„Allir vilja spila fyrir Liverpool“ Anton Ingi Leifsson skrifar 7. desember 2019 13:00 Barbosa hefur áhuga á að spila með samlanda sínum, Firmino. vísir/getty
Gabriel Barbosa, framherji Inter Milan, segir að hann myndi elska að spila með Roberto Firmino. Sama hvort það sé hjá brasilíska landsliðinu eða hjá Liverpool. Barbosa er á láni í Brasilíu þar sem hann spilar með Flamengo og spilaði hann stóran þátt í því að liðið vann Copa Libertadores á dögunum. Hann hefur skorað 34 mörk í 40 leikjum. Barbosa er 23 ára en hann hefur verið orðaður við bæði West Ham og Everton. Hann segist vera mikill aðdáandi Roberto Firmino, framherja Liverpool, en þeir gætu mæst á HM félagsliða þar sem Liverpool og Flamengo eru bæði í undanúrslitunum.Brazilian striker Gabriel Barbosa wants to join an international teammate at Liverpool. https://t.co/OwDV5zQleCpic.twitter.com/AXGMX310aX — Liverpool FC News (@LivEchoLFC) December 7, 2019 „Firmino er frábær. Hann hefur náð árangri í mörg ár í Evrópu. Hann er kraftmikill framherji og hefur verið frábær hjá Brasilíu. Hann er átrúnaðargoð sem ég lít upp til,“ sagði Barbosa við The Sun. „Það væri heiður að fá að spila með honum. Kannski verðum við saman í brasilíska landsliðinu og Liverpool er lið sem allir vilja spila fyrir en það er erfitt að tala um þetta núna. Allur minn hugur er á HM félagsliða.“ „Mér líkar vel við ensku úrvalsdeildina. Í henni eru teknískir leikmenn, sterkir og hraðir. Ég fylgist vel með leikjunum frá Brasilíu,“ bætti framherjinn við.
Enski boltinn Mest lesið Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki Fótbolti Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Fótbolti Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 „Frammistaðan var góð“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Körfubolti Fleiri fréttir „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð „Ég held að hann sé betri útgáfa af Haaland“ Guardiola skilur ekkert í valinu á Grealish Arsenal skoraði óvænt fimm gegn Maríu og félögum Mourinho vill taka við Newcastle United „Hann varð pabbi og ég átti engan þátt í því“ Hetja United meiddist ekki við það að fagna markinu Rice tábrotinn en ætlar að spila á sunnudag Slot henti bæði Mourinho og Ancelotti úr efsta sætinu Sjáðu klúðrið sem stjóri Villa kallaði „stærstu mistök“ sem hann hefur séð Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað Amorim: Pep Guardiola er svo miklu betri en ég akkúrat núna Afar vandræðaleg samskipti Amorims og blaðamanns „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Íslandshrellir bjargaði Fulham með ótrúlegum hætti Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Skoraði stórglæsilegt mark og ætlar að horfa á það aftur og aftur Edu yfirgefur Arsenal Sjá meira