Skoðun: Alþingiskosningar 2024

Vanvirðing við einkaframtakið og verðmætasköpun
Við þekkjum flest öll harðduglegt vinnandi fólk í iðngreinum: Gumma pípara, Sigga smið eða Önnu hársnyrti. Þau hafa tekið mikla áhættu og ákveðið að fara í eigin rekstur þar sem mánaðarlegur launatékki er ekki tryggður.

Samfylkingin ætlar ekki að hækka tekjuskatt
Það er sama hvar maður kemur að tali við kjósendur um hvaða mál liggja þeim á hjarta í komandi kosningum. Öll nefna húsnæðismál, efnahagsmál og heilbrigðismál. Það er samhljóma þeim samtölum sem Samfylkingin hefur átt við fólkið í landinu á liðnum tveimur árum.

Hvað eiga eldri borgarar að kjósa?
Almennt fá málefni eldri borgara takmarkaða athygli í stjórnmálaumræðunni nema þegar kemur að kosningum. Þegar frambjóðendur eru komnir í kosningaham eru kjör og aðstæður aldraðra dregin fram í dagsljósið og flokkarnir keppast við að benda á það óréttlæti sem þessi hópur er beittur.

Við erum að ná árangri
Íslensku menntaverðlaunin heiðra þau sem eru leiðandi í íslensku skólasamfélagi. Einstökum fyrirmyndum er veitt sú viðurkenning sem þau eiga skilið og mikilvægu framlagi þeirra til menntamála á Íslandi er fagnað.

Verðum að rannsaka hvað gerðist í Covid
Lýðræðisflokkurinn mun beita sér fyrir því að skipuð verði óháð rannsóknarnefnd til að rannsaka viðbrögð stjórnvalda þegar Covidflensan reið hér yfir.

Ég og amma mín sem er dáin
Ég átti einu sinni ömmu. Sonur minn kallar hana „ömmu mína sem er dáin“ sem hún vissulega er. Hún dó áður en hann fæddist en það er glæsileg mynd af henni á heimili okkar og hún er stundum rædd.

Spegill eða stjórntæki? Hlutverk skoðanakannana og almenningsálits í stefnumótun og stjórnmálum
Skoðanakannanir gegna lykilhlutverki í íslenskum stjórnmálum. Þær virka sem spegill sem endurspeglar vilja og viðhorf kjósenda en eru einnig notaðar sem áhrifaríkt stjórntæki fyrir stjórnmálaflokka sem vilja aðlaga stefnu sína að síbreytilegum aðstæðum og væntingum almennings.

Tryggjum frelsi til handfæraveiða – eflum sjávarbyggðirnar
Við vitum að krókaveiði strandveiðibáta ógnar ekki fiskistofnum. Skortir því rök fyrir takmörkun á atvinnufrelsi íbúa sjávarbyggðanna til handfæraveiða.

Verja þarf friðinn
Formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Svandís Svavarsdóttir, lýsti því yfir á dögunum í þættinum Spursmál á mbl.is að öryggi Íslands væri betur tryggt utan NATO en innan varnarbandalagsins og kallaði eftir úrsögn landsins úr því. Ísland ætti að vera friðsælt ríki og rödd friðar í heiminum. Vafalaust geta flestir tekið undir þetta síðastnefnda en til þess að svo megi vera þarf hins vegar að verja friðinn.

Á að banna rauða jólasveininn?
Það er virkilega ánægjulegt að þrumuræða Sigurðar Inga í leiðtogaumræðum á RÚV hafi vakið fólk til umhugsunar um hvert umræðan um útlendingamál er komin, þar sem öllu er blandað saman.

Píratar hafa metnaðarfyllstu umhverfis- og loftslagsstefnuna
Náttúruvernd er loftslagsvernd er eitt að slagorðum Landverndar – sem ég tek að láni. Heilbrigð náttúra er undirstaða velsældar alls mannkynsins. Án heilbrigðar náttúru er ekkert líf á Jörðinni okkar, hvorki menn né dýr - því heilbrigð vistkerfi eru lungu Jarðarinnar, binda kolefni og framleiða það súrefni sem við öndum að okkur.

Umræða á villigötum
Það er mikið umhugsunarefni nú í aðdraganda kosninga hvernig umræðan um útflutningsgreinar landsins hefur þróast. Því miður virðist hugmyndaflug frambjóðenda, þegar kemur að þessum mikilvægu greinum, einskorðast við tillögur að nýjum álögum og hækkanir á þeim sköttum og gjöldum sem fyrir eru.

Treystir þú konum?
Orðatiltækið „enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ á sjaldan jafn vel við og þegar eitthvað sem við lítum á sem sjálfsögð réttindi er hrifsað af okkur. Á þessum tímum finna konur um allan heim fyrir ótta við að missa réttindi yfir eigin líkama, af ærinni ástæðu.

Eigum við ekki bara að klára þetta
Við sem foreldrar eigum það til að leita leiða til þess að gera fleiri ábyrga fyrir börnunum okkar. Sem er eðlilegt, því það þarf heilt þorp til þess að ala upp barn. Foreldrar þurfa að nýta sér alls konar þjónustu í uppeldi barna og sem foreldri vil ég að þessi þjónusta sé hnökralaus.

