Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Árni Sæberg skrifar 1. júlí 2025 12:30 Dómurinn féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar vegna barnaníðsefnis sem hann hafði í fórum sínum. Upp komst um barnaníðsefnið þegar maðurinn mætti sjálfur á lögreglustöð og kvaðst hafa verið „laminn í stöppu“, meðal annars með hamri í höfuðið.
Í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra, sem kveðinn var upp 2. júní, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa sunnudag í desember árið 2023 verið með í vörslum og dreift kynferðislegu myndefni af börnum og myndefni þar sem verið var að misnota börn. Efnið hafi verið eftirfarandi: 18 myndbönd af stúlkum á táningsaldri að stunda sjálfsfróun eða sýna nekt, 20 kyrrmyndir sem sýna naktar stúlkur á barnsaldri og 10 myndir sem sýna stúlkur á barnsaldri og táningsaldri vera að veita munnmök, handleika getnaðarlimi eða fingri er stungið í leggön Tilkynnti líkamsárás Málavöxtum er lýst á þann veg að maðurinn hefði aðfaranótt sunnudags leitað til lögreglu vegna líkamsárásar sem hann hefði orðið fyrir. Í samantekt lögreglu um framburð hans segi að réttarstöðu hans hefði verið breytt um miðbik skýrslutöku úr vitni í sakborning vegna upplýsinga sem þar hefðu komið fram. „Málið virðist tengjast árás gegn honum vegna meintrar vörslu og dreifingar á barnaníðsefni og viðurkenndi X að hafa slíkt efni á farsíma sínum auk dreifingar.“ Morguninn eftir hafi maðurinn veitt lögreglu heimild til að leita í búð hans, geymslu í öðru húsnæði og bifreið í hans umráðum. Þá virðist hann hafa veitt lögreglu heimild til að skoða síma hans, flakka, leikjatölvu og ljósmyndavél, þótt engin gögn liggi fyrir um það. Gat ekki skýrt barnaníðsefnið Í dóminum er haft eftir manninum að brotist hefði verið inn til hans og hann „laminn í stöppu“. Hann hefði verið spurður hvort hann þekkti nafngreinda manneskju, hann sagt nei og verið laminn, meðal annars með hamri í höfuð. Hann hefði ekki jafnað sig að fullu eftir árásina og endurupplifði hana við vissar aðstæður. Hann hafi ekki kannast við að árásin hefði tengst vörslum barnaníðsefnis. Þá hafi hann sagst ekki geta skýrt myndefnið sem fannst í síma hans en ráma í að einhver hefði einhvern tímann „airdroppað“ einhverju til hans í miðbæ Reykjavíkur, það væri þó svo langt síðan að hann myndi þetta illa og myndi ekki hvenær það var. „Airdrop“ er tækni sem gerir notendum vara Apple að senda myndefni og fleira sín á milli. Verður að bera ábyrgð á barnaníðsefninu Í niðurstöðukafla dómsins segir að hver sá sem framleiðir, flytur inn, aflar sér eða öðrum, dreifir eða hefur í vörslum sínum myndefni sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni eða sýnir barn á kynferðislegan hátt sæta sektum eða fangelsi allt að sex árum. Ekki sé um það deilt að það myndefni sem lýst er í ákæru hafi verið í síma mannsins, hann hafi upplýst lögreglu sjálfur um það þegar hann tilkynnti um líkamsárás sem hann varð fyrir. „Eins og áður greinir vissi ákærði að umrætt myndefni var í síma hans. Að áliti dómsins verður ákærði að bera á því ábyrgð að hafa efnið áfram í sínum vörslum eftir að honum varðkunnugt um það. Verður ákærði því sakfelldur fyrir að hafa haft það myndefni sem er lýst í ákæru í sínum vörslum.“ Þá segir að maðurinn hafi verið ungur að aldri þegar hann gerðist sekur um brot sín, hann hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, óljóst væri hvernig efnið komst í síma hans og vafi hafi leikið á því hversu einbeittur ásetningur hans hafi verið. Maðurinn var því dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar refsingar og til greiðslu 567 þúsund króna í sakarkostnað, þar með talið tvo þriðju hluta málsvarnarlauna verjanda hans.
Ofbeldi gegn börnum Akureyri Dómsmál Mest lesið „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Þetta er innrás“ Innlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Segist vilja komast til himna Erlent Fleiri fréttir Hamraborgarræningi grunaður um hraðbankastuld Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Tilkynnt um par að slást Norskir kafarar og dularfullur hraðbankaþjófnaður Líkið ekki innan um aðra sjúklinga Sjá meira