Kastaðist sjö metra af mótorhjólinu Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. júní 2019 10:01 Meiðsl mannsins reyndust minni en óttast hafði verið í fyrstu. Vísir/Vilhelm
Rúmlega fertugur karlmaður var fluttur á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi um helgina eftir mótorhjólaslys á Suðurnesjum. Hann var á ferð eftir Nesvegi í Grindavík ásamt félögum sínum þegar óhappið varð, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Maðurinn missti stjórn á hjólinu með þeim afleiðingum að það lenti utan vegar en sjálfur hentist maðurinn fram af hjólinu og flaug um sjö metra. Meiðsl mannsins reyndust minni en óttast hafði verið í fyrstu en hann og samferðamenn hans voru allir með hjálma og hlífðarbúnað. Fleiri umferðaróhöpp hafa verið skráð hjá lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnum dögum en engin alvarleg slys á fólki. Lögreglu barst m.a. tilkynning þess efnis að tveir drengir væri hjálmlausir á vespu á Reykjanesbraut og ækju í átt að Keflavík. Þeir voru stöðvaðir og fluttir á lögreglustöð. Forráðamönnum þeirra var gert viðvart um ferðalagið en þeir sögðust hafa fengið vespuna að láni á höfuðborgarsvæðinu. Þá var ökumaður, sem stöðvaður var fyrir hraðakstur, jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar, sem grunaður var um ölvunarakstur, ók sviptur ökuréttindum. Þriðji ökumaðurinn framvísaði ökuskírteini sem reyndist falsað.
Grindavík Lögreglumál Samgönguslys Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira