Neytendur

Eftir­lits­stofnanir vara við sýndareignum

Árni Sæberg skrifar
Bitcoin er þekktasta sýndareignin.
Bitcoin er þekktasta sýndareignin. EPA/SASCHA STEINBACH

Þrjár evrópskar stofnanir sem hafa eftirlit með fjármálafyrirtækjum hafa gefið út viðvörun til neytenda um að sýndareignir geti verið áhættusamar og að vernd, ef einhver er, geti verið takmörkuð eftir því í hvaða sýndareignum þeir fjárfesta.

Í tilkynningu þess efnis á vef Seðlabanka Íslands segir að um ESA-stofnanirnar þrjár, EBA, EIOPA og ESMA, sé að ræða. EBA er Evrópska bankaeftirlitsstofnunin, EIOPA er Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin og ESMA er Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin.

Viðvörun stofnananna fylgi upplýsingablað þar sem útskýrt er hvað ný reglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, MiCA, þýði fyrir neytendur. ESA-stofnanirnar mæli með ákveðnum skrefum fyrir neytendur svo þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir áður en þeir fjárfesta í sýndareignum, svo sem að kanna hvort veitandinn hafi starfsleyfi.

Þar segir meðal annars að sýndareign sé stafræn framsetning á virði eða réttindum sem hægt er að flytja og geyma rafrænt, með því að nota dreifða færsluskrá eða aðra svipaða tækni. Vel þekkt dæmi um sýndareignir séu BTC (Bitcoin) og ETH (Ethereum), en sýndareignamarkaðurinn nái yfir breitt svið af öðrum eignum eins og svokallaðar ‘stöðugleikamyntir ’, ‘meme myntir’ og einkvæma tóka (NFTs).


Tengdar fréttir

Heima­völlur Aftur­eldingar kenndur við raf­mynta­fyrir­tæki

Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti að heimavöllur handboltaliðs Aftureldingar yrði merktur með nafninu Myntkaupshöllin næstu þrjú árin. Sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs bæjarins taldi samstarfið styrkja ímynd handknattleiksdeildarinnar.

Yrði fljótt kvíðinn með al­eiguna í Bitcoin

Verðbréfagreinandi segir mikla áhætta fólgna í því að fjárfesta í rafmyntum. Sveiflur á virðinu séu slíkar að það geti verið fljótt að taka á sálina, séu háar fjárhæðir í spilinu. Fasteignir séu þó ekki endilega skynsamlegasta fjárfestingin.

„Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“

Kristján Ingi Mikaelsson, annar eigenda MGMT Ventures og einn af stofnendum Visku, segist þekkja fleiri dæmi þess að menn hafi selt ofan af sér til að fjárfesta í Bitcoin. Fólk verði hins vegar að passa sig þegar það sé að taka stórar ákvarðanir.

Alveg sama þótt hann tapi mörgum milljónum

Íslenskur karlmaður sem nýlega seldi íbúð sína og setti allan peninginn í rafmynt segist hafa fengið vitrun um að hann ætti að læra á peninga og verða ríkun. Gangi planið ekki eftir þá læri hann dýrmæta lexíu og haldi áfram. Hann hafi engu að tapa.

Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn

Bergþór Másson, athafnamaður, hlaðvarpsstjórnandi, lífskúnster og umboðsmaður hefur selt íbúð sína og tekið ákvörðun um að leigja í staðinn. Hann telur að peningum sínum sé betur borgið í öðrum fjárfestingarkostum en fasteignum, og hefur hann meðal annars verið ötull talsmaður rafmynta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×