Veður

Segir um­ferðar­menninguna oft erfiða á Hellis­heiðinni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Gottlieb segir minni snjó núna en áður. Hann hefur unnið við snjómokstur frá því að hann fékk bílpróf. Fyrst fyrir norðan og svo sunnan.
Gottlieb segir minni snjó núna en áður. Hann hefur unnið við snjómokstur frá því að hann fékk bílpróf. Fyrst fyrir norðan og svo sunnan. Vísir/Vilhelm

Gottlieb Konráðsson segir snjómokstur hafa gengið vel á Hellisheiði í vetur. Það hafi verið lítill snjór. Meiri skafrenningur og hálka. Hann segir umferðarmenninguna rosalega á Hellisheiðinni og ökumenn oft skapa hættulegar aðstæður með því að flýta sér of mikið.

Hann segir fólk oft flýta sér svo mikið en það græði lítið á því. Hann segir flesta keyra mjög vel og vera þolinmóða en það séu allt of margir sem séu það ekki. Gottlieb ræddi umferðarmenninguna á Hellisheiðinni í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 

Gottlieb hefur mokað á Hellisheiði í tvö ár. Áður fyrr mokaði hann fyrir norðan. Þar er hann vanur meiri snjór en hann segir magnið miklu minna fyrir norðan og sunnan en var áður.

„Hún er rosaleg á köflum,“ segir Gottlieb um umferðarmenninguna á Hellisheiðinni. Það séu margir góðir í umferðinni en inn á milli sé fólk sem sé „alveg úti á túni“.

Hann segir frá því að um daginn hafi vinur hans verið að moka og verið með hliðarvænginn úti. Einhver hafi ætlað fram úr en hann hafi í staðinn hreinsað hliðina af bílnum. Þá keyri fólk venjulega út af þegar það er að taka fram úr.

Lenda í skaflinum

„Þeir flýta sér svo mikið að þeir fara langt út af, út í skaflinn,“ segir hann.

Hann segir með ólíkindum hvernig sumir haga sér í umferðinni.

Það séu stundum tvö eða þrjú snjómoksturstæki að moka í einu svo allar akreinar séu í lagi. Ökumenn reyni stundum að troða sér fram úr á milli þeirra en komist yfirleitt ekkert lengra en á milli þeirra.

Hann segir þetta gilda um bæði ferðamenn og Íslendinga en yfirleitt sé hægt að þekkja ferðamennina á því að þeir setja neyðarljósin á í byljum. Gottlieb segir fólk í mesta lagi spara sér fimm til tíu mínútur með því að taka fram úr og keyra of hratt.


Tengdar fréttir

Snjóþekja og skafrenningur gætu sett strik í reikninginn

Töluverð snjókoma blasti við íbúum höfuðborgarsvæðisins í morgun en viðbúið er að þar hætti að snjóa þegar líða tekur á morguninn. Veðurstofa hvetur vegfarendur til að kynna sér fréttir af færð og veðri áður en lagt er af stað í ferðalög en nýfallin snjór og hvassviðri gæti til að mynda valdið skafrenningi og lélegu skyggni, einkum í kvöld og í fyrramálið. Hætt er við að vegir teppist, einkum á Snæfellsnesi og í Dölum og víðar á Vesturlandi.

Snjómokstur hófst klukkan fjögur í nótt

Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu í Reykjavíkurborg segir snjómokstur hafa gengið vel í morgun. Færðin sé tiltölulega góð í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×