Óhætt er að segja að stressið hafi verið mikið hjá íslensku stuðningsfólki fyrir leik og ekki batnaði staðan þegar fréttir af því að fyrirliðinn Aron Pálmarsson gæti ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla.
Jæja þá fer mest stressandi og taugatrekkjandi klukkutími flestra Íslendinga að hefjast #hmruv
— Þórhildur Gyða (@torii_96) January 20, 2023
Hugsa að það séu svona um 140.000 þúsund manns að setjast niður núna og fara horfa á leikinn 😮 #hmruv
— Gunni Gregersen (@GunniGud) January 20, 2023
Staðan 45 min í leik #hmruv pic.twitter.com/Rqtp1WnRzt
— Kristín Eva (@Kristinevab) January 20, 2023
Aron Pálmarsson er ekki með í kvöld vegna tognunar.
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 20, 2023
"Því miður getur Aron Pálmarsson ekki leikið leikinn í kvöld. Það er auðvitað áfall fyrir okkur að missa hann út. Það verða aðrir að stíga upp og við þurfum að sýna styrk," sagði Guðmundur Guðmundsson í viðtali fyrir leik. pic.twitter.com/g2CpFw1a7n
Aron Pálmarsson hefur verið án meiðsla/veikinda í þremur af síðustu tíu stórmótum. EM 2016, EM 2018, EM 2020. #Handkastið
— Arnar Daði (@arnardadi) January 20, 2023
Óhræddasti Íslendingurinn fundinn pic.twitter.com/HEJzarh0Xw
— Vilhelm Neto (@VilhelmNeto) January 20, 2023
Svíarnir byrjuðu leikinn betur, en íslenska liðið fann þó fljótt taktinn og þar var Gísli Þorgeir Kristjánsson fremstur meðal jafningja.
Það er hundur í Gísla og það er geggjað.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) January 20, 2023
Alvöru ástríða frá Gísla Þorgeiri. Þetta viljum við sjá! Þarna kveikir hann almennilega í bláa hafinu 🌊 pic.twitter.com/hCXaKnmiFr
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 20, 2023
Gísli Þorgeir með sýningu. pic.twitter.com/p985hJNSwK
— Stefán Árni Pálsson (@stebboinn) January 20, 2023
Þurfum að spila handbolta með jörðinni í kvöld, hæðin á útilínunni minnir mig á Fórboltalið Barca 2010
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) January 20, 2023
Gerum okkar besta, og aðeins betur ef það er það sem þarf.
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) January 20, 2023
Við þurfum vörn og markvörslu. Ekki margir sem vita það en þá fáum við hraðaupphlaupin.
— Jói Skúli (@joiskuli10) January 20, 2023
Það er eins marks munur, 10-11 og við eigum helling inni. Andinn frábær. Kemur. Endar 29-28.
— Stefán Árnason (@StefanArnason) January 20, 2023
Svíar leiddu með einu marki í hálfleik og fleiri slæmar fréttir bárust úr herbúðum íslenska liðsins. Ómar Ingi Magnússon virtist meiddur.
Omar Ingi Magnusson is apparently injured. So we will probably have to do without him in the 2nd half, as well as coping with the absence of Aron Palmarsson. But a great fight!!! Gisli Kristjansson magical. #handball
— Höllin er úrelt (@Nyjahollstrax) January 20, 2023
En leikurinn hélt áfram og síðari hálfleikurinn fór af stað mað látum.
Elliði farinn að gera menn brjálaða. Alltaf góðs viti.
— Henry Birgir (@henrybirgir) January 20, 2023
A markmannsruslið hjá svium bara að fá að hanga inn á?
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) January 20, 2023
Hvur þremilinn er Palicka að gera? Stórfurðuleg hegðun, það verður að segjast #hmruv pic.twitter.com/X7ZvCBo7Wp
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 20, 2023
Svíar náðu fljótlega tökum á leiknum. Kristján Örn Kristjánsson átti flotta innkomu í hægri skyttuna, en Palicka reyndist okkar mönnum erfiður í markinu og okkar menn klikkuðu á hverju dauðafærinu á fætur öðru.
Donni með alvöru hlemm utan af velli #hmruv pic.twitter.com/nat8NzNfOH
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 20, 2023
What a save… my goodness.
— (Un)informed Handball Hour (@HandballHour) January 20, 2023
Sweden in front for the moment but this game is far from over yet… #POLSWE2023 pic.twitter.com/CiMzyT2Zzk
Er hægt að biðja sérstaklega um að lyfjaprófa þennan sænska markmann eftir leik?
— Tómas Sjöberg (@tommisjoberg) January 20, 2023
Erfitt að kenna Gumma Gumm um blatant kjaftæði eins og klúðra dauðafærum aftur og aftur. Allt mótið. Einn á einn aftur og aftur. Einkunn er 3/10 því miður. Guðmundur þarf samt aðlaga sig að nútíma handbolta ef hann ætlar að vera á þessu leveli. Hann er ekki þar í dag.
— Rikki G (@RikkiGje) January 20, 2023
Svíar unnu að lokum fimm marka sigur og svekkelsið leyndi sér ekki hjá íslenskum stuðningsmönnum.
Ansi hræddur um að þetta sé búið hjá okkar mönnum á þessu móti, væntingarnar fáránlegar hjá fagfólki í greininni og við erum ekki ein af bestu handboltaþjóðum heims, en gætum orðið það fljótlega, en við komumst ekki einu sinni í 8 bestu á þessu móti. Töpuðum 2 móti 3 sterkum😐🤾♂️
— Eyfikr (@eyfikr) January 20, 2023
Versta sem gat gerst var að ná þessu óvænta 6. sæti á EM í fyrra. Þá "þurfti" að endurráða Gumma. Eitt gott stórmót af fimm er frekar klént.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) January 20, 2023
Við hefðum betur sett markið á Forsetabikarinn.
— Jón Júlíus Karlsson (@JonJKarlsson) January 20, 2023
Setja allt púður í að fá Dag Sigurðsson til að taka við þessu frábæra liði sem við eigum. Við eigum að vera að gera mikið betur.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) January 20, 2023
Íþróttir. Brútal andskoti.
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) January 20, 2023
Auðvitað voru væntingar háar. Teymið/liðið skeit gegn Ungverjum. Að spila gegn Svíum án Arons og svo Ómars breytir öllu.
Fegurðin er að þetta lið á heeelvíti mörg stórmót eftir og ég skal hundur heita ef við nælum ekki í verðlaun á næstu 4-5 árum