
Átök í Ísrael og Palestínu

Ekki brjóta alþjóðalög í næstu búðarferð
Æðsti dómstóll Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðadómstóllinn, birti í júlí álit sitt á hernámi og viðveru Ísraelsríkis á þeim svæðum í Palestínu sem ríkið tók hernámi árið 1967. Málið var lagt fyrir dómstólinn áður en útrýmingarherferð Ísraels á Gaza hófst síðastliðið haust, en er ekki fyrsta álitið sem hann gefur um hernám Ísraels. Fyrir 20 árum úrskurðaði hann að aðskilnaðarmúrarnir sem Ísraelsríki hefur reist á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum væru ólögmætir og ætti að fjarlægja

Vopnahlésviðræðum lokið án niðurstöðu
Viðræðum sem stóðu yfir í síðustu viku um vopnahlé á Gasa er lokið án niðurstöðu. Bandaríkjamenn segjast þó ekki hafa gefist upp og munu halda áfram að eiga samtöl við aðila.

Sameinumst gegn þjóðarmorði
Síonistar ætla ekki að hætta fjöldamorðum sínum á Palestínumönnum. Þeir eru studdir til þessa morðæðis af Bandaríkjunum á leið í kosningar þar sem stuðningur innlendra gyðinga virðist geta ráðið úrslitum. Og síonistar ráða miklu í þeim samtökum.

Röð loftárása á Ísrael og Hezbollah-skotmörk í Líbanon
Ísrael gerði röð loftárása á suðurhluta Líbanon snemma í morgun. Að sögn yfirvalda var um að ræða fyrirbyggjandi árás á Hezbollah en samtökin gáfu út að þau hefðu sent á loft hundruð eldflauga og dróna til að hefna fyrir morðið á einum æðsta leiðtoga þeirra í síðasta mánuði.

Ítrekaði mikilvægi samkomulags um vopnahlé við Netanjahú
Forseti Bandaríkjanna Joe Biden ítrekaði mikilvægi þess að komast að samkomulagi um vopnahlé á Gasa í símtali við forsætisráðherra Ísrael, Benjamín Netanjahú, í dag. Hann sagði viðræðurnar sem eiga að fara fram í Kaíró í Egyptalandi á næstu dögum ákaflega mikilvægar fyrir möguleika á vopnahlé. Sáttasemjarar sem hafa reynt eftir fremsta megni síðustu mánuði að fá Hamas og Ísrael til að komast að samkomulagi munu hittast þar.

Viðræður sagðar stranda á kröfum Hamas um algjört brotthvarf Ísrael frá Gasa
Friðarviðræður milli Ísrael og Hamas eru sagðar stranda á kröfum Hamas um að Ísraelar yfirgefi Gasa alfarið, þar sem stjórnvöld í Ísrael eru sögð hafa hafnað kröfunni.

Herinn endurheimti lík sex gísla á Gasa í nótt
Ísraelsher endurheimti lík sex gísla í aðgerðum á Gasa í nótt. Fimm gíslanna voru yfir 50 ára gamlir og þrír áttu ættingja sem var sleppt á meðan vopnahléi stóð í nóvember síðastliðnum.

Blinken segir komið að ögurstundu í samningaviðræðunum
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir komið að ögurstundu í friðarviðræðum Ísrael og Hamas og nú sé mögulega lokatækifærið til að semja um lausn gíslanna sem Hamas tóku fanga í árásum sínum 7. október síðastliðinn.

Feður sameinuðustu gegn þjóðarmorði á samstöðufundi
Feður, kennarar, rithöfundar og aðrar starfsstéttir sameinuðust í gær í samstöðugöngu á vegum Félagsins Ísland Palestínu gegn þjóðarmorði, stríðsglæpum, barnamorðum, eyðileggingu og ofbeldi Ísraelshers. Um 1.200 gengu saman frá Hallgrímskirkju að Austurvelli samkvæmt tilkynningu félagsins. Krafa þeirra sem gengu var sú að íslensk stjórnvöld setji á viðskiptaþvinganir og slíti tafarlaust stjórnmálasambandi við Ísrael.

„Þjóðarmorðið í Palestínu hefur sameinað þær“
Mæður gegn morðum er bók um hundrað baráttukonur sem Alda Lóa Leifsdóttir hefur bæði myndað og tekið viðtöl við. Konurnar eru af ólíkum stéttum og úr ólíkum kimum samfélagsins en eiga það sameiginlegt að hafa síðustu mánuði tekið þátt í mótmælum, samstöðufundum og öðrum aðgerðum til stuðnings íbúum í Palestínu.

Blinken reynir hvað hann getur
Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna er mættur til Ísraels í þeim tilgangi að hefja viðræður um vopnahlé á Gasasvæðinu milli Ísraela og Hamas-samtakanna. Háttsettir félagsmenn Hamas segja hugmyndir um mögulegt vopnahlé á Gasasvæðinu einungis blekkingu. Það er þrátt fréttaflutning af aukinni bjartsýni um að samkomulag náist.

Hamas segir sáttasemjara „selja blekkingar“
Alls létust 18 í loftárás Ísraela á Gasa í dag. Aðeins nokkrum klukkutímum eftir að sáttasemjarar frá Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar luku tveggja daga viðræðum um vopnahlé á Gasa. Unnið hefur verið að samkomulaginu í nokkra mánuði.

