„Hörmuleg hnignun“ dýralífs aldrei verið hraðari Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. september 2020 07:03 Órangútanar í Indónesíu. Leitt er að því líkum í skýrslunni að hægt sé að hægja á þróuninni og jafnvel snúa henni við. Vísir/getty
Dýrastofnar í heiminum hafa skroppið saman um nær 70 prósent síðan 1970. Ekkert hægist á hnignuninni, sem lýst er sem „hörmulegri“ í nýrri skýrslu náttúruverndarsamtakanna WWF. Samkvæmt skýrslunni er dýralíf nú í „frjálsu falli“ vegna framgangs mannsins; skógareyðingar og ofveiði séu víða að ganga af dýrastofnum dauðum. Fram kemur í skýrslunni að aldrei hafi þróunin í þessa hamfaraátt verið jafnhröð og nú. Vísindamenn sem unnu að skýrslunni rannsökuðu um tuttugu þúsund stofna spendýra, fugla, skriðdýra og fiska víðsvegar um heiminn. Meðalfækkun innan stofnanna reyndist 68 prósent frá árinu 1970. Fækkunin mældist 60 prósent fyrir tveimur árum. Hnignunin mældist mest í Suður-Ameríku og Karíbahafinu en þar reyndust stofnar hryggdýra hafa skroppið saman um 94 prósent. Leitt er að því líkum í skýrslunni að hægt sé að hægja á þróuninni og jafnvel snúa henni við. Til þess þurfi þó að grípa til stórtækra náttúruverndaraðgerða og einkum grundvallarbreytingar á neyslumynstri manna og matvælaframleiðslu. Skýrsluna má nálgast í heild hér.
Umhverfismál Dýr Mest lesið Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Erlent Aðstoðar Ingu eftir viðkomu í Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og JP Morgan Innlent „Var lifandi og skemmtilegur en ömurlegt hvernig fór“ Innlent Íslensku þjóðinni ofbjóði ástandið Innlent 1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi Innlent The Vivienne er látin Erlent Vill efla vöktun og innviði vegna kerfisins sem er að vakna Innlent Alvarlegt að horfa framhjá birtuleysi við þéttingu byggðar Innlent Hringi viðvörunarbjöllum þegar of auðvelt sé að taka lán Innlent Heitir því að verða betri eiginmaður og finna sér nýja vinnu Innlent Fleiri fréttir Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir The Vivienne er látin Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás Jimmy Carter kvaddur Einn hinna látnu í New Orleans tengdur konungsfjölskyldunni Látin 116 ára að aldri Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir innsetningu „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Tímabært að Grænland taki skref í átt að sjálfstæði Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum Lögreglu tókst ekki að handtaka forsetann afsetta í Suður-Kóreu Skaut sig áður en bíllinn sprakk Talinn hafa staðið einn að verki Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Flutningur á rússnesku gasi um Úkraínu til Evrópu stöðvast að fullu Ellefu særðir eftir skotárás við skemmtistað í New York Tala látinna hækkar í fimmtán Einn lést er Tesla sprakk fyrir utan Trump-hótel Tvö börn meðal látinna eftir skotárás á veitingastað Sjá meira