Leik lokið: Keflavík-Stjarnan 107-98 | Keflvíkingar eiga enn von Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 14. mars 2025 21:20 Callum Lawson var mjög öflugur fyrir Keflavíkurliðið í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Keflvíkingar héldu voninni um sæti í úrslitakeppninni á lífi eftir níu stiga sigur á Stjörnunni, 107-98, í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Keflvíkingar byrjuðu frábærlega og komust mest 21 stigi yfir en Stjörnumenn komu til baka í seinni hálfleiknum. Keflavíkurliðið hélt út og getur því enn komist í úrslitakeppnin með sigri á Þór í Þorlákshöfn og hagstæðum úrslitum í lokaumferðinni. Stjörnumönnum mistókst aftur á móti að komast upp fyrir Stólana og í toppsæti deildarinnar. Callum Lawson var frábær hjá Keflavík með 28 stig og 8 fráköst, Ty-Shon Alexander skoraði 26 stig og Jaka Brodnik var með 22 stig. Hilmar Smári Henningsson skoraði mest fyrir Stjörnuna eða 20 stig. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir. Bónus-deild karla Keflavík ÍF
Uppgjörið: Valur - Grindavík 99-80 | Valsmenn áttu ekki í miklum vandræðum með vængbrotna Grindvíkinga