
Dalvíkurbyggð

Átta Dalvíkingar grófu sig í snjóhús í hamfaraveðri
„Við áttuðum okkur á að við urðum að reyna að grafa okkur inn í snjóhús. En snjórinn var grjótharður. Við vorum með skóflu og ísaxir og byrjuðum að höggva og moka. Ef við hefðum ekki gert það hefðu einhverjir af okkur drepist þarna fljótlega. Þetta tók átta klukkutíma,“ segir Haukur Gunnarsson, björgunarsveitarmaður í áhrifaríku viðtali í nýjasta Útkallsþætti Óttars Sveinssonar og Heiðars Aðalbjörnssonar.

Segja ekki um neitt „tilfinningaklám“ að ræða
Tíu bæjar- og sveitarstjórar mótmæla lokun flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli og krefjast þess að hún verði opnuð strax auk þess að tré í Öskjuhlíð, sem skyggja á flugbrautina, verði felld. Þau segja að ekki sé um neitt „tilfinningaklám“ að ræða, líkt og Helga Vala Helgadóttir lögmaður sagði í Silfrinu á RÚV.

Reykjavík er höfuðborg okkar allra
Við undirrituð, bæjar- og sveitarstjórar á Íslandi, mótmælum öll lokun annarrar af tveimur flugbrautum Reykjavíkurflugvallar með tilheyrandi skerðingu á þjónustu og ógn við innanlandsflug sem þar af hlýst.

Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík
Eitt það allra skemmtilegasta sem heimilisfólkið á hjúkrunarheimilinu Dalbæ á Dalvík gerir er að taka þátt í söngstund einu sinni viku þar sem allir syngja með sínu nefi og njóta lífsins og samverunnar við hvert annað um leið.

Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki
Dalvíska plastfyrirtækið Rotovia hefur fest kaup á mexíkóska fyrirtækinu Ollin Plastics, sem sérhæfir sig í framleiðslu á hverfisteyptum afurðum.

Bjóða bændum þyrluflug í smalamennsku fyrir slikk
Þyrluflugfélagið HeliAir Iceland hefur boðist til að létta bændum við Eyjafjörð smalamennskuna þetta haustið. Bændum býðst þyrluflug upp á fjöll og lengst inn í dali Tröllaskaga fyrir tvöþúsund krónur túrinn á mann.

Styttur af Bakkabræðrum afhjúpaðar á Dalvík
Styttur af Bakkabræðrunum þeim Gísla, Eiríki og Helga voru afhjúpaðar í morgun á göngustíg ofan Dalvíkur af nemendum Dalvíkurskóla. Ástæðan er sú að bræðurnir voru frá bænum Bakka í Svarfaðardal en skemmtilegu sögurnar af þeim bræðrum þekkja flestir.

Gott veður fram að jólum en veturinn þungur eftir það
Haustið verður gott og veturinn fram að jólum en eftir það verður hann þungur. Þetta er niðurstaða nýjasta fundar veðurklúbbsins á Dalbæ á Dalvík.

97 ára og 81 árs dömur á ísrúnti á Dalvík
Þær eru yfir sig ánægðar með sig, 97 ára og 81 árs vinkonurnar á Dalbæ, hjúkrunarheimili á Dalvík þegar þær fara saman á ísrúnt á sérstöku hjóli þar sem þær sitja í vagni eins og prinsessur með hattana sína og sólgleraugun á nefinu.

Ferjubilun sé hvítþvottur hjá Hrísey Seafood
Forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni hafnar því algjörlega að samgöngur séu í lamasessi til og frá Hrísey. Verkefnastjóri Hríseyjar Seafood taldi lokun Matvælastofnunnar eiga rót sína að rekja til lélegra ferjusamgangna.

Lokun Hríseyjar seafood: Fiskur gleymdist þegar ferjan bilaði
Verkefnastjóri hjá Hrísey Seafood segir lokun Matvælastofnunar á fiskvinnslunni í síðustu viku eiga rót sína að rekja til samgangna til eyjunnar sem séu í lamasessi. Fiskvinnslan opnar aftur í dag eftir „gott samstarf“ við Mast.

Elsta skip Samherja kveður Dalvík og heldur til Spánar
Ísfisktogarinn Björgvin EA 311 lagði af stað frá Dalvík til Vigo á Spáni um miðjan dag í gær og kvöddu margir bæjarbúar þetta fengsæla skip og fylgdust með þegar landfestum var sleppt í síðasta sinn, heimahöfn Björgvins EA.

Alls ekki auðveld ákvörðun að selja Bjórböðin
Bjórböðin á Árskógssandi í Eyjafirði hafa verið auglýst til sölu. Eigandi Bjórbaðanna segir ákvörðunina ekki einfalda en reksturinn hafi verið afar erfiður í Covid auk þess sem vaxtastefna Seðlabankans hafi alls ekki hjálpað til.

Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla
Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu, en það er Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra sem höfðar málið.

