Auglýsinga- og markaðsmál

Rándýrt að auglýsa í Reykjavík
Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar.

Kristrún hafi ákveðið að búa til eigið leikrit
Deildar meiningar eru um viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur við umfjöllun Viðskiptablaðsins og Morgunblaðsins um hagnað hennar af kaupréttarauka í samningi hennar hjá Kviku banka. Leikrit segir einn, vitlaust spilað segir annar en gullið tækifæri til að tala til síns hóps segir sá þriðji. Málið var til umræðu í Pallborðinu á Vísi í dag.

Fékk kökk í hálsinn yfir „bestu auglýsingunni“: Trúverðugt að Katrín sé komin í þvottahúsið
Álitsgjafar Pallborðsins voru á einu máli um ágæti sjónvarpsauglýsingar Vinstri grænna, þar sem daglegt líf frambjóðenda flokksins er í forgrunni við tilfinningaþrungið undirspil íslenskrar tónlistar.

Hölluðust að því að Flokkur fólksins væri sigurvegari kosningabaráttunnar
Í Pallborðinu í dag var punktstaðan tekin í kosningabaráttunni, spáð í spilin fyrir næstu daga og um leið litið um öxl og farið yfir frammistöðu hvers flokks fyrir sig hingað til.

Senuþjófar kosningabaráttunnar
Nú þegar kosningabaráttan fyrir Alþingiskosningar 2021 fer að nálgast sinn hápunkt er ekki úr vegi að horfa yfir sviðið og reyna að glöggva sig á því hvaða frambjóðandi er sá svarti senuþjófur sem hefur náð að sópa til sín mestu af hinni dýrmætu athygli sem allt snýst um á tímum sem þessum. Þrír einstaklingar teljast ótvíræðir sigurvegarar. En óhætt að segja að þeir hafi farið sitthverja leiðina að því marki.

Fullyrðingar um lægsta verðið úrskurðaðar „ósannaðar og villandi“
Orkan mátti ekki segja að fyrirtækið væri með lægsta verðið eða ódýrasta eldsneytið á höfuðborgarsvæðinu og í öllum landshlutum. Þetta er niðurstaða Neytendastofu sem hefur bannað Orkunni nota fullyrðingarnar í auglýsingum sínum.

Sérfræðingar fjölluðu um hvað gera ætti þegar krísa skylli á
Viðbrögð við krísum á samfélagsmiðlum verða til umræðu í málstofu í Háskólans í Reykjavík í hádeginu í dag. Fundurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 13.

Slagorðasmiður Framsóknar taldi hið lúmska slagorð falla vel að þeirri heild sem herferðin er
Sigtryggur Magnason aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins er sá sem hitti naglann beint á höfuðið þegar hann mætti á heilaspunafund kosningaráðsins og sló fram „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“

Ráðin markaðsstjóri atNorth
Bylgja Pálsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hátæknifyrirtæksins atNorth.

Tekur við starfi markaðsstjóra Klappa
Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir hefur ráðið Láru Sigríði Lýðsdóttur í stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins.

Segja málningarauglýsingar Múrbúðarinnar ekki villandi eftir kvörtun Húsasmiðjunnar
Neytendastofa hyggst ekki grípa til aðgerða eftir kvörtun Húsasmiðjunnar vegna auglýsingar Múrbúðarinnar þar sem verð á málningu sem var til sölu í Múrbúðinni var borið saman við verð á annarri málningu í sölu í Danmörku og hjá Húsasmiðjunni á Íslandi.

Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki
Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði.

Píratar vilja sterkari fjölmiðla
Í nýjustu mælingu samtakanna Blaðamanna án landamæra á stöðu fjölmiðlafrelsis í heiminum hafnaði Ísland í 16. sæti. Við sem erum nógu gömul til að muna hversu svekkjandi það var að Gleðibankinn hafnaði bara í sextánda sæti í Eurovision 1986 eigum auðvelt með að setja það sæti í rétt samhengi; alls ekki nógu gott.

Slíta öll tengsl við þáttinn í kjölfar umdeildra ummæla
Domino‘s, Thule og Coca Cola hafa slitið samstarfi sínu við íþróttahlaðvarpið The Mike Show í kjölfar gagnrýni á orðræðu þáttastjórnenda. Varða athugasemdirnar meðal annars ummæli sem stjórnendur létu falla um mál KSÍ og ásakanir á hendur landsliðsmönnum.

Neytendastofa bannar auglýsingu Heimkaupa
Auglýsingar Heimkaupa um fría heimsendingu voru villandi þar sem kaupandi þurfti að vera staddur á höfuðborgarsvæðinu og kaupa vörur fyrir lágmarksupphæð. Þetta kemur fram í nýlegri ákvörðun Neytendastofu sem segir Heimkaup hafa brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Tóku þátt í herferð um framlínufólk í heimsfaraldri en enduðu í sóttkví
Allir sem tóku þátt í myndatöku fyrir nýja herferð Bandalags háskólamanna, Læknafélags Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga enduðu í sóttkví eftir að einn þátttakenda greindist smitaður af kórónuveirunni. Herferðinn fjallar um mikilvægi háskólamenntaðra í heimsfaraldri, fólks sem staðið hefur framlínuvakt á tímum Covid.

