Logi jafnar með tveimur mörkum á þremur mínútum: Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2024 19:25 Logi Tómasson kom inn á sem varamaður í hálfleik og breytti leiknum. Vísir/Anton Brink Íslenska landsliðið bryjaði ekki vel á móti Wales á Laugardalsvellinum í Þjóðadeildinni í kvöld en íslensku strákarnir eru að spila miklu betur í seinni hálfleiknum og það hefur skilað liðinu tveimur mörkum og jafnri stöðu.
Logi Tómasson kom inn á sem varamaður í hálfleik og minnkaði muninn á 69. mínútu. Þetta var hans fyrsta landsliðsmark í hans fimmta landsleik. Hann var þó ekki hættur. Logi fékk boltann fyrir utan teig eftir stutta hornspyrnu, lék í átt að teignum og sendi hann í fjærhornið með frábæru skoti. Geggjað mark. Það má sjá þetta glæsilega mark hér fyrir neðan en einnig markið sem hann á allan heiður af þremur mínútum síðar. Logi labbaði þá í gegnum vörn Wales og skoraði af endalínunni. Það eru þó líkur á því að það mark verði skráð sem sjálfsmark. Bæði mörkin eru hér fyrir neðan. Mörkin hjá Wales komu bæði eftir keimlíkar sóknir þar sem góð hlaup Harry Wilson af miðjunni skiluðu honum í bæði skiptin einum á móti Hákoni Rafni Valdimarssyni í marki Íslands. Í fyrra markinu hálfvarði Hákon skotið frá Wilson en Brennan Johnson fylgdi á eftir á marklínunni. Í seinna markinu var Wilson aftur kominn einn í gegn en að þessu sinni skoraði hann örugglega sjálfur. Hér fyrir neðan má sjá mörk Wales í fyrri hálfleiknum sem og stangarskot Wilson sem hefur farið á kostum í þessum fyrri hálfleik.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Sjá meira