Íslenski boltinn

Öll mörkin í Bestu: Stjarnan tætti KR í sig og ÍA valtaði yfir Blika

Sindri Sverrisson skrifar
Örvar Eggertsson skoraði fjórða mark Stjörnunnar gegn KR í gærkvöld.
Örvar Eggertsson skoraði fjórða mark Stjörnunnar gegn KR í gærkvöld. Stöð 2 Sport

Víkingar eru með fjögurra stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta með 20 stig eftir sigur sinn gegn Vestra í gær, þegar níunda umferðin var öll leikin. Vestri og Breiðablik koma í næstum sætum og Valur er í 4. sæti með 15 stig eftir að hafa orðið fyrsta liðið til að fagna sigri í Mosfellsbæ í sumar.

Í lokaleik gærdagsins komst Stjarnan í 3-0 á fyrstu ellefu mínútum leiksins, með mörkum Emils Atlasonar, Alex Þórs Haukssonar og Benedikts Warén. Aron Sigurðarson minnkaði muninn rétt fyrir hálfleik en Örvar Eggertsson komst svo einn gegn markverði og jók muninn í 4-1 snemma í seinni hálfleik. Hjalti Sigurðsson klóraði í bakkann fyrir KR í uppbótartíma

Í toppslagnum á Ísafirði kom eina markið í fyrri hálfleik, úr vítaspyrnu Viktors Örlygs Andrasonar, sem Tarik Ibrahimagic krækti í gegn sínum gömlu samherjum.

Valur fékk einnig vítaspyrnu, í Mosfellsbæ, sem Patrick Pedersen skoraði úr og Aron Jóhannsson bætti við seinna markinu fyrir hálfleik. Þetta var fyrsta tap nýliðanna í Aftureldingu á heimavelli í sumar.

Í Úlfarsárdal fagnaði KA afar sætum sigri gegn Fram, 2-1, þar sem Færeyingurinn Jóan Símun Edmundsson reyndist hetjan en hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Vuk Oskar Dimitrijevic hafði komið Fram yfir en Ásgeir Sigurgeirsson jafnað rétt fyrir hálfleik.

ÍBV vann dísætan sigur á FH á grasinu á Þórsvelli í Eyjum. Úlfur Ágúst Björnsson skoraði mark FH af löngu færi, eftir mistök markvarðarins Marcels Zayptowski. Hermann Þór Ragnarsson jafnaði metin með langþráðu marki fyrir ÍBV og í uppbótartíma náði Sverrir Páll Hjaltested að skora sigurmark Eyjamanna.

Skagamenn gerðu sér svo lítið fyrir og skelltu Breiðabliki á Kópavogsvelli, 4-1. Þeir komust í 3-0 með mörkum á ellefu mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik, frá Erik Tobias Sandberg, Ómari Birni Stefánssyni og Viktori Jónssyni, áður en Tobias Thomsen minnkaði muninn úr víti. Manni fleiri eftir rautt spjald Arnórs Gauta Jónssonar á 69. mínútu innsiglaði ÍA sigurinn í lokin með marki Gísla Laxdal Unnarssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×