Búið að finna borg fyrir stelpurnar okkar og Hvít-Rússa Sindri Sverrisson skrifar 21. mars 2022 12:30 Íslenska landsliðið þarf nauðsynlega á sigri að halda gegn Hvíta-Rússlandi í Belgrad í næsta mánuði, í von um að komast á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. vísir/hulda margrét Vegna innrásar Rússa í Úkraínu, með aðstoð Hvít-Rússa, hefur ríkt óvissa varðandi mikilvægan útileik Íslands gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM í fótbolta kvenna. Nú er leikstaður fundinn.
Samkvæmt heimasíðu UEFA hefur verið ákveðið að spila leikinn í Belgrad, höfuðborg Serbíu. Leikurinn fer fram 7. apríl. Ísland mætir svo Tékklandi í Teplice 12. apríl en með sigri í báðum leikjum kæmist Ísland í dauðafæri á að komast á HM í fyrsta sinn. Knattspyrnusamband Íslands gaf út skýra yfirlýsingu um það 28. febrúar að ekki kæmi til greina að spila landsleiki við Rússlands vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þar var þess jafnframt getið að ekki kæmi heldur til greina að spila við Hvíta-Rússland á hvítrússneskri grundu. Íslandsvinur stýrir liðinu sem á völlinn UEFA gaf það svo út nokkrum dögum síðar að Hvíta-Rússland mætti ekki spila heimaleiki sína í sínu landi, á meðan á stríðinu stæði. Leikur Íslands og Hvíta-Rússlands í Belgrad fer fram á Vozdovac vellinum, þar sem samnefnt lið spilar. Þess má geta að Vozdovac leikur undir stjórn Íslandsvinarins mikla Aleksandar Linta sem lék með fjölda liða hér á landi, þar á meðal í efstu deild með bæði Þór og ÍA.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Fótbolti Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Fleiri fréttir Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Sjá meira