Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Rakel Sveinsdóttir skrifar 24. október 2026 10:02 Björn Ingi Pálsson, sölu- og rekstrarstjóri Hentar rekstrarleigu Öskju, segir ótrúlega gaman að skella sér út fyrir þægindarrammann eins og hann gerði í haust þegar hann skellti sér í popkór Íslands – Vocal Project. Gamli draumurinn var samt So You Think You Can Dance í Hollywood. Vísir/Anton Brink Háleitustu æskudraumar Björns Inga Pálssonar, sölu- og rekstrarstjóra Hentar rekstrarleigu Öskju, voru engir smá. Því hann stefndi á heimsfrægð í dansi, hvorki meira né minna. Nýjasta nýtt hjá Birni er að syngja í pop-kór.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Mér finnst alveg ótrúlega gott að liggja aðeins uppi í rúmi áður en ég fer á fætur. Það er þó ekki alltaf í boði, enda er fimm ára dóttir mín oft búin að ákveða að nú sé kominn tími til að hefja daginn. Konan mín er algjör morgunhani og yfirleitt komin á fætur hálftíma á undan mér. Ég skríð svo fram úr einhvern tímann á milli sjö, fimmtán og sjö, fjörutíu og fimm, allt eftir því hvenær heimilisfólkið ákveður að ég hafi sofið nóg.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég byrja yfirleitt á því að renna aðeins yfir daginn í huganum áður en ég fer fram úr. En það fyrsta sem ég geri í raun er að græja morgunmat fyrir krakkana. Við reynum að setjast saman og spjalla aðeins um hvað dagurinn ber í skauti sér.“ Hver var háleitasti æskudraumurinn þinn? Ég ætlaði mér ekkert minna en að flytja til Bandaríkjanna og verða frægur dansari í So You Think You Can Dance. Þetta var í fullri alvöru planið alveg fram undir tvítugt. Ég hafði æft samkvæmisdansa frá þriggja ára aldri, orðið margfaldur Íslandsmeistari og keppt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótum, þannig að ég taldi mig nú eiga fullt erindi í þáttinn! Hollywood hefur reyndar ekki enn hringt, en ég er alveg opinn fyrir samtalinu!“ Björn Ingi segir sína hugleiðslu felast í að fara út og bóna bílinn. Að fara yfir verkefni dagsins finnst honum þægilegast yfir morgun kaffibollanum. Dagskráin getur þó byrjað að riðlast áður en sá bolli er búinn.Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Í einkalífinu er stærsta verkefnið líklega að finna þetta margumtalaða jafnvægi milli vinnu, fjölskyldu og þess að eiga smá tíma fyrir sjálfan sig. Við Sólveig konan mín eigum þrjú börn sem eru öll í íþróttum og stundum líður manni eins og maður sé meira í skutli en heima hjá sér. Ég kláraði tvö hundruð tíma jógakennaranám fyrir ekki svo löngu og reyni að vera duglegur að mæta á dýnuna. Svo ákvað ég í haust að prófa eitthvað alveg nýtt og skellti mér í popkór Íslands – Vocal Project. Það er ótrúlega gaman að fara aðeins út fyrir þægindarammann og gera eitthvað allt annað en maður er vanur. Svo á ég líka mitt eigið litla „me-time“ sem felst í því að fara út og þrífa bílinn. Þá set ég góða tónlist eða skemmtilegt hlaðvarp í eyrun og dunda mér í rólegheitunum. Ég elska að bóna bílinn, en það allra besta er að strjúka yfir silkimjúkt lakkið á nýbónuðum bílnum og finna þessa dásamlegu bónlykt. Þetta er eiginlega mín útgáfa af hugleiðslu! Í vinnunni er svo nóg að gera við að koma nýjum rafmagnsbílum í rekstrarleigu fyrir mánaðamótin. Breytingar á styrkjum Orkusjóðs komu með skömmum fyrirvara og hafa kallað á talsverðar breytingar á verðlistum og tilboðum. Það er því engin hætta á að manni leiðist þar heldur.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég byrja yfirleitt daginn á góðum kaffibolla, sest niður og fer yfir tölvupóstana og það sem er fram undan næstu fimm vinnudaga. Mér finnst gott að hafa yfirsýn og vita hvað þarf að klárast svo allt gangi smurt fyrir sig. Svo tekur raunveruleikinn auðvitað við og breytir planinu reglulega áður en kaffibollinn er búinn, yfirleitt næ ég nú ekki einu sinni að klára bollann.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Það er svolítið misjafnt, en ég reyni yfirleitt að vera kominn upp í rúm um tíu þrjátíu. Hvort ég fari svo strax að sofa er önnur saga.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Í fimmtán ár hefur Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, stefnt að því að fara í ræktina á morgnana. En snúsar frekar. Aðra hverja viku upplifir hún sig eins og vel undirmannaða í Home Alone-kvikmynd. 17. október 2026 10:02 Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, telur líklegt að hann sé í skemmtilegasta starfi í heimi. Sem þó er ekki hættulaust eins og góð saga frá Japan lýsir nokkuð vel. 10. október 2026 10:00 Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01 Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02 „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01 Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Sjá meira
Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Í fimmtán ár hefur Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, stefnt að því að fara í ræktina á morgnana. En snúsar frekar. Aðra hverja viku upplifir hún sig eins og vel undirmannaða í Home Alone-kvikmynd. 17. október 2026 10:02
Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, telur líklegt að hann sé í skemmtilegasta starfi í heimi. Sem þó er ekki hættulaust eins og góð saga frá Japan lýsir nokkuð vel. 10. október 2026 10:00
Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01
Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02
„Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01