Tap hjá deildarmeisturunum og Keflavík niðurlægði KR Anton Ingi Leifsson skrifar 23. september 2020 21:09 Breiðablik vann góðan sigur í kvöld. vísir/bára
Breiðablik gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra stiga sigur á deildarmeisturum Vals í kvöld, 71-67, í fyrstu umferð Dominos-deildar kvenna. Leikurinn var ansi jafn og skemmtilegur nær allan leikinn. Breiðablik var einu stigi yfir í hálfleik, 37-36, og hélt út eftir rosalegar lokamínútur. Jessie Coera var stigahæst hjá Breiðabliki með 25 stig. Isabella Ósk Sigurðardóttir gerði tólf stig og tók átján fráköst. Hildur Björg Kjartansdóttir, sem kom frá KR í sumar, var stigahæst hjá Val með sextán stig. Hún tók einnig tólf fráköst. Dagbjört Dögg Karlsdóttir gerði fjórtán stig. Nýliðar Fjölnis rúlluðu yfir Snæfell á heimavelli. Lokatölur urðu 91-60 eftir að Fjölnir voru 39-31 yfir í hálfleik þrátt fyrir að Snæfell hafi verið 21-10 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Fiona Eilish O'Dwyer gerði tuttugu stig fyrir Fjölni en hún tók að auki sextán fráköst. Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir skoraði átján stig. Iva Georgieva var stigahæst hjá Snæfell með átján stig. Anna Soffía Lárusdóttir gerði fjórtán stig og tók fjórtán fráköst en það er ljóst að það er langur vetur framundan í Stykkishólmi. Keflavík rúllaði yfir KR í Reykjanesbæ. Keflavík vann með 42 stiga mun, 114-72, eftir að hafa verið 55-34 yfir í leikhlé. Keflvíkingar gáfu ekki tommu eftir í síðari hálfleik og unnu alla fjóra leikhluta kvöldsins. Daniela Wallen Morillo gerði 37 stig fyrir Keflavík. Að auki tók hún ellefu fráköst og gaf níu stoðsendingar. Anna Ingunn Svansdóttir kom næst með sautján stig. Annika Holopainen var í sérflokki hjá KR. Hún gerði 43 stig og tók tíu fráköst. Hún skoraði þar af leiðandi tæplega 60% af stigum KR í kvöld.
Dominos-deild kvenna Breiðablik Valur Keflavík ÍF KR Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira