Innlent

Maður hand­tekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Myndefni frá vettvangi
Myndefni frá vettvangi

Lögreglan veitti bíl eftirför í Kópavogi, meðal annars hjá verslunarkjarnanum í Lindum, fyrr í dag. Bíllinn sem lögregla elti er talin tengjast andláti sem er til rannsóknar á Suðurlandi.

Heimir Ríkharðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að einn hafi verið handtekinn vegna málsins. Bíllinn hafi verið stöðvaður við Hrauntungu í Kópavogi.

Sjá einnig: Fimm í haldi vegna rann­sóknar á and­láti

Tveir hafi verið í umræddum bíl og hlaupið á brott, annars vegar maður sem hafi verið handtekinn. Hins vegar hafi kona verið í bílnum sem hefur ekki verið handtekin svo Heimir viti til.

Vegfarandi náði þessu myndandi af eftirförinni úr bílamyndavél.

„Lögreglan ætlaði að hafa afskipti af bíl í Lindahverfinu í Kópavogi. Þá keyrði hann í burtu. Honum er veitt eftirför, og bíllinn stöðvaður. Tveir hlaupa út úr bílnum og annar er handtekinn,“ segir Heimir.

Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra staðfestir í samtali við fréttastofu að sérsveitin sé að aðstoða lögregluna í Kópavogi.

Fréttastofa hefur fengið ábendingar um lögregluaðgerð við Víghólastíg í Kópavogi.

Fyrr í dag var greint frá því að lögreglan á Suðurlandi hefði rannsókn á andláti til rannsóknar. Fimm væru í haldi vegna málsins.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Vaktin: Sex í haldi vegna gruns um manndráp

Sex eru í haldi lögreglunnar á Suðurlandi vegna andláts karlmanns snemma í morgun. Áverkar á hinum látna benda til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×