Neytendur
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 23 ›
Rándýr samloka á Hvolsvelli Dýrtíðin á ferðamannaslóð er farin að segja til sín. Teitur Þorkelsson leiðsögumanni brá í brún þegar hann fékk til sín strimilinn eftir að hafa greitt fyrir samloku og komst að því að hún kostaði 1.045 krónur. Neytendur 22.5.2023 10:56
Skammaðist sín fyrir að vera Íslendingur Hundrað og sjötíu farþegar sátu fastir á flugvellinum í Glasgow í hátt í fjörutíu tíma, á meðan þeir biðu þess að komast um borð í vél til Íslands. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan tvö í nótt. Ástæða seinkunarinnar var bilun í vélinni. Þegar varahlutur barst reyndist hann síðan ónothæfur. Einn farþega segist hafa skammast sín fyrir að vera Íslendingur. Neytendur 20.5.2023 23:21
Skamma Olís vegna HM-afláttar sem gilti bara á sumum ÓB-stöðvum Neytendastofa hefur slegið á fingur Olís vegna auglýsinga um afslátt á eldsneyti á völdum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Félagið auglýsti þar afslátt af eldsneyti, sem tengdist úrslitum íslenska landsliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Svíþjóð í janúar síðastliðinn, án þess að tekið var fram að afslátturinn gilti ekki á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Hefur félaginu verið bannað að viðhafa slíka viðskiptahætti. Neytendur 16.5.2023 07:37
Fundu hæsta verðið oftast í Iceland og Heimkaupum Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland og Heimkaupum í nýrri verðlagskönnun sem Alþýðusambandið framkvæmdi þann 9. maí síðastliðinn. Bónus var oftast með lægsta verðið en næst oftast var Fjarðarkaup. Neytendur 12.5.2023 19:19
Sælgætið og snakkið oftast ódýrast í Fjarðarkaupum Bónus var ódýrasta verslunin í matvörukönnun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi þann 9. maí. Verðið í Bónus var að meðaltali 4% frá lægsta verði, og bauð verslunin upp á lægsta verðið í 76 tilfellum. Krónan var með næst lægsta meðalverðið sem var 10% frá lægsta verði. Neytendur 12.5.2023 14:36
Litlar málmflísar fundust í Haribo sælgæti Litlar málmflísar fundust í sælgæti frá Haribo og hefur Matvælastofnun því varað við neyslu á vissum framleiðsludagsetningum af Haribo sælgæti. Fyrirtækið Danól flytur vörurnar inn og hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði. Neytendur 11.5.2023 15:29
Ilva var heimilt að kalla útsölu á Korputorgi „rýmingarsölu“ Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Neytendastofu frá síðasta sumri vegna kynninga Ilva um rýmingarsölu. Neytendur 11.5.2023 07:55
Maki krókinn hjá bönkunum á kostnað heimila og neytenda Stóru viðskiptabankarnir þrír högnuðust um rúmlega tuttugu milljarða á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Formaður Neytendasamtakanna segir að um gífurlegan hagnað sé að ræða. Hagnaðurinn sé drifinn áfram af stýrivaxtahækkunum Seðlabankans sem bitna einungis á lántakendum. Neytendur 5.5.2023 11:55
Lækka verð á timbri um heil tíu prósent Þau tíðindi berast nú frá Húsasmiðjunni að þar á bæ hafa menn nú lækkað verð á timbri og pallaefni um heil tíu prósent. Neytendur 4.5.2023 12:16
Séðir ættu að „geta komið sjö, átta páskaeggjum í pokann“ á lagersölu „Ef menn eru séðir þá ætti að vera hægt að ná einhverjum sjö eða átta stórum páskaeggjum ofan í pokann.“ Neytendur 3.5.2023 09:46
