
Skilmálar Arion frábrugðnir en áhrifin væru óveruleg Arion banki bendir á að skilmálar íbúðalána bankans með ákvæðum um breytilega vexti séu frábrugðnir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Íslandsbanka og því sé erfitt að meta nákvæm áhrif af dómnum á lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum. Að því gefnu að sambærileg niðurstaða fengist í ágreiningsmáli um lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum sé það bráðabirgðamat bankans að fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu yrðu óveruleg. 15. október 2025 11:18
Vill laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ Bankastjóri Arion banka segir verðtryggingu hafa mikil áhrif á vaxtastigið hér á landi. Tímabært sé að ræða með opnum hug hvort rétt sé að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku hagkerfi og laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ sem farið hafi af stað árið 1979. Það myndi kalla á breytingar á uppbyggingu réttindakerfis lífeyrissjóðanna. 7. október 2025 14:06
Skilmálarnir umdeildu ógiltir Hæstiréttur hefur fallist á kröfur neytenda að hluta í Vaxtamálinu svokallaða. Málið varðaði tugmilljarða hagsmuni neytenda annars vegar og stóru viðskiptabankanna þriggja hins vegar. 14. október 2025 13:36