Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. júní 2026 16:00 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tekur sæti á Alþingi á morgun. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, tekur sæti á Alþingi á ný á morgun, miðvikudaginn 3. júní, eftir níu mánaða leyfi frá þingstörfum. Þá víkur Sigurður Örn Hilmarsson, varaþingmaður hennar, af þingi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Alþingis.
Áslaug Arna hefur dvalið í New York-borg síðastliðið ár þar sem hún lagði stund á MPA-nám (e. Master in Public Administration in Global Leadership) við Columbia-háskóla þar í borg. Sigurður Örn Hilmarsson varaþingmaður og lögmaður hljóp í skarðið fyrir Áslaugu á meðan en hún er nú útskrifuð úr náminu og flutt aftur til Íslands. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis verður þingi slitið föstudaginn 12. júní. Áslaug nær því að sitja í rúma viku á þingi áður en að sumarfrí þingmanna hefst. Áslaug tilkynnti flutningana skömmu eftir að hafa naumlega lotið í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í formannskosningu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í febrúar í fyrra. Aðeins nítján atkvæðum munaði á milli frambjóðendanna tveggja. Þingmaðurinn boðaði heimkomu sína eftir útskrift á samfélagsmiðlinum Instagram í apríl og bauð vinum og vandamönnum í fögnuð á Parliament-hótelinu við Austurvöll á fimmtudaginn í tilefni heimkomunnar.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Áslaug býður í partý Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er á leið aftur til Íslands eftir tæpa ársdvöl í Bandaríkjunum. Hún býður vinum og vandamönnum í léttan fögnuð við heimkomuna. 31. maí 2026 16:10 Mest lesið Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Erlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Fleiri fréttir Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Sjá meira
Áslaug býður í partý Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er á leið aftur til Íslands eftir tæpa ársdvöl í Bandaríkjunum. Hún býður vinum og vandamönnum í léttan fögnuð við heimkomuna. 31. maí 2026 16:10
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent