
Sjálfstæðisflokkurinn

Ekki á dagskrá ríkisstjórnar að einkavæða Keflavíkurflugvöll
Rekstur flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og tengdrar starfsemi verður ekki boðin út til einkaaðila í tíð núverandi ríkisstjórnar að sögn forsætisráðherra. Hópur þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar lagt til að reksturinn verði boðinn út til einkaaðila.

Athugasemdir Bankasýslunnar „allrar athygli verðar“ og varpi mögulega ljósi á að vinna Ríkisendurskoðunar þarfnist skoðunar
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ef athugasemdir Bankasýslu ríkisins við skýrslu Ríkisendurskoðunar reynist réttar hafi ríkisendurskoðandi ekki staðið nógu faglega að skýrslugerð sinni. Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur ekki ástæðu til að efast um fagleg vinnubrögð ríkisendurskoðunar.

Barnalán vinstristjórnar Fjarðabyggðar
Það er grátbroslegt að fylgjast með fulltrúum vinstristjórnarinnar í Fjarðabyggð velkjast um, eins og rekald í ólgusjó, og reyna að sannfæra íbúa Fjarðabyggðar að gjaldfríar skólamáltíðir séu fyrirfjölskyldurnar og heimilin í Fjarðabyggð.

Segir meirihlutann í afneitun um „óleyfisframkvæmd“
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sakar meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur um að vera í afneitun um það sem hann kallar óleyfisframkvæmd að tæma Árbæjarlón. Meirihluti borgarstjórnar vísaði frá tillögu um að fylla lónið aftur.

„Við í ríkisstjórn og fjármálaráðherra höfum axlað pólitíska ábyrgð“
Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina og fjármálaráðherra þegar hafa axlað pólitíska ábyrgð vegna söluferils Íslandsbanka. Viðskiptaráðherra segir framkvæmd Bankasýslunnar á frekari einfaldri sölu, hafa mistekist.

„Það var búið að ákveða að ég yrði hérna einn“
Nokkra athygli vakti í Kastljósi kvöldsins þegar þáttastjórnandinn sagði Bjarna Benediktsson hafa gert það að forsendu fyrir viðtalinu að hann yrði einn. Það þvertók Bjarni fyrir og sagði stjórnandann hafa ætlað að breyta fyrirkomulagi viðtalsins á síðustu stundu.

Segir Bjarna ekki þora að mæta sér í Kastljósi
Formaður Samfylkingarinnar segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra ekki þora að mæta sér í Kastljósi í kvöld til þess að ræða Íslandsbankaskýrsluna. Hún segir málinu engan veginn vera lokið.

Bjarni segir stjórnvöld ekki eiga að tryggja öllum sömu niðurstöðu í lífinu
Matvælaráðherra segir að málaferli gegn Samherja vegna meintrar spillingar hafi skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs og fjármálaráðherra telur að stjórnvöld eigi að tryggja að allir hafi sömu tækifæri en eigi ekki einu sinni að reyna að tryggja öllum sömu útkomu í lífinu. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun.

Rangfærsluþrenna Diljár Mistar
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið umtalsvert í almennri umræðu undanfarin misseri. Hvort sem þar er um að ræða landsfund flokksins, brottvísanir eða umdeild lagafrumvörp.

Vísir á landsfundi: Ofsakæti í bland við taugaveiklun og mikla spennu
Fyrir allt áhugafólk um stjórnmál var síðasta helgi æsispennandi. Risavaxin lýðræðisveisla, segja sanntrúaðir Sjálfstæðismenn: Sú langstærsta, meðan aðrir segja að flokkurinn hafi sýnt stálhnefann. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn með pompi og prakt í Laugardalshöll. Vísir fór á landsfund.

Bóluefni gegn kommúnisma og enga framsóknarmenn takk
Hlaupskot merkt sem bóluefni gegn kommúnisma og skilti þar sem framsóknarmenn eru beðnir um að yfirgefa svæðið voru meðal þess sem selt var á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll um helgina. Uppboð ungra sjálfstæðismanna á fundinum sló rækilega í gegn.

„Mér líður vel með þessa ákvörðun“
Guðlaugur Þór Þórðarson segist stoltur yfir árangrinum þó að fjöldi atkvæða hafi ekki dugað til í þetta skipti. Framboðið hafi verið rétt ákvörðun en hann gefur ekki upp hvort hann hyggist bjóða sig fram að nýju. Hann segist ekki hafa áhyggjur af stöðu sinni í ríkisstjórn eða pólitískri framtíð sinni.

Þórdís Kolbrún kjörin varaformaður með góðum meirihluta
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 88,8 prósent atkvæða. Hún var ein í framboði til varaformanns.

Lofaði að halda áfram að vinna að framgangi sjálfstæðisstefnunnar
Guðlaugur Þór Þórðarson lýsti yfir stuðningi við Bjarna Benediktsson sem formann Sjálfstæðisflokksins eftir að hann beið lægri hlut í formannskjöri í dag. Lofaði hann að vinna áfram að framgangi sjálfstæðisstefnunnar.

„Fann að ég var með góðan meirihluta á landsfundinum allan tímann“
Bjarni Benediktsson, sem var rétt í þessu endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa fundið fyrir því allan tímann á landsfundinum, að hann hefði góðan meirihluta. Hann vann formannskjörið gegn Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfisráðherra. Úrslitin voru kynnt rétt í þessu og vann Bjarni kosningarnar með 59% greiddra atkvæða.

