Víða kaldi og él Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2024 07:10 Frost á landinu verður á bilinu núll til níu stig. Vísir/Vilhelm Grunn og hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg, víða gola eða kaldi og él, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að frost verði á bilinu núll til níu stig, kaldast norðaustantil. „Keimlíkt veður á morgun, en þó ætti heldur að draga úr éljunum. Á miðvikudag er svo útlit fyrir meinlitla norðanátt með éljum fyrir norðan, en þá styttir upp sunnan heiða. Frost um allt land,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og stöku él, en bjart að mestu norðaustan- og austanlands. Frost 0 til 9 stig, kaldast norðaustantil. Á miðvikudag: Norðvestan og norðan 5-13 og dálítil él, en þurrt á Suður- og Suðausturlandi. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á fimmtudag: Breytileg átt 5-13 og dálítil él norðaustantil, annars þurrt að kalla. Kalt í veðri. Vaxandi suðaustanátt eftir hádegi með snjókomu eða slyddu sunnan- og vestanlands, en rigning við ströndina um kvöldið. Hlýnar í veðri. Á föstudag: Vestlæg átt 8-15 og kólnar með éljum, en styttir upp austanlands. Úrkomuminna síðdegis og víða vægt frost, en snýst í vaxandi suðaustanátt um kvöldið. Á laugardag (vetrarsólstöður): Breytileg átt. Rigning eða slydda og hiti 0 til 6 stig, en snjókoma og vægt frost um landið norðanvert. Á sunnudag: Útlit fyrir kalda norðanátt með snjókomu og síðar éljum, en úrkomulítið sunnan heiða.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Sjá meira