Sjálfstæðisflokkurinn

Fréttamynd

Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meiri­hluta með Miðflokknum

Samkvæmt nýjustu tölum fær Sjálfstæðisflokkurinn átta fulltrúa í Reykjavík sem slær möguleikann á tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum úr myndinni. Aftur á móti fær Framsókn tvo og Viðreisn tvo sem gerir þeim kleift að mynda saman meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.

Innlent
Fréttamynd

Loka­tölur úr Fjalla­byggð: Meiri­hlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Innlent
Fréttamynd

Hildur segir nýjan meiri­hluta þurfa breiða skír­skotun

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist líta til Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hvað varði meirihluta, þá sitthvoran kostinn. Báðir séu einfaldasta leiðin að myndun meirihluta en Hildur segist vilja mynda meirihluta með breiða skírskotun sem geti endurreist traust til borgarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

„Hvað sagðiru, 42? Það er geð­veikt!“

Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var himinlifandi þegar fréttamaður Sýnar bar honum tíðindi af fylgisaukningu flokksins í beinni útsendingu. Flokkurinn er með 42,5 prósent fylgi og meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Gífur­leg fagnaðar­læti yfir sigurræðu Almars

Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ og oddviti Sjálfstæðisflokksins var vel fagnað þegar hann hélt sigurræðu í kosningateiti flokksins. Hann segist telja að vinna flokksins hafi fyrst og fremst skilað árangri í kosningunum en flokkurinn bætir við sig manni miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn á Akur­eyri fallinn

Bæjarlistinn er örlítið stærri en Samfylkingin á Akureyri þegar um fjórðungur atkvæða hefur verið talinn. Samfylkingin bætir þó við sig manni og Bæjarlistinn tapar einum og því er meirihlutinn fallinn.

Innlent
Fréttamynd

Í á­falli yfir fyrstu tölum úr Kópa­vogi

Ásdís Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist vera himinlifandi með fyrstu tölur. Yrðu það lokatölur fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í bænum. Annar frambjóðandi flokksins var í áfalli. Allir oddvitar í Kópavogi virðast sáttir við sitt. 

Innlent