Körfubolti

Fjórði sigur Grindavíkur í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íris Sverrisdóttir skoraði níu stig fyrir Grindavík í dag.
Íris Sverrisdóttir skoraði níu stig fyrir Grindavík í dag. Mynd/Anton

Grindavík vann í kvöld góðan sigur á Keflavík, 67-63, í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Þetta var fjórði sigur Grindavíkur í röð í deildinni en Keflavík hefur verið á fínu skriði í deildinni og vann sterkt lið Hamars í síðustu umferð.

Jafnræði var með liðunum allan leikinn en staðan í hálfleik var 33-32, Grindavík í vil.

Keflavík komst yfir, 63-61, þegar tvær mínútur voru eftir en Grindavík skoraði síðustu sex stig leiksins og fagnaði þar með sigri.

Stig Grindavíkur: Jovana Lilja Stefánsdóttir 27, Michele DeVault 15, Helga Hallgrímsdóttir 10, Íris Sverrisdóttir 9, Mary Jean Lerry F. Sicat 6.

Stig Keflavíkur: Kristi Smith 23, Bryndís Guðmundsdóttir 11, Rannveig Randversdóttir 8, Marín Rós Karlsdóttir 6, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 5, Svava Ósk Stefánsdóttir 4, Hrönn Þorgrímsdóttir 2, Halldóra Andrésdóttir 2, Sigrún Albertsdóttir 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×