Svik nema hundruðum milljarða 15. desember 2011 00:30 Kaupmannahöfn Fyrirtækið segir að líklega komist aðeins upp um fjögur til sjö prósent af bótasvikum á hverju ári. nordicphotos/afp
Rúmlega þrjú prósent Dana svíkja bætur úr velferðarkerfinu á hverju ári, samkvæmt nýrri rannsókn sem fyrirtækið KMD Analyse gerði. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að á bilinu sjö til tólf milljarðar danskra króna séu sviknir út úr kerfinu á hverju ári, eða um 150 til 256 milljarðar íslenskra króna. Fyrirtækið tók viðtöl við Dani og viðurkenndu 3,2 prósent þeirra að taka við bótum sem þeir þurfa ekki á að halda. Dæmi um bótasvik eru að fólk tekur við bótum en segir ekki frá raunverulegum tekjum sínum, eða fær atvinnuleysisbætur án þess að leita að starfi eða hafa neitað vinnu. Í fyrra voru 350 milljónir danskra króna endurheimtar eftir að upp komst um bótasvik, en KMD segir að það séu líklega aðeins um fjögur til sjö prósent af raunverulegum svikum. Sveitarfélög treysta að mestu leyti á nafnlausar ábendingar til að koma upp um svikin. Fyrirtækið mælir með því að með betri eftirfylgni og samstarfi milli mismunandi stjórnsýslustiga væri hægt að gera mun betur. Þá bendir fyrirtækið einnig á að einfalda þurfi skilyrði fyrir því að fá bætur. - þeb
Fréttir Mest lesið Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Innlent Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Innlent Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Erlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Íslandsvinurinn OG Maco látinn Erlent Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Enginn læknir á vaktinni Innlent Fleiri fréttir Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Sjá meira