
Viðskipti
Samstarf AWAS og Icelandair
Icelandair og flugvélaleigufyrirtækið AWAS hafa undirritað samning um samstarf fyrirtækjanna á leiguflugsmarkaði. AWAS er einn stærsti leigusali flugvéla í heiminum og eigandi 178 flugvéla sem eru í leigu hjá fyrirtækjum í 44 löndum víðs vegar um heim.

Keypt fyrir 2,5 milljarða í Evrópu
Samherji hefur keypt hluti í tveimur evrópskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Kaupverðið er samtals nálægt tveimur og hálfum milljarði króna.

Samherji kaupir meiri kvóta
Útgerðarfélagið Samherji á Akureyri hefur eignast umþaðbil tuttugu þúsund tonna kvóta í heildarkvóta Evrópusambandsins, eftir kaup í þýskum og breskum útvegsfyrirtækjum í gær fyrir rösklega tvo milljarða króna.

Helmingur þorskkvóta í útlöndum
Þorsteinn Már Baldvinsson segir að fjárfestingar Samherja í tveimur útgerðarfélögum innan Evrópusambandsins séu hluti af stefnu félagsins um vöxt erlendis. Hann segir að útlensk félög sem Samherji á hlut í ráði nú jafnmiklum þorskkvóta eins og Samherji gerir hér á Íslandi.

Sameining stórbanka borðleggjandi
Aðstoðarforstjóri Íslandsbanka telur öll fagleg rök hníga að sameiningu stórra banka. Sameining Íslandsbanka og Landsbankans ætti ekki að ógna samkeppni á fjármálamarkaði. Stærð KB banka hefur áhrif á slíkt mat. </font /></b />

Viðskiptahalli ógnar hagkerfinu
Mikill viðskiptahalli ógnar íslenska hagkerfinu. Talsverð verðbólga blasir við og harkaleg lending hagkerfisins eftir uppgang vegna stóriðjuframkvæmda. Viðskiptahallinn hefur ekki verið meiri síðan rétt eftir seinni heimsstyrjöldina. Þetta kemur fram í Þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka.

Átakalítið sumar í viðskiptalífinu
Sumarið hefur verið átakalítið í viðskiptalífi Íslendinga og lítil velta á mörgum sviðum, s.s. með skuldabréf, gjaldeyri og hlutabréf að því er segir í Efnahagsfregnum greiningardeildar KB banka. Þessi kyrrð hefur hins vegar verið rofin á síðustu vikum ágústmánaðar, m.a. með nýrri samkeppni um íbúðalán landsmanna.

Samkeppnisyfirvöld skoða kaupin
Samkeppnisyfirvöld skoða nú kaup Símans á sýningarrétti enska boltans og fjórðungshlut í Skjá einum. Stöð tvö ítrekaði í gær tveggja ára gamla kvörtun sína til samkeppnisyfirvalda vegna breiðvarps Símans.

Markaðsvirðið yfir 1000 milljörðum
Markaðsvirði félaga sem eru skráð í Kauphöll Íslands jókst um rúma 120 milljarða króna í síðasta mánuði og er nú komið yfir eitt þúsund milljarða króna, þrátt fyrir að félögunum fari fækkandi.

Fengu heiðursmerki
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka og Sigurður Einarsson stjórnarformaður hafa verið sæmdir heiðursorðu af sænsku krúnunni. KB banki rekur viðamikla starfsemi í Svíþjóð og er skráður í kauphöllinni í Stokkhólmi.

Kvikmyndaverið Ísland
Unnið er að gerð tveggja kvikmynda á Íslandi sem samtals kosta eitt þúsund og sex hundruð milljónir króna. Mikil þekking á kvikmyndagerð hefur orðið til í landinu á síðustu árum. Landslag, skattkerfi og hæft stafsfólk laða verkefnin að. </font /></b />

Hallinn ekki meiri í 60 ár
Samdráttarskeið er fyrirsjáanlegt á næstu árum, segir Greining Íslandsbanka. Viðskiptahallinn hefur ekki verið meiri hér síðan rétt eftir síðari heimsstyrjöld.
Lykilatriði að leita ráðgjafar
Misjafnt er hvernig lán hentar hverjum. Framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja hvetur fólk til að leita ráðgjafar. Hann segir mikilvægt að hafa í huga að gjaldeyrislánum fylgi áhætta.

Skoða samstarf við OgVodafone
Þróun á stafrænum sjónvarpsútsendingum krefst samstarfs stórs fjölmiðlafyrirtækis og símafyrirtækis, segir stjórnarformaður Norðurljósa. Með kaupum Símans í Skjá einum er Síminn orðinn keppinautur Norðurljósa og því er eðlilegast að kanna samstarf við Og Vodafone. </font /></b />

Arðbær fjárfesting
Forstjóri Símans segir kaupin á sýningarréttinum á ensku knattspyrnunni og fjórðungshlut í Skjá einum vera arðsama fjárfestingu en neitar að upplýsa hversu dýru verði hún hafi verið keypt. Samkeppnisstofnun ætlar að skoða viðskipti Símans og Skjás eins.

