Skoðun

Fé­lags­bú­staðir geta byggt 3000 í­búðir

Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar

Sósíalistar vilja að Félagsbústaðir byggi þrjú þúsund nýjar íbúðir sem allra fyrst.

Í fyrsta lagi hafa Félagsbústaðir efni á þessu

Eigið fé Félagsbústaða var 67,3 milljarðar króna um síðustu áramót. Það er meira en 53% af eignum félagsins, 29,4 milljörðum meira en nauðsynlegt má telja. Fasteignafélög á markaði, Reitir, Reginn og Eik, eru með um 30% eiginfjárhlutfall. Eigið fé Félagsbústaða umfram þessi mörk gæti því staðið undir byggingum íbúða fyrir hátt í 100 milljarða króna. Með því afli væri hægt að byggja 3000 íbúðir án nokkurs erfiðis.

Í öðru lagi geta Félagsbústaðir fjármagnað byggingu íbúðanna

Skuldabréfaútboð Félagsbústaða hafa gengið vel, enda nýtur félagið ábyrgðar borgarsjóðs og er auk þess með frábær veð. Það eru ekki til betri veð en íbúðir lágtekjufólks. Og ýmsar aðrar fjármögnunarleiðir standa Félagsbústöðum opnar. Reykjavíkurborg ætti að beita sér fyrir því að lán vegna almennra íbúða megi vera til lengri tíma en 50 ára, en núgildandi lög hafa slíka takmörkun. Með lánum til lengri tíma má lækka húsaleigu hjá Félagsbústöðum umtalsvert.

Í þriðja lagi getur borgin sjálf byggt íbúðirnar

Reykjavíkurborg á lóðir og á Félagsbústaði sem hafa fjárhagslegt bolmagn til húsbygginga. Borgin þarf því ekki að bíða eftir neinu, ekki að bíða eftir að verktakar byggi íbúðir til að geta keypt þær með ríkulegri álagningu. Reykjavíkurborg getur byggt þessar íbúðir sjálf, sett á legg Byggingarfélag Reykjavíkur, eins og Sósíalistar hafa lagt til.

Í fjórða lagi er þörf á 3000 íbúðum

Mikill fjöldi fjölskyldna og einstaklinga eru föst á óregluvæddum leigumarkaði og greiðir þar alltof háa húsaleigu sem þrýstir þessu fólki niður í fátækt. Biðlistar eftir íbúðum Félagsbústaða segja aðeins hálfa söguna, og varla það. Skilyrði til að fá íbúð hjá Félagsbústöðum eru mjög ströng. Það er ekki nóg að fólk sé fátækt, heldur þarf það að hafa orðið fyrir áföllum, vera veikt eða standa að öðru leyti illa umfram það að vera með lágar tekjur og þurfa að borga óheyrilega háa húsaleigu.

Í fimmta lagi mun þetta tryggja félagslega blöndun innan Félagsbústaða

Borgaryfirvöld hafa óttast að hröð uppbygging félagslegs húsnæðis geti valdið því að félagsleg blöndun í hverfum verði ekki næg, að of margir fátækir búi á of litlu svæði. Þetta viðhorf einkennist af fátækraandúð. Borgaryfirvöld hafa engar áhyggjur af ónógri félagslegri blöndun í auðmannablokkunum við Skúlagötu. En með því að fjölga almennum íbúðum innan Félagsbústaða úr rúmum tvö þúsund í rúm fimm þúsund munu skilyrði fyrir að fá íbúð lækka og íbúarnir verða sjálfkrafa blandaðri, koma úr ólíkari hópum.

Í sjötta lagi mun uppbyggingin tryggja félagslega blöndun í borginni

Það þarf að gera stórátak til að tryggja félagslega blöndun í hverfum borgarinnar. Það er til dæmis alltof lítið af félagslegu húsnæði á Melunum og Högunum, í Fossvoginum, í Laugarásnum og víðar. Með því að byggja 3000 nýjar íbúðir víða um borgina, en einkum þar sem fáar slíkar íbúðir eru fyrir, má tryggja betri félagslega blöndun í borginni, gera hverfi hennar fjölbreyttari og lýðræðislegri.

Í sjöunda lagi mun þetta gera borgina betri

Húsnæðiskreppan er það einstaka fyrirbrigði sem hefur haft verst áhrif á lífskjör í borginni. Það er því forgangsverkefni að ráðast að rótum hennar. Og ræturnar liggja í húsnæðisvanda lágtekjufólks. Þar er mesti sársaukinn. Besta leiðin til að leysa húsnæðiskreppuna er að byggja fyrir fólkið í mestum húsnæðisvanda.

Þetta er tillaga Sósíalista fyrir borgarstjórnarkosningarnar 14. maí, að Félagsbústaðir byggi 3000 nýjar íbúðir. Sósíalistar treysta á að borgarbúar kjósi bestu lausnina, þá skynsamlegustu og réttlátustu. Þess vegna leggja þeir slíkar tillögur fram.

Höfundur er oddviti Sósíalistaflokks Íslands í komandi borgarstjórnarkosningum.




Skoðun

Sjá meira


×