Veður

Hvasst syðst og hvessir enn í nótt
Víðáttumikil lægð liggur nú langt suður í hafi og færir okkur austlæga átt í dag með stöku éljum fyrir austan, en að mestu skýjað og þurrt vestanlands.

Varasamt ferðaveður austanlands en bjart suðvestantil
Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu en þrettán til tuttugu um suðaustanvert landið. Reikna má með éljum fyrir norðan, snjókomu austantil og skafrenningi á suðaustanlands og því er enn varasamt ferðaveður á þeim slóðum.

Ekki búist við að vetrarfærðin endist lengi
Ekki er búist við að vetrarfærðin endist þegar líður á vikuna. Gul viðvörun verður í gildi á mánudag á Austfjörðum en hlýindi eru í kortunum.

Bjart veður sunnantil og hiti gæti farið yfir frostmark
Enn er útlit fyrir norðaustanátt á landinu í dag, víða átta til þrettán metrar á sekúndu.

Sólríkt sunnantil en él og frost norðan- og austanlands
Dregið hefur úr þeim hvassa vindi sem verið hefur viðloðandi síðustu daga. Þó hefur ekki lægt alveg, því í dag er útlit fyrir norðaustan kalda eða strekking á landinu. Taka má fram að stór hluti höfuðborgarsvæðisins er í skjóli í þessari vindátt.

Djúp lægð veldur norðaustanstormi
Langt suður í hafi er víðáttumikil og djúp lægð sem veldur norðaustanstormi á landinu, en roki syðst. Það gekk á með hríðarveðri í flestum landshlutum í nótt, en fór síðan að rofa til sunnan- og vestanlands.

Hvassir austanvindar og snjókoma með köflum syðst
Allmikið og alldjúpt lægðasvæði er suður af landinu og veldur hvössum austanvindum, jafnvel stormi eða roki syðst. Snjókoma með köflum eða skafrenningur á sunnanverðu landinu og því getur færðin spillst með skömmum fyrirvara.

Gular viðvaranir vegna storms og hríðar
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suðurlandi, Vestfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendinu vegna austan og norðaustan hvassviðris eða storms sem skellur á landið á í kvöld og á morgun.

Víða bjart veður en von á stormi á morgun
Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, golu eða kalda en annhvössum vindi syðst á landinu. Víða verður bjart veður, en suðaustan- og austanlands verður líklega eitthvað þungbúnara.

Hæglætisveður en sums staðar él fyrir norðan og allra syðst
Veðurstofan gerir ráð fyrir hæglætis veðri framan af í dag en að það verði sums staðar él fyrir norðan og allra syðst.

Áþekkt veður en hámarkshiti gæti komist yfir frostmark
Reikna má með áþekku veðri í dag nema að hámarkshiti dagsins gæti sums staðar komist yfir frostmark, einkum sunntil á landinu. Frost verður þó almennt á bilinu þrjú til sextán stig.

Frost að fimmtán stigum en gæti sést í rauðar tölur á morgun
Líkt og verið hefur er norðlæg átt yfir landinu og verður víða léttskýjað sunnan- og vestantil. Reikna má með éljum um landið norðaustanvert, en léttir smám saman til þar þegar líður á daginn.

Áfram norðlæg átt í vændum
Áfram er norðlæg átt í vændum og verður vindur víða á bilinu átta til þrettán metrar á sekúndu. Hvassari vindstrengir geta látið á sér kræla við austurströndina. Frost verður á bilinu átta til fimmtán stig í dag.

Varar við erfiðum akstursskilyrðum á Austurlandi
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við erfiðum akstursskilyrðum á austanverðu landinu í dag. Gul viðvörun er í gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi fram á kvöld.

Norðanátt og frost að fjórtán stigum
Veðurstofan reiknar með áframhaldandni norðanátt á á landinu í dag, víðast hvar átta til þrettán metrar á sekúndu.

Allt að 22 stiga frost í dag
Frost verður allt á bilinu 6 til 22 stig í dag. Ekkert lát virðist ætla að verða á kuldakastinu sem hefur bitið síðustu daga.

Áfram kalt, dálitil él norðantil og bjart sunnan heiða
Norðlægar áttir verða ríkjandi næstu daga og má reikna með dálitlum éljum á norðanverðu landinu en yfirleitt bjart sunnan heiða.

Áfram norðlæg átt og frost að tíu stigum
Norðlægar áttir verða ríkjandi á landinu næstu daga og má reikna með norðan og norðaustan átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag. Búist er við éljum fyrir norðan og austan en úrkomulítið sunnan heiða.

Ekkert lát á köldum norðlægum vindi
Ekkert lát er á köldum norðlægum áttum og stefnir í mjög kalda daga yfir helgina, einkum inn til landsins.

Samfellt kuldakast í vændum
Búast má við áframhaldandi kuldakasti fram yfir næstu helgi að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Hann segir kalda loftið sem landinn finnur nú fyrir vera hreinræktað heimskautaloft.

Útlit fyrir einsleitt veður næstu daga
Næstu daga er útlit fyrir fremur einsleitt veður þar sem norðlægar áttir verða ríkjandi og éljagangur fyrir norðan og austan. Þá verður yfirleitt þurrt og lengst af bjart veður annars staðar.

Frost að níu stigum í dag og hvessir á morgun
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri og fremur hægri átt í dag, éljum, einkum norðaustan- og austanlands, en yfirleitt léttskýjuðu sunnan- og vestantil.

Rólegt veður í dag og áfram hæglætis veður á morgun
Veðurstofan gerir ráð fyrir rólegu veðri í dag með hægri, breytilegri átt og þurrt að kalla. Þó verða stöku skúrir sunnan- og vestantil á landinu.

Dálítil væta og hiti að níu stigum
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan kalda eða stinningskalda á norðanverðu landinu í dag, en annars hægari vindi.

Suðlægt átt, bjart og hvasst með fjöllum norðantil
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, fimm til tíu metrum á sekúndu á sunnanverðu landinu, en tíu til fimmtán metrum á sekúndu fyrir norðan og jafnvel hvassara í vinstrengjum við fjöll.

Snýst í suðvestanátt eftir hádegi með skúrum eða slydduéljum
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði suðlæg átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu, í dag með rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu. Reikna má með það verði hægari og bjart að mestu austan- og norðaustantil.

Mild suðlæg átt í kortunum
Spáð er mildri suðlægri átt á landinu í dag, viða fimm til þrettán metrar á sekúndu. Búast má við súld eða dálítilli rigningu á köflum en þurru og björtu veðri á norðaustanverðu landinu.

Stormur á Norðurlandi og varað við grjóthruni
Í dag er spáð sunnan hvassviðri og stormi norðvestantil á andinu, einkum á Snæfellsnesi og Vestfjörðum framan af degi. Vegagerðin varar við grjóthruni og brotholum á vegum.

Stefnir í storm á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum
Landsmenn mega búa sig undir að það bæti hægt í vind í dag og verði sunnan átta til þrettán metrar á sekúndu um hádegi og fimmtán til 23 metrar á sekúndu um miðnætti. Hvassast verður í vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og á Vestfjörðum.

Skúrir í flestum landshlutum og rauðar tölur
Veðurstofan reiknar með vestlægri átt í dag þar sem víða verður strekkingur. Spáð er skúrum í flestum landshlutum en sumsstaðar slydduéljum eða éljum um norðanvert landið og þurrt suðaustanlands.