Fær milljónir því stofugólfið var ekki til friðs Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. nóvember 2023 22:32 Konan sagði hljóðvistina í stofunni hafa orðið afar slæma eftir framkvæmdirnar. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Sebastian Willnow/Getty Images Héraðsdómur Reykjaness hefur gert verktaka að greiða konu rúmar 2,7 milljónir króna auk málskostnaðar vegna ófullkominnar lagningu hitalagna í stofugólfi í íbúð hennar í fjölbýlishúsi.
Konan kvartaði undan miklum dynkjum þegar gengið var um gólfið í kjölfar vinnunnar. Gólfið var fræst, hitalagnir lagðar og gólfið flotað í desember árið 2019. Sagði konan að eftir að stofan hafi verið tekin í notkun hafi hljóðvist orðið mjög slæm og að gestir hefðu jafnvel yfirgefið rýmið. Strax í janúar 2020 benti konan á að ákveðin hljóð bærust frá gólfinu þegar gengið var um það. Var henni sagt að hljóðið myndi hverfa þegar gólfefni væru komin ofan á flotið en forsvarsmaður fyrirtækisins kannaðist ekki við þessa frásögn. Konan kvartaði síðan undan verkinu til fyrirtækisins í nóvember 2020 og kvað hún glymja í gólfinu þegar gengið væri á því. Í desember fór hún fram á bætur en fyrirtækið varð ekki við því og var dómskvaddur matsmaður fenginn til að meta verkið þann 23. febrúar árið 2021. Mældi hljóð með bankvél Þrír matsmenn voru fengnir til að meta verkið. Byggingartæknifræðingur, hljóðverkfræðingur og múrararmeistari. Sá fyrst taldi að ástæða þess að það glumdi í gólfinu þegar gengið er á því vera þá að lögð hafi verið 30 millimetra einangrun á golfið og ofan á hana hafi svo verið sett flotílögn sem sé of þunn. Hún hafi mælst 37 millímetra þykk. Þá taldi hljóðverkfræðingurinn að heyra hafi mátt öðruvísi hljóð þegar gengið hafi verið á gólfinu. Hljóðið hafi einna helst verið eins og dynkir þegar stigið hafi verið fast niður. Þá notaði hann sérstaka bankvél til að mæla svokölluð trommuhljóð í gólfinu.Múrarameistarinn taldi framkvæmdina ekki hafa verið ranga út frá faglegum sjónarmiðum múrara. Töldu sig hafa ráðið konunni heilt Fyrirtækið taldi ósannað að gólfið hefði verið gallað og sagðist hafa ráðið konunni heilt. Fyrirtækið hefði unnið sitt verk af fagmennsku og öryggi auk þess sem engin verklýsing hafi legið fyrir af hálfu stefnanda. Taldi fyrirtækið fullyrðingar matsmanns um flotþykkt, þykkt gólfs, hljóð í golfi og samanburð auk þess ósannaðar. Þá hefði það boðist til að bæta konunni tjónið að fráskildu parketinu og lagningu þess enda hafi það ekki verið innan hans verks. Sátt hefði ekki náðst um það. Konan sagðist hins vegar ekki hafa haft nokkrar forsendur til að gagnrýna eða draga í efa hvað væri rétt aðferð hjá fyrirtækinu og hvað ekki. Hún hafi í tvígang kvartað án viðbragða. Þá hefði fyrirtækið meðal annars sagt henni að það hafi sett einangrun til að spara henni flot, án þess að bera það undir hana að fyrrabragði. Fyrirtækið hafi auk þess haldið því fram að flot ofan á lagnir væru 40 til 60 millimetrar en matsmaður komist að því að það hefði mælst 37 millimetrar eða um það bil helmingi of þunnt. Dómararnir mættu og gengu um gólfið Fram kemur í dómi héraðsdóms að dómur hafi farið á vettvang við upphaf aðalmeðferðar og reynt af eigin raun hvort slíkt hljóð væri frá gólfinu í stofu konunnar. Dómarar upplifðu ákveðið hljóð ótvírætt, ekki „glymjanda“ en ýkt hljóð þegar gengið var um gólfið sem frekar mætti líkja við dynki eða holhljóð, frekar lágtíðnihljóð. Segir í dóminum að mælingum á floti ofan á hitalögnum hafi ekki verið hnekkt. Samkvæmt framburði beggja matsmanna fyrir dómi sé ástæða hljóðsins sú að flotið ofan á hitalögnum sé of þunnt. Þykkari ílögn myndi útiloka eða í öllu falli minnka slíkt aukahljóð. Telur dómurinn að sýnt hafi verið fram á að konan hafi orðið fyrir tjóni vegna gallaðrar vinnu. Dómurinn telur ljóst að verkinu hafi verið ábótavant og fyrirtækinu því gert að greiða stefnanda 2,7 milljónir króna með dráttarvöxtum og 3,2 milljónir í málskostnað.
Dómsmál Neytendur Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Sjá meira