Töluvert um ölvunarakstur í nótt Sylvía Hall skrifar 20. júní 2020 07:05 Lögreglan hafði afskipti af mörgum ökumönnum í nótt vegna gruns um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af allmörgum ökumönnum í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Alls eru níu tilfelli skráð í dagbók lögreglu frá klukkan 17 í gær og til klukkan fjögur í nótt þar sem ökumenn eru taldir hafa ekið undir áhrifum. Þá voru fimm menn handteknir í miðbænum og í 108 vegna annarlegs ástands í aðskildum málum og voru þeir allir vistaðir í fangageymslum lögreglu. Um miðnætti var bifreið stöðvuð í hverfi 103 og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, brot á vopnalögum og vörslu, sölu og dreifingu fíkniefna. Maðurinn var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins. Rétt eftir klukkan eitt var maður handtekinn í Hlíðum vegna gruns um hótanir og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu. Þá voru þrjú tilfelli þar sem ökumenn voru stöðvaðir í Hafnarfirði vegna gruns um ölvunarakstur. Á ellefta tímanum í gær var ökumaður stöðvaður í Mosfellsbæ, en sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Segir að honum hafi gengið illa að sofna í gærkvöldi af hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Innlent Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Innlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Innlent SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Segir að honum hafi gengið illa að sofna í gærkvöldi af hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Sjá meira