Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Eiður Þór Árnason skrifar 3. júní 2026 20:08 Áslaug kvaddi þingheim í dag. Vísir/vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir á rétt á tæpum tíu milljónum króna í biðlaun eftir að hún sagði af sér þingmennsku í dag. Hún kláraði nýverið nám við Columbia-háskóla í New York og fékk þingfararkaup í um tvo mánuði síðasta sumar. Áslaug segist vilja fara vel með almannafé og fylgja þeim reglum sem gildi. Hún vill ekki tjá sig um það hvort hún hafi átt í viðræðum um ný atvinnutækifæri. „
Ég skil alltaf fólk þegar fólk fær á tilfinninguna að eitthvað sé ekki gert rétt eða að fólk sé að taka sér greiðslur sem ekki eiga rétt á sér,“ segir Áslaug aðspurð hvort hún hafi skilning á þeirri umræðu og umfjöllun sem hafi skapast í kringum launagreiðslur hennar eftir að hún fór út í nám. „Ég vil fara vel með almannafé og tek ekki að mér neinar greiðslur sem ekki fara eftir þeim reglum sem gilda,“ bætir hún við í samtali við Vísi. Áslaug tilkynnti í maí í fyrra að hún væri á leið í níu mánaða leyfi frá þingstörfum til að nema Master in Public Administration in Global Leadership sem gæti útleggst sem meistaranám í opinberri stjórnsýslu og alþjóðlegri leiðtogahæfni. Hún hafði þá nýlega tapað fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins með einungis nítján atkvæðum. Tekið við greiðslum yfir sumarið eins og aðrir þingmenn Birna Bragadóttir kom inn sem varamaður fyrir Áslaugu 4. júlí og tók þá við þingfararkaupi hennar en þingi var slitið tíu dögum síðar. Þá fór Áslaug aftur á þingfararkaup og fékk um 3,1 milljón króna greidda á meðan þingið var í sumarleyfi fram að þingsetningu þann 9. september 2025. Þá var varaþingmaður aftur kallaður inn. „Eins og reglurnar gera ráð fyrir þá taka allir þjóðkjörnir þingmenn sæti aftur á þingi yfir sumartímann og eiga rétt á þeim greiðslum yfir sumartímann. Það átti við um mig sem hafði kallað inn varamann í einhvern stuttan tíma. Það átti líka við um þingmenn sem voru í fæðingarorlofi og voru búnir að vera með varaþingmenn í lengri tíma. Það gilti það sama um þá þingmenn,“ segir Áslaug. Hún bætir við að þingið hafi staðið lengur yfir síðasta sumar en áætlað var og hún hafi í fyrstu ekki viljað fara fyrr en því væri lokið. „En þingið síðan tafðist og við kölluðum inn varamann þar sem ég var að hefja nám.“ Hún hafi fylgt þeim reglum sem Alþingi setur. Fólk geti haft skoðun á upphæðum Þingmenn sem segja af sér þingmennsku eftir að hafa setið á Alþingi í minnst tvö kjörtímabil eiga rétt á biðlaunum í allt að sex mánuði sem eru jafnhá þingfararkaupi. Áslaug tók fyrst sæti á þingi árið 2016 og nema fastar mánaðarlegar launagreiðslur hennar 1.611.288 krónum. Hún getur því fengið allt að 9.667.728 krónur í biðlaun. Heimildin greindi fyrst frá. Þegar talið berst að biðlaununum segir Áslaug eðlilegt að fólk hafi skoðun á þessum upphæðum. „Ég er að ljúka störfum eftir tíu ár og það eru ákveðnar reglur sem gilda. Sömu reglur og gilda fyrir þá þingmenn sem ekki hlutu kjör eða gáfu ekki kost á sér við síðustu alþingiskosningar. Þannig að það gilda engar sérreglur um mig þó að ég hafi verið að koma úr leyfi eða öðru slíku. Ég er ekki að fá meira greitt en einhverjir aðrir, þetta fer bara eftir reglum. Svo getur fólk haft skoðun á þessum lögum og það er gott og gilt, og það er hægt að hafa skoðun á launum þingmanna og hvers lags. En ég er bara að fara eftir sömu reglum og aðrir þingmenn sem hætta á þingi.“ Fari af biðlaunum þegar hún fái nýtt starf Þú talaðir um ábyrga meðferð á opinberu fé. Finnst þér koma til greina að afsala þér einhverjum hluta af þessum biðlaunum? „Um leið og ég tek við öðru starfi þá fer ég af biðlaunum.“ Reglur Alþingis kveða á um að ef fyrrverandi þingmaður fær annað starf á meðan hann er á biðlaunum skuli þau lækka sem nemur launagreiðslum frá nýjum vinnuveitanda. Ertu að segja að jafnvel þó að laun úr nýju starfi myndu ekki ná upphæð biðlauna þá myndir þú samt hætta að taka við þeim eða einungis að þú myndir fylgja þessari reglu sem gildir? „Nú hef ég ekki tekið neinar ákvarðanir um næstu skref hjá mér. Ég var að taka þessa stóru ákvörðun í dag að hætta á þingi eftir tíu ár og það verður bara að koma í ljós.“ Vill ekki upplýsa hvort atvinnutækifæri bíði Áslaug vill ekki segja til um það hvort einhver atvinnutækifæri bíði nú þegar þingstörfum hennar lýkur. „Það verður að koma í ljós.“ Áslaug hefur áður hafnað sögusögnum um að hún muni taka við ritstjórastóli á Morgunblaðinu og ganga í fótspor Davíðs Oddssonar heitins. Þú vilt ekki tjá þig um það hvort einhver samtöl hafi verið í gangi síðustu vikur og mánuði? „Ég ætla ekki að gera það við þig í þessu sama samtali og við erum að ræða þetta, þú ert greinilega að skrifa aðra frétt.“ Þegar hér er komið við sögu vill Áslaug ljúka samtalinu enda á leið í viðtal í Kastljósi á RÚV. Ertu spenntari fyrir því að vera á Íslandi eða erlendis? Svona rétt að lokum. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Alþingi Kjaramál Sjálfstæðisflokkurinn Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir ekkert til í því að hún setjist senn í ritstjórastól Morgunblaðsins. Áslaug gefur ekkert upp um næstu skref en hefur boðað vini og stuðningsmenn til veislu á morgun. 3. júní 2026 12:38 Áslaug Arna hættir á Alþingi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur ákveðið að láta af þingmennsku. Hún hefur setið á þingi frá árinu 2016 og hefur gengt embætti dómsmálaráðherra, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. 3. júní 2026 11:06 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Sjá meira
„Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir ekkert til í því að hún setjist senn í ritstjórastól Morgunblaðsins. Áslaug gefur ekkert upp um næstu skref en hefur boðað vini og stuðningsmenn til veislu á morgun. 3. júní 2026 12:38
Áslaug Arna hættir á Alþingi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur ákveðið að láta af þingmennsku. Hún hefur setið á þingi frá árinu 2016 og hefur gengt embætti dómsmálaráðherra, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. 3. júní 2026 11:06