Þjóðarmorð með vestrænum vopnum
Ég skrifaði nokkrar greinar eftir að geðveikin á Gaza hófst. Taldi mig hafa sagt mitt síðasta orð í byrjun ársins. Maður hélt e-n veginn að þessu myndi brátt ljúka. Annaðhvort að tekið yrði fyrir fjöldamorðin af viti bornum Vesturlöndum eða að stríðsaðilar sæju sóma sinn í því að gera vopnahlé og hætta fjöldamorðum á almenningi. Nú hefur komið í ljós að hvorugt er á döfinni.

Landtökumenn á Vesturbakkanum kveiktu í húsum og bifreiðum
Tugir ísraelskra landtökumanna á Vesturbakkanum kveiktu í nótt í húsum og bílum Palestínumanna. Palestínumenn fullyrða að einn hið minnsta hafi verið drepinn í árásinni en árásarmennirnir voru grímuklæddir og hentu bensínsprengjum í þorpinu Jit.

Nýfæddir tvíburar létust í sprengjuárás á meðan faðirinn brá sér frá
Nýfæddir tvíburar og móðir þeirra eru á meðal þeirra sem létust í sprengjuárás Ísraela á Gaza í vikunni. Viðræður um vopnahlé eiga að hefjast á ný á morgun.

Fjögurra daga gamlir tvíburar drepnir í árás Ísraela
Fjögurra daga gamlir tvíburar voru drepnir í loftárás Ísraela á Gasa í Deir al Balah hverfinu þar sem fjölskyldan hafði leitað skjóls eftir að þau lögðu á flótta. Þegar sprengjurnar lentu á heimili þeirra var faðir þeirra, Mohamed Abuel-Qomasan, á skrifstofu héraðsyfirvalda til að skrá formlega fæðingu þeirra. Auk tvíburanna létust í árásinni móðir þeirra og amma, tengdamóðir Mohamed..

Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun
Hamas munu ekki senda fulltrúa til friðarviðræðna á morgun, þegar áætlað er að sendinefndir frá Ísrael, Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar munu koma saman.

Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran
Skrifstofa Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sendi frá sér yfirlýsingu í gær eftir að fregnir bárust af því að varnarmálaráðherrann Yoav Gallant hefði kallað yfirlýst markmið Netanyahu um að tortíma Hamas „vitleysu“.

USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda
Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skipað flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln, sem ber meðal annars F-35 herþotur, að hraða för sinni til Mið-Austurlanda vegna áhyggja af árás Íran á Ísrael.

Bóndinn og snákurinn
Í síðustu viku aflýsti Taylor Swift þrennum tónleikum í Vínarborg vegna hryðjuverkahótana. Í kjölfarið voru þrír ungir menn með tengsl við íslamska ríkið (ISIS) handteknir. Án vafa eru töluvert fleiri sem aðhyllast hugmyndafræði ISIS búsettir á Vesturlöndum.

Gerðu loftárás á skóla í nótt
Ísraelsher gerði loftárás á skóla á Gazasvæðinu í nótt. Herinn segist í árásinni hafa hæft hryðjuverkamenn á vegum Hamas á stjórnstöð samtakanna sem hafi verið í skólanum.

Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku
Benjamín Netanahjú, forsætisráðherra Ísrael, staðfesti í gær að fulltrúar í samninganefnd á vegum ísraelska ríkisins myndu mæta til samningaviðræðna á ný þann 15. ágúst. Það gerði hann eftir sameiginlegt ákall Bandaríkjamanna, Egyptalands og Katar þar sem kallað var eftir því að Ísrael og Hamas kæmu aftur að samningaborðinu til að ljúka viðræðum. Hamas hefur ekki svarað kallinu.

Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna
Mótmælendur sem kyrjuðu slagorð um stríðsátökin á Gasa trufluðu endurtekið kosningafund Kamölu Harris, forsetaefnis Demókrataflokksins, í Michigan í Bandaríkjunum í gær. Harris hvatti fólkið til þess að segja það hreint út ef það vildi fá Donald Trump sem forseta.

Erum við að gleyma okkur?
Þær gríðarlega alvarlegu og ofbeldisfullu hernaðaraðgerðir sem Ísrael hefur beitt gegn Palestínumönnum geta ekki hafa farið fram hjá neinum undanfarna mánuði. Tugir þúsunda manneskja hafa verið drepin, hundruð þúsundir einstaklinga slösuð og milljónir eru á flótta. Sameinuðu þjóðirnar áætla nú að það muni taka yfir 15 ár að hreinsa Gaza eftir linnulausar sprengjuárásir Ísraels.

Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa
Evrópusambandið og stjórnvöld í Bretlandi og Frakklandi hafa fordæmt ummæli Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísrael, sem sagði í ræðu í vikunni að það kynni að vera réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa.

Mannúð
Fyrir fáeinum dögum réðist Ísraelsher á barnaskóla á Gaza og myrti á á fjórða tug kvenna og barna.

Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas
Hamas samtökin í Palestínu hafa útnefnt Yahya Sinwar sem nýjan pólitískan leiðtoga sinn eftir að Ismail Haniyeh var ráðinn af dögum í Tehran í síðustu viku.

Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael
Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn.

Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október
Níu starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) kunna að hafa tekið þátt eða átt aðild að árásum Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn.

Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon
Bandarísk og fleiri vestræn stjórnvöld hafa gefið út viðvaranir til ríkisborgara sinna um að koma sér hið snarasta frá Líbanon af ótta við að stríðsátök fyrir botni Miðjarðarhafs dreifist út. Spenna á milli Ísraels annars vegar og Íran og Líbanon hins vegar stigmagnast.