Sif Atla lýsir sænska boltanum á Stöð 2 Sport á afmælisdaginn sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2020 13:30 Sif Atladóttir í leik með íslenska landsliðinu en hún hefur spilað 82 landsleiki. Vísir/Bára
Sif Atladóttir þekkir vel til sænsku kvennadeildarinnar í fótbolta eftir að hafa spilað þar í næstum því heilan áratug. Áhorfendur Stöð 2 Sport munu njóta góðs af innsýn hennar og þekkingu í kvöld. Stöð 2 Sport er að sýna beint frá sænsku kvennadeildinni í fyrsta sinn í sumar og í dag verður sýnt beint frá leik Uppsala og Umeå. Anna Rakel Pétursdóttir spilar með liði Uppsala. Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Sif Atladóttir heldur upp á 35 ára afmælið sitt í dag en hún er í barneignarfríi og stödd heima á Íslandi. Sif spilar með sænska félaginu Kristianstad en missir af þessu tímabili. Sif Atladóttir hefur spilað í sænsku deildinni frá árinu 2011 og leikið yfir 150 leiki í deildinni en fáir þekkja deildina því betur. Hún ætlar að lýsa leiknum í dag. Kristín Ýr Bjarnadóttir, sem lýsir leiknum á Stöð 2 Sport í dag, fékk gamla liðsfélaga sinn úr Val til að lýsa leiknum með sér. Sif Atladóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir urðu tvisvar sinnum saman Íslandsmeistarar með Val en Sif varð alls þrisvar sinnum Íslandsmeistari með Valsliðinu. Leikur Uppsala og Umeå hefst klukkan 17.00 en útsending á Stöð 2 Sport hefst fimm mínútum fyrr.
Sænski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira