Kína vann 0-1 sigur á Suður-Afríku í París í síðasta leik dagsins á HM kvenna í fótbolta.
Eina mark leiksins kom á 39. mínútu. Li Ying skoraði þá eftir fyrirgjöf Zhang Rui. Þetta var 28. mark hennar í 110 landsleikjum.
Kínverjar eru með þrjú stig í 3. sæti B-riðils. Kínverska liðið mætir því spænska í Le Havre í lokaumferð riðlakeppninnar á mánudaginn.
Það er úrslitaleikur um 2. sætið í riðlinum en úrslitin í París í vköld þýða að Þjóðverjar, sem eru á toppi riðilsins, eru komnir í 16-liða úrslit.
Suður-Afríka, sem er á sínu fyrsta heimsmeistaramóti, hefur tapað báðum leikjum sínum á HM og á nánast enga möguleika á að komast í 16-liða úrslit.
