Skíðlogaði í bíl í Seljahverfi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. nóvember 2020 06:56 Skjáskot úr myndbandi sem tekið var á vettvangi í Seljahverfi í nótt. Elvar Askur Lárusson
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust fyrir klukkan hálftvö í nótt vegna elds sem hafði kviknað í bíl á bílastæði í Seljahverfinu í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu bárust upplýsingar um að hætta væri á að eldurinn færi í fleiri bíla svo tveir slökkvibílar voru sendir á vettvang. Þegar þangað var komið kom í ljós að það var smá fjarlægð í næstu bíla en bíllinn sem kviknað hafði í skíðlogaði. Slökkviliðið slökkti eldinn en bíllinn er talinn gjörónýtur. Eldsupptök eru ókunn og rannsakar lögreglan málið. Hér fyrir neðan má sjá myndband frá vettvangi í nótt sem Elvar Askur Lárusson tók. Þetta er önnur næturvaktin í röð þar sem bílbruni kemur inn á borð slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðisins. Á þriðjudagskvöld kviknaði í bíl við Smáralind. Þá kviknaði í rútu við Köllunarklettsveg í síðustu viku. Aðspurður hvort að það sé óvenju mikið um bílbruna þessa dagana segir varðstjóri hjá slökkviliðinu að það þurfi ekki að vera neitt samhengi þarna á milli; svona atburðir komi gjarnan í bylgjum og það séu tilviljanir sem ráði för. Svipuð bylgja bílbruna hafi til að mynda verið fyrr á árinu.
Slökkvilið Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira