
Brexit

Þingið vill að útgöngu úr ESB verði frestað
Breska þingið samþykkti tillögu um að fresta útgöngu úr Evrópusambandinu til að minnsta kosti 30. júní næstkomandi til að freista þess að koma sér saman um samning. Dagurinn var almennt góður fyrir Theresu May forsætisráðherra.

Mistókst naumlega að taka við stjórn Brexit-skútunnar
Bresku stjórnarandstöðunni mistókst naumlega að fá í gegn tillögu um að þingið myndi taka stjórn á viðræðunum um úrgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

Ætlar að hvetja Evrópuríki til að veita Bretum frest
Breski forsætisráðherrann er sagður ætla að leggja útgöngusamning sinn fyrir þingið í þriðja skipti í næstu viku. Þingmenn hafa hafnað honum með afgerandi hætti í tvígang nú þegar.

Þingið bregður enn og aftur fæti fyrir May
Breskir þingmenn ákváðu með naumum meirihluta að útiloka það að Bretlandi gangi úr Evrópusambandinu án samnings.

Bretar verði sjálfir að leysa úr Brexit-þráteflinu
Aðalsamningamaður ESB telur hættuna á óskipulegri útgöngu Breta úr sambandinu aldrei hafa verið meiri en nú eftir að útgöngusamningur var felldur á breska þinginu í gærkvöldi.

Enn ein atkvæðagreiðslan um Brexit á breska þinginu
Þingmenn á breska þinginu munu síðar í dag greiða atkvæði um hvort koma eigi í veg fyrir að Bretar yfirgefi Evrópusambandið án nokkurs samnings, eftir að þeir höfnuðu fyrirliggjandi útgöngusamningi Theresu May forsætisráðherra í gærkvöldi.

Brexit-samningur May felldur aftur
Atkvæðagreiðslan var mjög afgerandi en 391 þingmenn greiddu atkvæði gegn samningnum en 242 greiddu atkvæði með honum.

May varar við því að ekkert verði af Brexit
Flest bendir til þess að útgönusamningur breska forsætisráðherrans verði felldur öðru sinni í kvöld.

Lögfræðiálit áfall fyrir útgöngusamning May
Lagaleg áhætta Bretlands með nýrri útgáfu útgöngusamningsins er óbreytt að mati æðsta lögfræðilega ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar.

Greiða atkvæði um útgöngusamning May í dag
Atkvæðagreiðslan fer fram eftir klukkan 19:00 í kvöld.

Hafa komist að samkomulagi um Brexit, aftur
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur gert bindandi samkomulag við forkólfa Evrópusambandsins varðandi landamæri Írlands og Norður-Írlands í kjölfar Brexit, úrgöngu Bretlands úr sambandinu.

Breska ríkisstjórnin sögð hafa hafnað nýjum samningi um helgina
Evrópusambandið var tilbúið að gefa bresku ríkisstjórninni mögulega á að draga sig einhliða frá írsku baktryggingunni. Ráðherrar Theresu May höfnuðu þeirri tillögu.

Ekki meirihluti fyrir annarri Brexit-þjóðaratkvæðagreiðslu
Ef marka má opinber ummæli breskra þingmanna er ekki meirihluti fyrir því að kjósa aftur um útgönguna úr Evrópusambandinu.

Ekkert þokast í Brexit-viðræðum
Ekkert þokast í viðræðum Breta og Evrópusambandsins hvað varðar Brexit en á morgun eiga þingmenn á breska þinginu að kjósa á ný um samning Theresu May forsætisráðherra um útgöngu úr sambandinu.

Norður-Írar vilja mildustu útgáfu Brexit
Skoðanakönnun leiðir í ljós að tveir af hverjum þremur Norður-Írum vilja að Bretland verði áfram hluti af innri markaði ESB og tollabandalagi frekar en að sett verði upp landamæraeftirlit á Írlandi.

Líklegt að Brexit verði frestað hafni þingmenn samningi
Fjármálaráðherra Bretlands segist viss um að breska þingið muni hafna því að ganga úr Evrópusambandinu án útgöngusamnings.

Nálgast samkomulag um vöruviðskipti eftir Brexit
Íslensk og Bresk stjórnvöld eru að nálgast samkomulag um vöruviðskipti ríkjanna eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu að sögn sendiherra Bretlands á Íslandi.

Búa sig undir allar mögulegar sviðsmyndir vegna Brexit
Það væri einfaldara fyrir Ísland ef Bretar verða búnir að ná samningi við Evróðusambandið áður en þeir ganga úr sambandinu að sögn utanríkisráðherra.

Hundruð þúsund Breta fá dvalarleyfi á Spáni ef Brexit fer í hart
Spænska ríkisstjórnin leggur fram viðlagaáætlun ef Bretar ganga úr Evrópusambandinu án sambands.

Corbyn lýsir stuðningi við aðra þjóðaratkvæðagreiðslu
Stuðningurinn sem leiðtogi Verkamannaflokkurinn lýsti við aðra þjóðaratkvæðagreiðslu var þó ekki afdráttarlaus. Sagði hann flokkinn einnig munu berjast fyrir þingkosningum eða útgöngu á þeirra forsendum.

Fundir May í Brussel sagðir innihaldslausir
Breski forsætisráðherrann hefur verið sakaður um að tefja tímann fram að útgöngu til að neyða þingmenn til að greiða atkvæði með útgöngusamningi hennar við ESB.

Gætu stöðvað viðskipti með fasteignasjóði
Fitch Rating varar við því að fasteignasjóðir í Bretlandi gætu stöðvað viðskipti með bréf sín á næstu vikum vegna óróleika í tengslum við Brexit.

May býður atkvæðagreiðslu um frestun Brexit
Breska þingið greiðir atkvæði um útgöngusamning fyrir 12. mars. Verði hann felldur verða þingmenn fyrst spurðir hvort þeir vilji ganga út án samnings eða fresta útgöngunni.

Forsætisráðherra hefur áhyggjur af Brexit án samnings
Í viðtali við BBC Skotland segist Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telja að Skotland geti vel verið sjálfstætt en að það sé ekki hennar að ákveða það.

Verkamannaflokkurinn mun styðja aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, hyggst tilkynna þingmönnum flokksins í kvöld að flokkurinn muni styðja að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um Brexit fari fram.

Merkel og May ræddu um að fresta Brexit
Forsætisráðherra Bretland og kanslari Þýskalands hittust á leiðtogafundi ESB og Arababandalagsins í Egyptalandi.

Atkvæðagreiðslu þingsins um Brexit frestað
Bretland mun ganga út úr Evrópusambandinu 29. mars.

Vilja fresta útgöngu Bretlands úr ESB náist samningar ekki
Ráðherrar í ríkisstjórn Theresu May telja betra að fresta útgöngu en að hrynja út úr ESB án samnings.

Þrír stjórnarþingmenn ganga til liðs við klofningshópinn
Þrír stjórnarþingmenn breska Íhaldsflokksins hafa sagt sig úr flokknum og gengið til liðs við nýjan hóp þingmanna sem sögðu sig úr Verkamannaflokknum í vikunni.

Klofningur Verkamannaflokksins hryggir Corbyn
Sjö breskir þingmenn tilkynntu í gær að þeir hefðu sagt sig úr Verkamannaflokknum og myndu í staðinn sitja á þingi sem bandalag óháðra þingmanna. Í hópnum eru til að mynda fjórir skuggaráðherrar.