Bæta þurfi upprunamerkingu á matvöru Forsætisráðherra segir ekki boðlegt að upprunamerkingar á matvörum eins og kjöti séu ekki réttar í íslenskum verslunum. Hún segir að það þurfi samstillt átak til að taka á málinu. Neytendur 26.4.2023 21:03
Eldri hjón fengu ekki að innrita sig þótt þrír tímar væru í flugið Eldri hjón fá engar bætur frá Wizz air eftir að hafa misst af flugi með flugfélaginu frá Keflavík til Vínarborgar í apríl í fyrra. Þau fengu ekki að innrita sig þótt tæplega þrjár klukkustundir væru í auglýst flugtak. Neytendur 26.4.2023 11:57
Ódýr aðferð til að búa til birgðir fyrir nýju kennitöluna Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda furðar sig á lagaákvæði sem hann segir auðvelda fyrirsvarsmönnum fyrirtækja að færa eignir á nýtt fyrirtæki eftir gjaldþrot. Hann segist hafa kallað eftir breytingum í fleiri ár og veltir því upp hvort verið sé að gera fjármálafyrirtækjum hærra undir höfði á kostnað smærri atvinnurekenda. Neytendur 22.4.2023 08:01
Neytendastofa slær á fingur Origo Neytendastofa hefur bannað Origo hf. að nota fullyrðinguna „besta noise cancellation í heimi“ í markaðsefni um Bose heyrnartól sem fyrirtækið selur. Stofnunin taldi gögn sem Origo lagði fram sér til stuðnings ekki ná að sanna jafn afdráttarlausa fullyrðingu og þá sem um ræðir. Neytendur 21.4.2023 23:31
Milljarðatjón ár hvert fyrir birgja og neytendur Kona sem flytur inn og framleiðir lífrænar vörur hefur tapað þrjú hundruð þúsund krónum á því að rekstraraðili verslunarinnar Frú Lauga er farinn í gjaldþrot. Hún gagnrýnir framkvæmd og regluverk í kringum gjaldþrot verslana og segir neytendur tapa milljörðum á ári vegna þeirra. Neytendur 20.4.2023 15:36
Spá því að verðbólgan lækki um 0,3 prósentustig Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan lækki úr 9,8 prósentum í 9,5 prósent í aprílmánuði. Spáin næstu mánuði gerir ráð fyrir því að verðbólga lækki og fari niður fyrir átta prósent í júlí. Neytendur 19.4.2023 10:37
„Allt að 70% afsláttur“ reyndist iðulega einungis fimm prósent Dekkja- og bílaþjónustan ehf., rekstraraðili dekk1.is, hefur verið sektað vegna viðskiptahátta sinna. Auglýstur var allt að 70 prósent afsláttur í „Cyberviku“ en einungis var hægt að finna dekk á mun lægri afslætti, iðulega einungis fimm prósenta. Þarf félagið að greiða 200 þúsund króna sekt. Neytendur 17.4.2023 11:53
Tugprósenta munur á tannlæknaþjónustu og gjaldskrár ekki alltaf sýnilegar Tugprósenta munur er á verði tannlæknaþjónustu og ekki eru allar gjaldskrár aðgengilegar á netinu. Þetta kemur fram í óformlegri verðkönnun Vísis hjá tuttugu tannlæknastofum. Neytendur 15.4.2023 07:01
Þrautin þyngri að verða sér úti um grautinn Grjónagrautur frá Mjólkursamsölunni (MS) hefur verið illfáanlegur á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Rekja má þetta til þess að MS fékk ranga tegund af grjónum í síðustu sendingu frá birgjanum. Verið er að vinna í að fá réttu grjónin aftur. Neytendur 14.4.2023 14:54
Deildu um leigu á gistiheimili vegna brúðkaups í Svarfaðardal Héraðsdómur Reykjaness hefur leitt til lykta deilu rekstrarfélags gistiheimilisins Húsabakka í Svarfaðardal á Tröllaskaga og manns um leigu á herbergjum í tengslum við brúðkaup sem haldið var í ágúst síðastliðinn. Bæði var deilt var um nýtingu á hótelherbergjum, afslætti og að ekki hafi allir gestir fengið þá gistingu sem lofað var. Neytendur 13.4.2023 10:01