Bjarni verður áfram formaður
Bjarni Benediktsson verður áfram formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann vann formannskjörið gegn Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfisráðherra. Vann Bjarni kosningarnar með 59% greiddra atkvæða. Þórdís Kolbrún var kjörin varaformaður með 88 prósent atkvæða og Vilhjálmur Árnason er nýr ritari sjálfstæðisflokksins með 58 prósent atkvæða.

„Dylst varla neinum að Fréttablaðið er í áróðri fyrir inngöngu í Evrópusambandið“
Bjarni Benediktsson, sitjandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fór með fundargesti í ferðalag aftur til ársins 2010, reifaði atvik í Búsáhaldabyltingunni, skaut föstum skotum á Samfylkinguna að nýju og sagði engum dyljast að Fréttablaðið stundaði áróður í þágu aðildar að Evrópusambandinu.

„Sjálfstæðisflokkurinn má aldrei verða einkaklúbbur útvalinna“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks og Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra tókust á í framboðsræðum sínum á landsflundi flokksins. Þetta var þeirra síðasti séns til að sannfæra flokksfulltrúa um að greiða sér atkvæði.

Framboðsræður í beinni: Gera lokatilraun til að vinna flokksmenn á sitt band
Frambjóðendur til formanns, varaformanns og ritara Sjálfstæðisflokksins fluttu ræður á landsfundi flokksins í dag. Mest spenna ríkti eðlilega fyrir ræðum formannsframbjóðendanna tveggja; sitjandi formanns Bjarna Benediktssonar og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem býður sig fram á móti honum.

Guðlaugur Þór tók mér opnum örmum
Ég byrjaði ungur í flokknum, reyndar mjög ungur, í aðdraganda Alþingiskosninga árið 2017. Eins og gefur að skilja var þá mikið um að vera eins og oft er í kringum kosningar.

Farið hefur fé betra: Bless ríkisstjórn
Hvert er ákallið í samfélaginu? Ef einhver dæmdi samfélagið okkar eftir verkum ríkisstjórnarinnar myndi viðkomandi álykta að hér væri hávært ákall um viðvarandi skuldasöfnun hins opinbera á meðan grunnstoðirnar eru skildar eftir.

Bjarni bauð Viðreisnarfólk velkomið heim
Bjarni Benediktsson setti landsfund Sjálfstæðismanna í dag sem formaður flokksins - ef til vill í síðasta sinn - en eins og flestir vita verður kosið milli hans og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar á sunnudag. Í setningarræðu skaut hann á Samfylkinguna og bauð Viðreisnarfólk velkomið heim.

„Við einfaldlega skuldum borgarbúum að gefa Samfylkingunni frí“
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins skaut föstum skotum á Samfylkinguna í setningarræðu sinni á landsfundi í Laugardalshöll. Hann sagði Samfylkinguna hafa áttað sig á því að aðild að Evrópusambandinu kæmi ekki til greina og virtist bjóða þeim, sem farið hafa í aðra flokka, aftur heim.

Mikil stemmning á spennuþrungnum landsfundi Sjálfstæðisflokksins
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll var settur klukkan 16:30 í dag með ræðu formanns Bjarna Benediktssonar. Fjölmennt var í Laugardalshöll og mörg kunnuleg andlit á svæðinu.

Einar Bárðarson fær ekki að fara á landsfund
Einar Bárðarson athafnamaður er einn þeirra fjölmörgu sem vilja en fá ekki að sækja Landsfund Sjálfstæðismanna nú um helgina. Hann spyr hvort það geti verið vegna þess að búið sé að merkja sig sem stuðningsmann Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, frambjóðanda til formanns?

Kynslóð af kynslóð sjálfstæðiskvenna
Því var lengst af haldið fram af andstæðingum Sjálfstæðisflokksins að konur ættu ekki brautargengi innan flokksins. En þegar sjálfstæðiskonur taka undir gagnrýni andstæðinga verður ekki setið undir án andmæla.

Ákveðin list að koma höggi á andstæðinginn en samt ekki
Spennan magnast fyrir formannskjör Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins um helgina. Almannatengill segir frambjóðendurna tvo stunda ákveðna listgrein í kappræðum í aðdraganda fundarins. Undir niðri kraumi hins vegar á milli fylkinganna tveggja. Hann segir ferilinn undir hjá frambjóðendunum á sunnudaginn.

Jón Gunnarsson segist ekki hafa haft í hótunum við Unni Berglindi
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur birt pistil þar sem hann svarar ásökunum sem Unnur Berglind Friðriksdóttir setti fram í morgun. Hann vísar því alfarið á bug að hafa haft í hótunum við hana.

Kjörbréfanefndarmenn telja illa að starfsfólki Valhallar vegið
Lögfræðingarnir þrír sem skipa kjörbréfanefnd Sjálfstæðisflokksins hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma að hafa mátt sitja undir ásökunum frá formanni Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi þess efnis að þeir gangi erinda formanns flokksins í störfum sínum.

Sakar menn Bjarna um að fara offari í kosningabaráttunni
Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs, segir stuðningsmenn Bjarna Benediktssonar formanns fara offari í kosningabaráttunni.