Landsbankinn óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ
Landsbankinn hefur bæst í hóp þeirra stuðningsaðila Knattspyrnusambands Íslands sem krefjast þess að sambandið geri hreint fyrir sínum dyrum. Forsvarsmenn bankans óskuðu í gær eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ.

Samningar lausir og framhaldið velti á umbótum hjá KSÍ
Icelandair fundaði með forsvarsfólki Knattspyrnusambands Íslands í dag um stöðu mála innan sambandsins. Samningar milli Icelandair og KSÍ eru nú lausir en Icelandair segir að sambandið verði að sýna fram á áætlun um umbætur áður en ákvörðun verður tekin um áframhaldandi samstarf.

Stuðningsaðili óskar eftir samtali við KSÍ vegna frétta síðustu daga
Coca-Cola á Íslandi, CCEP, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu Knattspyrnusambands Íslands í íslensku samfélagi í kjölfar frétta síðustu daga. Hefur félagið í bréfi óskað eftir samtali við fulltrúa KSÍ um málið.

Límdu hakakross á auglýsingu frá Ölgerðinni: „Maður er alveg miður sín“
Ölgerðinni barst í dag tilkynning um að búið væri að líma límmiða, með mynd af hakakrossinum og textanum „Við erum alls staðar“, á auglýsingu fyrirtækisins á Ártúnshöfða. Forstjóri Ölgerðarinnar segist miður sín vegna atviksins.

Tjörvi hættir eftir nítján ár hjá Bændasamtökunum
Tjörvi Bjarnason, sviðstjóri útgáfu- og kynningarsviðs Bændasamtakanna, hefur sagt upp störfum eftir nítján ár hjá samtökunum. Hann hefur stýrt rekstri Bændablaðsins í fjölda ára og unnið sem almannatengill fyrir bændur svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrst svartra kvenna til að bera Tiffany demantinn
Beyoncé er fyrst svartra kvenna til að fá að bera hinn víðfræga 128,54 karata Tiffany demant. Tónlistarkonan ber demantinn um hálsinn í nýrri auglýsingaherferð Tiffany & Co skartgripaverslunarinnar, þar sem hún situr fyrir ásamt eiginmanni sínum Jay-Z.

Þórhildur ráðin kynningarfulltrúi BHM
Þórhildur Þorkelsdóttir hefur verið ráðin kynningarfulltrúi BHM og hefur þegar tekið til starfa.

Ráðinn markaðs- og vörustjóri Kerecis
Guðmundur Óskarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri markaðs- og vörustjórnunar hjá Kerecis.

Geir í Ósvör óvænt orðinn andlit sardínuframleiðanda
Geir Guðmundsson, sem eitt sinn var safnvörður í Ósvör í Bolungarvík, virðist vera orðinn að andliti sardínuframleiðanda í Svíþjóð. Fjölskylda Geirs hafði ekki hugmynd um að mynd af honum væri utan á sænskum sardínudósum, en framleiðandanum virðist hafa þótt vanta skegg á Geir.

Stjörnurnar streyma til Íslands í auglýsingatökur
Stór hópur heimsþekktra íþróttamanna er væntanlegur til landsins í lok ágúst í tengslum við tökur á auglýsingaefni fyrir ferðavörufyrirtækið Thule.

Vilja leyfa auglýsingar frá veðmálafyrirtækjum
Ítalska knattspyrnusambandið, FIGC, hefur farið fram á það við ítölsk stjórnvöld að leyfa auglýsingar frá veðmálafyrirtækjum innan fótboltans þar í landi. Það geti hjálpað ítölskum félagsliðum að vinna sig út úr fjárhagsvandræðum sem kórónuveirufaraldurinn hafi valdið.

Havarti heitir nú Hávarður
Mjólkursamsalan hefur ákveðið að breyta nafni ostanna Havarti og Havarti krydd í Hávarð og Hávarð krydd. Ástæðan er samningur Íslands og Evrópusambandsins um vernd á afurðaheitum.

Varsla Hannesar á víti Messi borgar sig í kínverskum stórauglýsingum
Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður og leikstjóri, fékk heilan helling af tilboðum um að leikstýra auglýsingum og fleiri verkefnum frá Kína eftir að auglýsing hans fyrir Coca-Cola var sýnd á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu árið 2018.

Innflytjandinn ákveðið að fjarlægja allt markaðsefni með Gylfa Þór
Innflytjandi orkudrykkjarins State Energy hefur ákveðið að taka niður allt auglýsingaefni með Gylfa Þór Sigurðssyni, fótboltamanni Everton og landsliðsmanni, sem mátti finna í Hagkaup og fleiri verslunum.