Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Árni Sæberg skrifar 28. október 2026 13:45 Daði Már Kristófersson er fjármálaráðherra- og efnahagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að setja á fót nýja ráðuneytisstofnun um stafræna þjónustu og upplýsingatækni undir heitinu Stafrænt Ísland.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að uppbygging ráðuneytisstofnunarinnar nýju sé liður í innleiðingu stefnu um opinbera þjónustu og styðji við markmið um betri, aðgengilegri og hagkvæmari þjónustu, sem mæti þörfum fólks og atvinnulífs. Ný ráðuneytisstofnun taki til starfa 1. janúar næstkomandi. Ráðuneytisstofnun er sérstök starfseining ráðuneytis sem er verkefnalega og stjórnunarlega aðgreind frá aðalskrifstofu ráðuneytis en gegnir þó ekki sjálfstæðum stjórnsýsluverkefnum. Verkefnastofa verður að ráðuneytisstofnun Í tilkynningu segir að verkefni verkefnastofu um Stafrænt Ísland verði flutt til nýju ráðuneytisstofnunarinnar við upphaf starfseminnar. Þá sé stefnt að því að upplýsingatækniverkefni Umbru, rekstrarfélags Stjórnarráðsins, verði flutt þangað á fyrstu mánuðum ársins 2027. Samhliða þessum breytingum verði öðrum verkefnum Umbru fundinn farvegur innan Stjórnarráðsins og starfsemi Umbru í núverandi mynd lögð niður. Ný og öflug ráðuneytisstofnun fái þannig styrkan grundvöll til að leiða áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu og styðja opinbera aðila við að nýta nýja tækni til að bæta þjónustu og rekstur. Með breytingunni verði byggt á þeirri þekkingu og reynslu sem hafi orðið til við uppbyggingu Íslands.is. Innleiða gervigreind Aukin áhersla verði lögð á gagnamál hins opinbera og upplýsingatækni, samhliða áframhaldandi uppbyggingu þjónustu á Íslandi.is. Markmiðið sé að efla getu ríkisins til að nýta gögn og gervigreind með markvissum hætti og skila ávinningi til samfélagsins með betri þjónustu og aukinni skilvirkni. Þessi áhersla falli vel að tillögum starfshóps um málefni gervigreindar, sem kynntar hafi verið fyrr í október. Þar sé markviss innleiðing gervigreindar hjá hinu opinbera eitt þriggja forgangsverkefna. Starfshópurinn leggi meðal annars áherslu á sameiningu rekstrar upplýsingatækni ríkisins og eflingu gagnamála til að styðja við innleiðingu gervigreindar hjá stofnunum og ráðuneytum. Starf framkvæmdastjóra Stafræns Íslands verði auglýst í vikunni.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stafræn þróun Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Launmorðingjar ráðnir hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann Sjá meira