Björguðu strönduðum ferðamönnum í Gróttu
Rétt fyrir hálf sjö í kvöld óskuðu tveir ferðamenn sem farið höfðu út í Gróttu eftir aðstoð við að komast aftur í land. Þau höfðu ekki fylgst með flóðinu og þeir urðu strandaglópar á eyjunni sem hafði ekki verið eyja fyrr um daginn.

Kennari sem sló barn fær milljónir
Hæstiréttur hefur dæmt Dalvíkurbyggð til þess að greiða konu tæpar ellefu milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Konan var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir veita þrettán ára stúlku kinnhest.

Björgunarsveit kölluð út vegna snjóflóðs við Dalvík
Snjóflóð féll í Dýjadal við Dalvík skömmu eftir hádegi. Björgunarsveit var kölluð út en ekkert bendir til þess að fólk hafi orðið undir flóði. Til stóð að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar en útkall hennar var afturkallað.

Tíu pósthúsum vítt og breitt um land lokað í sumar
Til stendur að loka tíu pósthúsum Póstsins í sumar. Um er að ræða fjögur pósthús á Austfjörðum, fjögur á Norðurlandi, eitt á Vesturlandi og eitt á Vestfjörðum. Sendingar verða í staðinn afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum.

Fleiri og fleiri bæjarhátíðir kveðja sjónarsviðið
Fleiri og fleiri stórar bæjar- og tónlistarhátíðir hafa kvatt sjónarsviðið síðustu misseri. Framkvæmdastjóri Lunga telur að álag á skipuleggjendur og takmarkað fjármagn spili þar stórt hlutverk.

Mátti svipta bræðurna að Brimnesi öllum nautgripum
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af öllum kröfum tveggja bænda, sem Matvælastofnun svipti vörslum allra 137 nautgripa þeirra árin 2021 og 2022.

Vegagerðin tekur við rekstri Sævars
Vegagerðin mun sjá um rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars frá og með 1. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.

Minnisvarði um Fiskidaginn mikla verði afhjúpaður á næsta ári
Sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar vill láta reisa minnisvarða um bæjarhátíðina Fiskidaginn mikla sem afhjúpaður yrði á næsta ári. Greint var frá því um síðustu helgi að ákveðið hefði verið að hátíðin hefði nú verið haldin í síðasta sinn.

Fiskidagurinn mikli heyrir sögunni til
Fiskidagurinn mikli, sem haldinn hefur verið frá árinu 2001 heyrir nú sögunni til.

Allt vitlaust þegar liðið komst áfram í undanúrslit á lokaspurningunni
Það var heldur betur háspenna lífshætta í Kviss á laugardagskvöldið þegar Fjölnir og Dalvík/Reynir mættust í 8-liða úrslitum.

Hugleikur og Karen giftu sig með sínum hætti
Grínistinn Hugleikur Dagsson og búningahönnuðurinn Karen Briem giftu sig í Tjarnarkirkju í Svarfaðardal í gær. Páll Óskar Hjálmtýsson stýrði athöfninni og gestir mættu í veisluna í stórkostlegum búningum enda hrekkjavakan á næsta leyti.

Samherji borgar ekki laun starfsfólks í kvennaverkfalli
Norðlenska fiskvinnslufyrirtækið Samherji hyggst ekki greiða konum og kvárum sem vinna hjá fyrirtækinu laun mæti þau ekki til vinnu næsta þriðjudag, þegar boðað hefur verið til kvennaverkfalls. Starfsfólki er þó frjálst að skreppa á 45 mínútna mótmælafund á Akureyri.

Stúlkurnar að norðan tóku gleði sína á ný á landsleiknum
Sérstakir heiðursgestir á landsleik Íslands og Wales í gær voru leikmenn 4. flokks stúlkna í KF/Dalvík en þær fengu skoðunarferð um völlinn og kynningu á undirbúningi landsliðsins fyrir leik.

Á höttunum eftir norðlensku blóði á Dalvík
Blóðbankabíllinn er mættur til Dalvíkur eftir óvenjulega dræma þátttöku í heimsókn gærdagsins á Húsavík. Fram undan eru sögulegar heimsóknir bílsins á Hvammstanga og Blönduós.

Ætla að tefla fram kvennaliði í fyrsta sinn í áraraðir: „Dalvískar stelpur sem hafa sýnt þessu mikinn áhuga“
Mikill uppgangur er í fótboltanum á Dalvík og hann einskorðast ekki bara við karlaflokkana. Á næsta tímabili stefna Dalvíkingar á að tefla fram liði í meistaraflokki kvenna í fyrsta sinn í áraraðir.

Dalvíkingar upp um tvær deildir á tveimur árum: „Það var heljarinnar partí“
Dalvík/Reynir tryggði sér sæti í Lengjudeild karla um síðustu helgi og hefur farið upp um tvær deildir á tveimur árum. Mikill uppgangur er á Dalvík enda hefur orðið bylting í aðstöðumálum félagsins.