Körfubolti

Landsliðssumarið fellur ekki niður hjá körfuboltakrökkunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
kk+i lamndsos

Norðurlandamót U16 og U18 landsliða drengja og stúlkna í körfubolta mun fara fram dagana 4.til 7. ágúst í Kisikallio í Finnlandi. Það verða samt engir Svíar og Norðmenn á svæðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Körfuknattleikssambandi Íslands.

Þar sem ástandið á Norðurlöndum vegna COVID-19 hefur breyst hratt til batnaðar undanfarnar vikur hafa körfuknattleikssamböndin unnið að því að koma aftur á Norðurlandamóti U16 og U18 sem átti að fara fram 29. júní-5. júlí í Kisakallio í Finnlandi.

Mótið verður haldið í Kisakallio, líkt og undanfarin ár, en um er að ræða glæsilegt íþróttasetur með öllu sem til þarf til að halda stórt mót. Norðmenn og Svíar verða ekki með á mótinu í ár þar sem Norðmenn ákváðu að vera ekki með þegar hugmyndin fór af stað aftur og Svíar fá ekki að fara yfir til Finnlands eins og staðan er núna, og er þessi ákvörðun tekin í góðri sátt við körfknattleiksambönd beggja landa.

Landslið Íslands munu spila fjóra leiki hvert við Finnland, Danmörku og Eistland og svo úrslitaleikur eða leikur um 3. sætið síðasta dag mótsins.

Engir áhorfendur verða leyfir og aðeins lágmarksmannskapur frá hverju sambandi verður leyfður, allir leikir mótsins verða sýndir í beinni útsendingu á netinu ásamt því að vera í beinni tölfræði lýsingu. Icelandair mun fljúga hópnum út mánudaginn 3. ágúst og heim laugardaginn 8. ágúst.

Það er afar gleðilegt að fá þessa landsleiki í ágúst fyrir U16 og U18 landsliðin okkar en allt útlit var fyrir að engir landsleikir yrðu spilaðir á þessu sumri en EM-mót FIBA hjá U16, U18 og U20 liðunum voru felld niður sem og alþjóðlegt mót U15-liðanna í Kaupmannahöfn sem fara átti fram um síðastliðnu helgi.

Fyrstu æfingar landsliðanna fyrir NM verða 3.-5. júlí.

Verkefnið er að sjálfsögðu háð þeim fyrirvara að mótið fari eingöngu fram ef allt ástand vegna COVID-19 verði í lagi áfram í þjóðfélaginu og ferðalög áfram leyfð af hálfu yfirvalda sóttvarna og annara aðila vegna COVID-19 faraldursins bæði hér heima og í Finnlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×