Áslaug Arna hættir á Alþingi Árni Sæberg skrifar 3. júní 2026 11:06 Nokkur tár féllu þegar Áslaug kvaddi. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur ákveðið að láta af þingmennsku. Hún hefur setið á þingi frá árinu 2016 og hefur gengt embætti dómsmálaráðherra, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þetta tilkynnti Áslaug Arna í kveðjuræðu undir liðnum störf Alþingis á þingfundi dagsins. „Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina,“ sagði hún meðal annars. Kveðjuræðu hennar má lesa í heild sinni neðst í fréttinni. Nýkomin heim úr námi Áslaug Arna hefur dvalið í New York-borg síðastliðið ár þar sem hún lagði stund á MPA-nám (e. Master in Public Administration in Global Leadership) við Columbia-háskóla þar í borg. Hún mætti aftur til starfa á Alþingi í dag. Sigurður Örn Hilmarsson varaþingmaður og lögmaður hljóp í skarðið fyrir Áslaugu á meðan en hún er nú útskrifuð úr náminu og flutt aftur til Íslands. Til stóð að hann viki af þingi fyrir Áslaugu Örnu en nú er ljóst að hann mun sitja sem fastast. Ein helsta vonarstjarna flokksins horfin á braut Áslaug Arna settist sem áður segir á þing árið 2016, þá aðeins 25 ára. Hún var um árabil talin ein helsta vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins og varð til að mynda dómsmálaráðherra aðeins 28 ára, næstyngst allra ráðherra og yngst kvenna. Hún gaf kost á sér til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn á landsfundi flokksins árið 2025 en laut í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, sitjandi formanni, með minnsta mun. Nú er þingferli Áslaugar Örnu lokið, í það minnsta í bili, og hún hefur ekkert gefið upp um það hvað tekur við. Hún hefur þó boðað til móttöku í anddyri Parliament Hotel við Austurvöll klukkan 17 á morgun. Hvíslað hefur verið um að hún muni tilkynna næstu skref á móttökunni. Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin heim. Á Alþingi þar sem reglur samfélagsins verða til. Þar sem við spyrjum hvernig við gerum betur fyrir fólkið í landinu. Tryggjum öryggi, frelsi og farsæld í landi sem er ríkt af tækifærum, auðlindum og mannauði. Það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til að taka þátt í því. Nýverið fóru fram glæsilegar sveitarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sterka sigra um allt land. Það gerðist ekki af tilviljun heldur vegna þess að hugmyndafræðin um frelsi, ábyrgð, framtak og trú á einstaklinginn á sterkt erindi. Sú hugmyndafræði höfðaði líka til mín þegar ég var yngri. Hún kveikti neista og hún kallaði mig til verka. Árið 2015, þá 24 ára gömul, fór ég í viðtal þar sem ég talaði um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. Ég sagði þá, orðrétt: „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“ Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár. Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga, sitja í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég hef gefið mig alla í verkefnin. Lært, þroskast og kynnst fólki um land allt. Ég hef séð styrkinn í íslensku þjóðinni. Séð hvað gerist þegar frelsi, ábyrgð og tækifæri fara saman. Og með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka á öðru: að reynslan sem ég hef öðlast hér inni getur líka nýst á öðrum vettvangi. Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi. Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina. Takk fyrir mig. Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Tímamót Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Sjá meira
Þetta tilkynnti Áslaug Arna í kveðjuræðu undir liðnum störf Alþingis á þingfundi dagsins. „Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina,“ sagði hún meðal annars. Kveðjuræðu hennar má lesa í heild sinni neðst í fréttinni. Nýkomin heim úr námi Áslaug Arna hefur dvalið í New York-borg síðastliðið ár þar sem hún lagði stund á MPA-nám (e. Master in Public Administration in Global Leadership) við Columbia-háskóla þar í borg. Hún mætti aftur til starfa á Alþingi í dag. Sigurður Örn Hilmarsson varaþingmaður og lögmaður hljóp í skarðið fyrir Áslaugu á meðan en hún er nú útskrifuð úr náminu og flutt aftur til Íslands. Til stóð að hann viki af þingi fyrir Áslaugu Örnu en nú er ljóst að hann mun sitja sem fastast. Ein helsta vonarstjarna flokksins horfin á braut Áslaug Arna settist sem áður segir á þing árið 2016, þá aðeins 25 ára. Hún var um árabil talin ein helsta vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins og varð til að mynda dómsmálaráðherra aðeins 28 ára, næstyngst allra ráðherra og yngst kvenna. Hún gaf kost á sér til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn á landsfundi flokksins árið 2025 en laut í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, sitjandi formanni, með minnsta mun. Nú er þingferli Áslaugar Örnu lokið, í það minnsta í bili, og hún hefur ekkert gefið upp um það hvað tekur við. Hún hefur þó boðað til móttöku í anddyri Parliament Hotel við Austurvöll klukkan 17 á morgun. Hvíslað hefur verið um að hún muni tilkynna næstu skref á móttökunni. Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin heim. Á Alþingi þar sem reglur samfélagsins verða til. Þar sem við spyrjum hvernig við gerum betur fyrir fólkið í landinu. Tryggjum öryggi, frelsi og farsæld í landi sem er ríkt af tækifærum, auðlindum og mannauði. Það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til að taka þátt í því. Nýverið fóru fram glæsilegar sveitarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sterka sigra um allt land. Það gerðist ekki af tilviljun heldur vegna þess að hugmyndafræðin um frelsi, ábyrgð, framtak og trú á einstaklinginn á sterkt erindi. Sú hugmyndafræði höfðaði líka til mín þegar ég var yngri. Hún kveikti neista og hún kallaði mig til verka. Árið 2015, þá 24 ára gömul, fór ég í viðtal þar sem ég talaði um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. Ég sagði þá, orðrétt: „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“ Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár. Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga, sitja í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég hef gefið mig alla í verkefnin. Lært, þroskast og kynnst fólki um land allt. Ég hef séð styrkinn í íslensku þjóðinni. Séð hvað gerist þegar frelsi, ábyrgð og tækifæri fara saman. Og með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka á öðru: að reynslan sem ég hef öðlast hér inni getur líka nýst á öðrum vettvangi. Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi. Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina. Takk fyrir mig.
Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin heim. Á Alþingi þar sem reglur samfélagsins verða til. Þar sem við spyrjum hvernig við gerum betur fyrir fólkið í landinu. Tryggjum öryggi, frelsi og farsæld í landi sem er ríkt af tækifærum, auðlindum og mannauði. Það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til að taka þátt í því. Nýverið fóru fram glæsilegar sveitarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sterka sigra um allt land. Það gerðist ekki af tilviljun heldur vegna þess að hugmyndafræðin um frelsi, ábyrgð, framtak og trú á einstaklinginn á sterkt erindi. Sú hugmyndafræði höfðaði líka til mín þegar ég var yngri. Hún kveikti neista og hún kallaði mig til verka. Árið 2015, þá 24 ára gömul, fór ég í viðtal þar sem ég talaði um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. Ég sagði þá, orðrétt: „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“ Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár. Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga, sitja í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég hef gefið mig alla í verkefnin. Lært, þroskast og kynnst fólki um land allt. Ég hef séð styrkinn í íslensku þjóðinni. Séð hvað gerist þegar frelsi, ábyrgð og tækifæri fara saman. Og með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka á öðru: að reynslan sem ég hef öðlast hér inni getur líka nýst á öðrum vettvangi. Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi. Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina. Takk fyrir mig.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Tímamót Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Sjá meira