Sport

Björk og Gerpla tóku gullið

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Lið Bjarkar kom, sá og sigraði.
Lið Bjarkar kom, sá og sigraði. Fimleikasamband Íslands

Bikarmót í frjálsum æfingum í áhaldafimleikum fór fram í dag í fimleikahúsi Gerplu.

Bikarmót í frjálsum æfingum í áhaldafimleikum fór fram í dag eftir eins árs hlé vegna covid-19 faraldursins. Meðal annars var keppt í frjálsum æfingum í bæði kvenna- og karlaflokki og fór mótið fram í fimleikahúsi Gerplu. 

Keppendur komu frá Ármanni, Björk, Fimak, Fjölni, Gerplu og Gróttu. Ríkjandi meistarar í bæði karla- og kvennaflokknum náðu að verja sinn titil.

Eftir spennandi keppni í kvennaflokki stóð lið Bjarkar uppi sem sigurvegari með 134,600 stig og sigruðu lið Gerplu með 4,850 stiga mun.

Gerpla A vann öruggan sigur í karlaflokki með 226,129 stig en í öðru sæti urðu liðsfélagar þeirra í Gerplu B sem hlutu 194,962 stig.

Keppninni verður haldið áfram á morgun en þá fer fram bikarmót hjá yngri flokkum.

Valgarð Reinhardsson úr Gerplu varð stigahæstur í karlaflokki en hann hlaut 75,432 stig. Hildur Maja Guðmundsdóttir úr Gerplu varð stigahæst í kvennaflokki og hlaut 44,200 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×