Tekjur

Fréttamynd

Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, er efst á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu sveitarstjórnarmenn á síðasta ári. Hún var þá með rúmlega þrjár og hálfa milljón króna í laun á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Þessir voru tekju­hæstu læknarnir og tann­læknarnir í fyrra

Röntgenlæknirinn Halldór Benediktsson trónir á toppi listans yfir tekjuhæstu lækna og tannlækna landsins með ríflega sex milljónir á mánuði árið 2025. Fast á hæla honum koma svo skurðlæknirinn Jón H. H. Sen og yfirlæknirinn Súsanna B. Ástvaldsdóttir með hvor sínar tæplega sex milljónirnar á mánuði í fyrra. Ofarlega á listanum er að finna heimilslækna, þyrlulækna, geðlækna og svæfingalækna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tekju­hæstu lista­mennirnir árið 2025

Atli Geir Grétarsson leikmyndahönnuður er langefstur á lista yfir tekjuhæstu listamenn landsins. Næst á eftir honum koma söngkonan Sigga Beinteinsdóttir og leikarinn Örn Árnason. Ofarlega á blaði eru einnig leikarinn Ólafur Darri, leikstjórinn Baltasar Kormákur, Jökull í Kaleo og skemmtikrafturinn Steindi jr.

Lífið
Fréttamynd

Tíu af tuttugu efstu em­bættis­mönnunum hjá orku­fyrir­tæki

Tryggvi Þór Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Rarik til tveggja áratuga, trónir á toppi listans yfir launahæstu embættismenn, forstjóra og starfsmenn hins opinbera samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Samkvæmt blaðinu var hann með um 5,8 milljónir í laun á mánuði í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Árni skattakóngur annað árið í röð

Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var launahæstur Íslendinga árið 2025, með rúmar 46 milljónir króna á mánuði. Hann var einnig tekjuhæstur í fyrra en var þá með ívið lægri laun, eða rúmar 40 milljónir á mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þetta fær Hildur í laun

Heildarlaun Hildar Björnsdóttur borgarstjóra eru rétt tæpar þrjár milljónir króna á mánuði samkvæmt ráðningarsamningi. Eins og áður hefur borgarstjóri embættisbifreið til umráða og á rétt á biðlaunum til sex mánaða.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að frítekjumörk ör­orku­líf­eyris verði endur­skoðuð

Viðskiptaráð telur að bæta ætti hvata innan örorkulífeyriskerfisns fyrir endurmat og endurhæfingu. Viðskiptaráð telur að endurskoða ætti frítekjumörk og samspil örorkutengdra bóta svo skýrari hvati sé til þátttöku á vinnumarkaði. Fólk eigi ekki að vera betur fjárhagslega sett á bótum samanborið við að vera á vinnumarkaði. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fé­lögin þeirra högnuðust mest

Félög Víkings Heiðars Ólafssonar, Hjörvars Hafliðasonar, Ara Eldjárn og fleiri lista- og fjölmiðlamanna eru meðal samlags- og sameignarfélaga sem skiluðu tugmilljóna króna hagnaði í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ör­yrkjar í hluta­starfi oft tekju­hærri en fólk í fullu starfi

Með nýju örorkulífeyriskerfi gætu ráðstöfunartekjur einstaklinga á hlutaörorku í mörgum tilfellum orðið hærri en hjá einstaklingi í fullu starfi á sömu launum. Læknir segir ljóst að ef frumvörp um greiðslur TR til örorkulífeyrisþega nái fram að ganga verði heildartekjur öryrkja hærri en laun einstaklinga í fullu starfi. 

Innlent
Fréttamynd

Það er heldur betur vit­laust gefið á Ís­landi

Nú er kominn sá tími ársins að tekjublöðin birta yfirlit um misskiptingu tekna á Íslandi. Tvö blöð hafa verið gefin út með mismunandi nálgun á þær tekjur sem teknar eru til hliðsjónar. Tekjublað Frjálsrar verslunar tekur mið af útsvarsgreiðslum og er því að taka fyrir launatekjur þar sem staðgreiðsla skatta er greidd.

Skoðun
Fréttamynd

Leysti út lögmannsréttindin: Fer í sjálf­stæðan rekstur en heldur eftirlaununum

Helgi Magnús Gunnarsson, sem lét nýlega af embætti vararíkissaksóknara, hefur fengið lögmannsréttindin sín afhent á ný eftir að þau höfðu legið inni í 24 ár. Hann stefnir á sjálfstæðan rekstur sem lögmaður en mögulegar tekjur sem hann hefur af honum munu engin áhrif hafa á eftirlaun hans hjá ríkinu. Níu ár eru í að hann nái eftirlaunaaldri.

Innlent
Fréttamynd

Samherjahjónin fyrr­verandi langtekjuhæst

Hjónin fyrrverandi Þorsteinn Már Baldvinsson og Helga S. Guðmundsdóttir, fyrrverandi eigendur Samherja, voru langtekjuhæst Íslendinga í fyrra. Þorsteinn hafði heildartekjur upp á 4,7 milljarða króna og Helga upp á 4,56 milljarða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Herra Hnetu­smjör tekjuhæstur í Iceguys

Tónlistarmennirnir í karlakvintettnum Iceguys juku flestir mánaðartekjur sínar milli ára samkvæmt Tekjublaðinu sem kom út í dag. Líklega þéna þeir þó meira í gegnum fyrirtæki sín en það sem fram kemur í blaðinu, en samkvæmt því mun Herra Hnetusmjör hafa verið tekjuhæstur í hópnum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sunn­eva veltir Evu Ruzu úr sessi

Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæst íslenskra áhrifavalda í ár og hefur hún þar með velt Evu Ruzu Miljevic úr efsta sætinu. Á eftir þeim koma Birgitta Líf Björnsdóttir, Páll Orri Pálsson og Reynir Bergmann.

Lífið
Fréttamynd

Ronaldo langtekjuhæsti í­þrótta­maður heims

Þriðja árið í röð er knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo tekjuhæsti íþróttamaður heims, samkvæmt úttekt tímaritsins Forbes, með næstum því tvöfalt hærri tekjur en næsti maður á listanum, Steph Curry.

Fótbolti