Framúrskarandi fyrirtæki

Frá fjósinu í Hörpu – fjöl­skyldu­bú hlýtur viður­kenningu

Starri Freyr Jónsson skrifar
Kaldárbakkabúið er fjölskyldubú þar sem stunduð er bæði mjólkur- og nautakjötsframleiðsla. Fyrirtækið er í ár í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki.
Kaldárbakkabúið er fjölskyldubú þar sem stunduð er bæði mjólkur- og nautakjötsframleiðsla. Fyrirtækið er í ár í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki.

Kaldárbakkabúið er í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem verður kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu miðvikudaginn 28. október. Með listanum er vakin athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í rekstri og uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um fjárhagslegan styrk og stöðugleika.

Karen Björg Gestsdóttir, framkvæmdastjóri Kaldárbakkabúsins, segir það ánægjulegan áfanga að komast í þennan hóp, þótt það hafi aldrei verið sérstakt markmið í rekstrinum.

Karen Björg Gestsdóttir er framkvæmdastjóri Kaldárbakkabúsins.

„Við erum fyrst og fremst stolt af því að ná inn á listann. Fyrirtækið byggir á gömlum grunni en rekstrarformið er tiltölulega nýtt. Það kom okkur því skemmtilega á óvart að komast á listann núna,“ segir Karen Björg.

Hún segir að þótt viðurkenningin hafi ekki verið sérstakt markmið hafi eigendur búsins lagt áherslu á hagkvæman rekstur og að lækka skuldir. „Við höfum háleit markmið um hagkvæman búrekstur og að lækka skuldir hratt og örugglega.“

Mjólkur- og kjötframleiðsla á þremur jörðum

Kaldárbakkabúið er fjölskyldubú þar sem stunduð er bæði mjólkur- og nautakjötsframleiðsla. Búið er staðsett í Borgarbyggð, um 38 kílómetra frá Borgarnesi, á leiðinni út á Snæfellsnes. Starfsemin fer fram á þremur jörðum og er lögð áhersla á að nýta aðstöðu og framleiðslugetu búsins sem best.

Kaldárbakkabúið er Framúrskarandi fyrirtæki í ár og glæsilegur fulltrúi raunhagkerfisins.

„Mjólkurkýrnar ganga um í lausagöngufjósi og eru mjólkaðar með einum DeLaval-mjaltaþjóni. Allir nautkálfar sem fæðast á búinu eru aldir upp í sláturstærð og þar að auki kaupum við nautkálfa frá bæjum í kring þegar rými er til þess,“ útskýrir Karen Björg.

Fram undan eru áframhaldandi umbætur á aðstöðu og framleiðslu. Karen Björg segir verkefnin næg, enda krefjist búrekstur stöðugrar viðveru og umönnunar allt árið. „Það er mjög sjaldan rólegt hjá þeim sem standa í búrekstri. Það þarf að mjólka kýr og fóðra gripi allt árið um kring. Við stefnum þó alltaf að því að bæta aðstöðu fyrir menn og dýr, sem er verkefni sem aldrei klárast.“

Jafnframt sé stefnt að því að ná enn betri árangri í bæði mjólkur- og kjötframleiðslunni.

Karen Björg staðfestir að fulltrúar Kaldárbakkabúsins ætli að mæta til hátíðarinnar í Hörpu. „Já, svo sannarlega,“ segir hún að lokum.


Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×