Fær endurgreitt fyrir ellinöðru sem hann var ófær um að nota Níræður karlmaður fær endurgreitt fyrir ellinöðru sem hann keypti frá fyrirtæki sem selur rafdrifin fjörhjól til eldri borgara. Daginn eftir kaupin mundi hann ekki eftir þeim en hann er með öllu ófær um að stjórna því. Að mati kærunefndar krafðist maðurinn endurgreiðslu innan þess ramma sem leyfilegt er. Neytendur 12.4.2023 21:21
Aflýsti siglingaferð til Grænlands en endurgreiddi ekki staðfestingargjaldið Ferðaþjónustufyrirtæki hefur verið gert að endurgreiða um milljón króna staðfestingargjald til viðskiptavinar vegna tíu daga siglingaferðar til Grænlands sem fara átti í í ágúst 2022 en fyrirtækið aflýsti með skömmum fyrirvara með vísun í heimsfaraldur kórónuveiru. Neytendur 12.4.2023 07:49
Segja íslensku olíufélögin hafa gert þegjandi samráð um að lækka ekki verð Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir forstjóra Skeljungs reyna að afvegaleiða umræðu um óeðlilega hátt bensínverð hér á landi. Félagið segir að íslensku olíufélögin hafi með sér þegjandi samráð um að lækka ekki útsöluverð á bensíni og dísilolíu þrátt fyrir lækkandi verð eldsneytis á heimsmarkaði. Neytendur 11.4.2023 17:28
Fantamikill Fanta-skortur tilkominn vegna nýs vélabúnaðar Neytendur hafa tekið eftir því undanfarið að Fanta og Coke Light hafa verið illfáanleg í verslunum. Ástæðan er hik á framleiðslu drykkjanna í kjölfar fjárfestingar Coca-Cola á nýjum vélabúnaði hérlendis. Markaðsstjóri segir fyrirtækið reyna að anna eftirspurn en þurfi líka að forgangsraða. Neytendur 11.4.2023 11:35
60 prósenta verðmunur á nautalund Bónus var með lægsta meðalverð á matvöru í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 28. mars. Neytendur 30.3.2023 22:23
Allt að 41 prósent verðmunur á páskaeggjum Bónus var oftast með lægsta verð á páskaeggjum í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var þann 28. mars, í 28 af 32 tilvikum. Neytendur 30.3.2023 17:27
Innkalla pönnukökublöndu vegna aðskotaefna Matvælastofnun vill vara við einni framleiðslulotu af Amisa lífrænni pönnukökublöndu sem fyrirtækið Heilsa ehf. flytur inn vegna aðskotaefna (trópanbeiskjuefni; atrópín og skópalamín) sem greindust yfir mörkum. Neytendur 29.3.2023 18:07
Mánaðarleg greiðslubyrði gæti brátt hækkað um 30 þúsund krónur Mánaðargreiðslubyrði á 40 milljóna króna óverðtryggðu láni gæti hækkað um 30 þúsund krónur á einu bretti ef bankarnir hækka vexti í takt við 100 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Lánamarkaðurinn hefur tekið hröðum breytingum samhliða tólf stýrivaxtahækkunum í röð. Neytendur 27.3.2023 22:01
Leggja slagorðinu þar sem æ fleiri skilja ekki til hvers sé vísað Sláturfélag Suðurlands hefur á undanförnum vikum kynnt til sögunnar nýtt útlit á 1944-skyndiréttunum og samhliða breytingunum verður hætt við notast við slagorð réttanna – „Matur fyrir sjálfstæða Íslendinga“. Forstjóri segir að sífellt fleiri skilji ekki vísun slagorðsins til ártalsins – það er réttirnir dragi nafn sitt af ártalinu þegar Íslendingar lýstu yfir sjálfstæði frá Danmörku. Neytendur 26.3.2023 10:00
Paprika orðin tímabundin lúxusvara Fordæmalaust verð á papriku, sem hefur fjórfaldast undanfarnar vikur, hefur valdið neytendum sérstöku hugarangri. Forstjóri heildsölunnar Innnes segist aldrei hafa séð aðra eins hækkun - en nú horfi til betri vegar í paprikumálum. Neytendur 25.3.2023 09:01