Árni skattakóngur annað árið í röð Árni Sæberg skrifar 18. ágúst 2026 12:54 Árni Sigurðsson er aðstoðarforstjóri JBT Marels. Marel Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var launahæstur Íslendinga árið 2025, með rúmar 46 milljónir króna á mánuði. Hann var einnig tekjuhæstur í fyrra en var þá með ívið lægri laun, eða rúmar 40 milljónir á mánuði. Þetta segir á vef Viðskiptablaðsins og Frjálsrar verslunar, en tekjublað þess síðarnefnda kom út í dag. Rétt er að árétta að þar er um allar útsvarsskyldar tekjur að ræða og þær þurfa ekki að endurspegla föst laun Árna. Þá má nefna að fjármagnstekjuskattur er tekinn út fyrir sviga í samantekt Frjálsrar verslunar og því er ekki loku fyrir það skotið að einhver annar en Árni hafi lagt mest til samneyslunnar í fyrra. Líkt og Vísir greindi frá í fyrra er Árni ásamt fjölskyldu sinni fluttur til Chicago í Bandaríkjunum, þar sem höfuðstöðvar JBT Marel eru. Miðað við útsvarsgreiðslur síðasta árs má áætla að hann hafi þrátt fyrir það þegið laun hér á landi. Samkvæmt Tekjublaðinu var Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, næstlaunahæstur Íslendinga í fyrra, með 39,5 milljónir króna á mánuði. Þá hafi Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, verið þriðji launahæstur með 33,5 milljónir króna á mánuði.
Þetta segir á vef Viðskiptablaðsins og Frjálsrar verslunar, en tekjublað þess síðarnefnda kom út í dag. Rétt er að árétta að þar er um allar útsvarsskyldar tekjur að ræða og þær þurfa ekki að endurspegla föst laun Árna. Þá má nefna að fjármagnstekjuskattur er tekinn út fyrir sviga í samantekt Frjálsrar verslunar og því er ekki loku fyrir það skotið að einhver annar en Árni hafi lagt mest til samneyslunnar í fyrra. Líkt og Vísir greindi frá í fyrra er Árni ásamt fjölskyldu sinni fluttur til Chicago í Bandaríkjunum, þar sem höfuðstöðvar JBT Marel eru. Miðað við útsvarsgreiðslur síðasta árs má áætla að hann hafi þrátt fyrir það þegið laun hér á landi. Samkvæmt Tekjublaðinu var Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, næstlaunahæstur Íslendinga í fyrra, með 39,5 milljónir króna á mánuði. Þá hafi Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, verið þriðji launahæstur með 33,5 milljónir króna á mánuði. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur JBT Marel Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Sjá meira