Löggilding iðngreina stuðlar að auknum gæðum og öryggi
Á undanförnum árum hafa ýmsir stjórnmálaflokkar sótt hart að réttindum launafólks á fjölmörgum sviðum. Svo virðist sem staða launafólks megi ekki vera sterk eða réttindi góð.

Draumalandið
„Því þar er allt sem ann ég, það er mitt draumaland,“ segir í laginu góða. Ég er í hópi Íslendinga sem finn brjóstið tifa af ættjarðarást frá morgni til kvölds.

Að vera ung kona á Íslandi árið 2024
Þrátt fyrir að vera einungis tuttugu og eins árs gömul hef ég upplifað óþægilegar og óþolandi aðstæður sem munu fylgja mér út lífið. Í skóla er okkur kennt að Ísland sé besta ríki heims fyrir konur; hér sé jafnrétti í námi og vinnu, konur njóti frelsis og tækifæra sem eru ekki sjálfsögð í mörgum öðrum löndum.

Hvaða aukna aðgengi, Willum Þór?
Silfrið var á dagskrá sjónvarpsins í vikunni. Einn af gestunum var Davíð Þór Jónsson, prestur og frambjóðandi sósíalista. Meðal umræðuefna voru heilbrigðismálin og rak þar Davíð hvernig heilbrigðiskerfið hefur verið holað að innan undanfarna áratugi.

Hvers vegna skortir hjúkrunarrými á Íslandi?
Þetta er spurning sem er auðsvarað. Svarið er að ríkisstjórnir undanfarinna áratuga hafa ekki haft áhuga á að byggja hjúkrunarrými í samræmi við fyrirséða öldrun þjóðarinnar sem jafnframt felur í sér að fleiri þurfa pláss á hjúkrunarheimili en áður.

Þegar Vestfjörðum gengur vel, gengur Íslandi vel
Ég hef stundum haft á orði þegar ég er þakklátur fyrir það stórfenglega samfélag sem ég fer fyrir hér í Bolungarvík að ég standi á herðum þúsund ára vinnusemi fólksins sem kom á undan mér.

Grasker mannréttinda á degi hinna framliðnu
Af hverju hræðast Bjarni og Simmi mannréttindi svona mikið? Það var sérkennilegt sjónarspil þegar Bjarni stóð og skar í grasker á meðan hann ávarpaði þjóðina, líkt og graskersins helsta erindi væri að vara okkur við vinstristjórn, sem hann leiddi að væri fjandafylking lýðveldisins.

Sköpun er efnahagsmál: Tími fyrir öðruvísi nálgun
Það er oft sagt að sköpun sé hjarta samfélagsins. Við þekkjum öll innblásturinn sem listir veita okkur - hvort heldur sem er í gegn um tónlist, myndlist, dans, ljóð, húmor, … - allt gefur þetta lífinu lit.

Ungt fólk er að missa trúna á stjórnmálum – og um leið á framtíðinni
Ungt fólk er að missa trúna á stjórnmálum – og um leið á framtíðinni. Þetta er afleiðing sjö ára stjórnartíðar ríkisstjórnar sem hefur ítrekað brugðist ungu fólki í landinu og látið hjá líða að grípa til raunhæfra aðgerða til að bæta lífsskilyrði þess.

Fræðsluskylda í stað skólaskyldu
Við viljum öll að börnin okkar læri að hugsa sjálfstætt og geti nýtt hæfileika sína og áhugasvið til að blómstra. Við hljótum að óska þess að þau siðferðislegu gildi sem þau fá í veganesti muni leiða þau áfram til blessunar og hamingju.

Ríkisstjórn með útgjaldablæti er vandamál fyrir fólkið í landinu
Þrátt fyrir ákall um alvöru hagstjórn helst leikstíll ríkisstjórnarinnar óbreyttur alveg fram á lokadag.

Græðgin er komin út fyrir öll mörk
Morgunblaðið hratt nýlega af stað umræðu um veiðigjaldið en í umfjöllun blaðsins kom fram að gjaldið væri einfaldlega 33% af reiknuðum hagnaði útgerðarinnar. Þegar betur er að gáð þá voru þessir útreikningar hvorki einfaldir né byggðir á raunvirði aflans.

Væri ekki í lagi að gefa Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og Vinstri-grænum frí?
Afrakstur 7 ára ríkisstjórnarsamstarfs þessara flokka er skelfilegur. Nokkur dæmi:

60% landsmanna á móti vopnakaupunum
Í nýrri könnun Prósents sem gerð var fyrir Samtök gegn stríði í byrjun september kom í ljós að 60% landsmanna styðja ekki vopnakaup ráðamanna. Þetta gengur þvert á flokka, en ívið fleiri konur eru andvígar eða 72%, á móti 51% karla.

Glundroði Sjálfstæðisflokksins bitnar á hagstjórn og innviðum
Þrjár af fjórum ríkisstjórnum sem setið hafa að völdum frá árinu 2013 hafa sprungið með látum á miðju kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið í þeim öllum.

Hver ætlar að taka fimmtu vaktina? Ákall til stjórnmálaflokka
Íslenskt samfélag horfir fram á mikla fjölgun eldra fólks á komandi árum. Einkum er fyrirsjáanleg gríðarleg fjölgun í hópi þeirra sem komnir eru yfir áttrætt, þar sem fjöldinn mun meira en tvöfaldast og fer úr um 14.000 manns í um 28.000 manns.