Einkavæðing gæti tafist
Samkeppnisstofnun hefur þrjá mánuði til að skila niðurstöðu um kaup Landssímans á fjórðungshlut í Skjá einum. Á sama tíma er undirbúningur að einkavæðingu Símans að komast á fullt. </font /></b />

Á skjön við stefnu ríkisstjórnar
Formaður þingflokks Framsóknarflokksins segir kaup Símans á hlut í Skjá einum vera á skjön við stefnu ríkisstjórnarinnar. Hann telur brýnna að Síminn styrki dreifikerfi sitt, sem hafi verið látið sitja á hakanum. Óánægja er á meðal þingmanna Framsóknarflokksins með forgangsröðun Símans.

Ummæli vekja furðu
Síminn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Skarphéðins Berg, stjórnarfomanns Norðurljósa, um stafrænt sjónvarp í Fréttablaðinu í dag. Í yfirlýsingunni segir að það veki furðu að Skarphéðinn staðhæfi að kaup Símans á Skjá einum leiði til þess að ekki verði af samstarfi Norðurljósa við Símann í uppbyggingu stafræns stjónvarpsdreifikerfis.

Geta keppt við stóru bankana
Sparissjóðsstjóri SPRON er hvergi banginn við harða samkeppni í bankaheiminum. Hann telur tíma Íbúðalánasjóðs liðinn og setur spurningarmerki við lánastarfsemi lífeyrissjóða. Hann segir að lög gegn sölu SPRON til KB banka hafi verið öllum aðilum til óheilla. </font /></b />

Kaupin rýra verð Landssímans
Kaup Landssímans á Fjörgný, sem á fjórðungshlut í Skjá einum og sýningarrétt á ensku knattspyrnunni, mun draga úr verðgildi félagsins við einkavæðingu að mati Skarphéðins Berg Steinarssonar, stjórnarformanns Norðurljósa.
Búlgarar heimsækja Björgólfsfeðga
Fulltrúar frá búlgarska landssímanum og aðrir búlgarskir viðskiptamenn eru staddir hér á landi í viðskiptaerindum. Þeir eru hér í boði feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Margir þingmenn andvígir kaupunum
Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru andvígir kaupum Símans á fjórðungshlut í Skjá einum. Sigurður Kári Kristjánsson efast um að Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, hafi tekið þátt í samningunum.

Hefði stangast á við fjölmiðlalög
Forsætisráðherra telur að kaup Símans á stórum hlut í Skjá einum hefðu brotið í bága við lög ef fjölmiðlafrumvarpið sem hann lagði fram í vor hefði orðið að lögum. Menntamálaráðherra tekur í sama streng. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur marga þingmenn flokksins vera andvíga þessum viðskiptum.

Óvíst hvort allt verði boðið út
Ekki er hægt að segja til um hvort hlutfallslegur sparnaður ríkisins verði eins mikill og Reykjavíkurborg áætlar sér með útboði á fjarskiptaþjónustu, segir sérfræðingur fjármálaráðuneytis. Útboðið verði í takt við stefnu stjórnvalda. </font /></b />
Breyting á lánum Lífiðnar
Breytingar hafa orðið á útlánum til sjóðfélaga Lífiðnar. Sjóðfélögum gefst nú kostur á tveimur flokkum lána. A-lán og B-lán. A-Lán með föstum vöxtum og B-Lán með breytilegum vöxtum en þeim flokki tilheyra eldri sjóðfélagalán.

Andsnúinn kaupunum
"Síminn, sem opinbert fyrirtæki, hefði ekki átt að fjárfesta í Skjá einum," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um kaup Landssímans á Fjörgný, sem á 26% hlut í Skjá einum.

Björgólfur varar við takmörkunum
"Ef svigrúm fyrirtækja er þrengt með lagasetningu þá er uppbyggingar- og þróunarstarf þeirra í hættu. Frumkvæði og áræði er drepið í dróma," sagði Björgólfur Guðmundsson, bankastjóri Landsbankans meðal annars í ávarpi sínu á haustþingi SUS, sem hófst á Selfossi í dag. Hann varaði við hugmyndum um takmarkanir á möguleikum stórfyrirtækja til fjárfestinga.

Latibær í lagaþrætu
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur stefnt Latabæ fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Sjóðurinn vill fá hlutabréf fyrir lán sem hann veitti árið 2002. Latibær er tregur til. Málið er prófmál fyrir sjóðinn. </font /></b />

Heilt tonn til Bretlands
Ensímtækni, hefur náð miklum árangri í sölu á smyrslum unnum úr ensímum úr þorski. Nú þegar er vara þeirra seld víða um heim bæði til almennrar notkunar en einnig er það víða notað til lækninga.

Höfða nokkur mál á dag
Bandaríska lögmannsstofan sem safnar nú liði til að höfða skaðabótamál á hendur Íslenskri erfðagreiningu, höfðar að jafnaði nokkur slík mál á dag. Umrædd lögmannsstofa hefur auglýst eftir hluthöfum, í Íslenskri erfðagreiningu, sem vilja fara í mál við fyrirtækið vegna meintra rangra upplýsinga.