Hafa tapað sex föstudagsleikjum í röð og mæta til Keflavíkur í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2021 13:01 Kristófer Acox og félagar í Valsliðinu hefur gengið afar illa á föstudögum síðustu mánuði. Vísir/Bára Dröfn Flestir geta ekki beðið eftir föstudögum en þetta hafa hins vegar ekki verið góðir dagar fyrir karlalið Valsmanna í körfuboltanum. Valsmenn reyna í kvöld að breyta venju sinni undanfarna níu mánuði sem er að tapa öllum leikjum sínum á föstudögum. Valsliðið hefur ekki unnið leik á föstudegi síðan 12. febrúar 2021 eða í 280 daga. Síðan þá hefur liðið leikið sex leiki á föstudagskvöldum og tapað þeim öllum þar af fjórum þeirra með ellefu stigum eða meira. Einn af þessum tapleikjum var oddaleikurinn á móti KR í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar í vor. Keflavík tekur á móti Val í Blue-höllinni í Keflavík klukkan 20.15 í kvöld og verður hann sýndur beint í Stöð 2 Sport. Strax á eftir leikinn verður síðan Körfuboltakvöld. Valsmenn eru á sigurbraut þrátt fyrir vandræði sín á föstudögum. Síðustu þrír leikir Valsliðsins hafa nefnilega verið á fimmtudögum og liðið hefur unnið þá alla. Á meðan Valsmenn hafa tapað sex leikjum í röð á föstudögum þá hafa þeir unnið sjö leiki í röð á fimmtudögum eða alla leiki sína á þeim degi síðan 4. febrúar á þessu ári. Valsmenn fögnuðu sigri síðast á föstudagskvöldi þegar þeir mættu Keflvíkingum á Hlíðarenda í febrúar á þessu ári. Valsliðið vann þá sannfærandi 85-72 sigur. Nú er spurning hvort þeir endurtaki leikinn í kvöld. Síðustu leikir Valsmanna á föstudagskvöldum: 22. október 2021: 26 stiga tap fyrir Njarðvík (70-96) 8. okótber 2021: 14 stiga tap fyrir Tindastól (62-76) 28. maí 2021: 3 stiga tap fyrir KR í úrslitakeppni (86-89) 7. maí 2021: 19 stiga tap fyrir Keflavík (82-101) 30. apríl 2021: 2 stiga tap fyrir Þór Þorl. (96-98) 5. mars 2021: 11 stiga tap fyrir Stjörnunni (79-90) 12. febrúar 2021: 13 stiga sigur á Keflavík (85-72) Subway-deild karla Valur Keflavík ÍF Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira
Valsmenn reyna í kvöld að breyta venju sinni undanfarna níu mánuði sem er að tapa öllum leikjum sínum á föstudögum. Valsliðið hefur ekki unnið leik á föstudegi síðan 12. febrúar 2021 eða í 280 daga. Síðan þá hefur liðið leikið sex leiki á föstudagskvöldum og tapað þeim öllum þar af fjórum þeirra með ellefu stigum eða meira. Einn af þessum tapleikjum var oddaleikurinn á móti KR í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar í vor. Keflavík tekur á móti Val í Blue-höllinni í Keflavík klukkan 20.15 í kvöld og verður hann sýndur beint í Stöð 2 Sport. Strax á eftir leikinn verður síðan Körfuboltakvöld. Valsmenn eru á sigurbraut þrátt fyrir vandræði sín á föstudögum. Síðustu þrír leikir Valsliðsins hafa nefnilega verið á fimmtudögum og liðið hefur unnið þá alla. Á meðan Valsmenn hafa tapað sex leikjum í röð á föstudögum þá hafa þeir unnið sjö leiki í röð á fimmtudögum eða alla leiki sína á þeim degi síðan 4. febrúar á þessu ári. Valsmenn fögnuðu sigri síðast á föstudagskvöldi þegar þeir mættu Keflvíkingum á Hlíðarenda í febrúar á þessu ári. Valsliðið vann þá sannfærandi 85-72 sigur. Nú er spurning hvort þeir endurtaki leikinn í kvöld. Síðustu leikir Valsmanna á föstudagskvöldum: 22. október 2021: 26 stiga tap fyrir Njarðvík (70-96) 8. okótber 2021: 14 stiga tap fyrir Tindastól (62-76) 28. maí 2021: 3 stiga tap fyrir KR í úrslitakeppni (86-89) 7. maí 2021: 19 stiga tap fyrir Keflavík (82-101) 30. apríl 2021: 2 stiga tap fyrir Þór Þorl. (96-98) 5. mars 2021: 11 stiga tap fyrir Stjörnunni (79-90) 12. febrúar 2021: 13 stiga sigur á Keflavík (85-72)
Síðustu leikir Valsmanna á föstudagskvöldum: 22. október 2021: 26 stiga tap fyrir Njarðvík (70-96) 8. okótber 2021: 14 stiga tap fyrir Tindastól (62-76) 28. maí 2021: 3 stiga tap fyrir KR í úrslitakeppni (86-89) 7. maí 2021: 19 stiga tap fyrir Keflavík (82-101) 30. apríl 2021: 2 stiga tap fyrir Þór Þorl. (96-98) 5. mars 2021: 11 stiga tap fyrir Stjörnunni (79-90) 12. febrúar 2021: 13 stiga sigur á Keflavík (85-72)
Subway-deild karla Valur Keflavík ÍF Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira