Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta. Erlent 24.3.2026 19:08
Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Danskur listamaður hefur verið handtekinn eftir að hafa reynt að kaupa atkvæði á kjördag. Hann birti færslu þar sem hann bauð kjósendum þrjú hundruð þúsund króna málverk ef þeir greiddu atkvæði með Enhedslisten í þingkosningunum sem haldnar eru í dag. Erlent 24.3.2026 16:53
Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag og mjótt er á munum milli rauðu og bláu blokkarinnar samkvæmt könnunum. Grænlendingar kjósa einnig tvo fulltrúa inn á danska þingið og fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins þar í landi segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan. Innlent 24.3.2026 14:18
Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu „Þarna stend ég í fyrsta sinn í lífinu andspænis þessari tilfinningu að maður er dauðlegur. Að það er ekkert sjálfsagt í þessu lífi og það getur allt gerst á örskotsstund,“ segir leikarinn og lífsglaði listamaðurinn Jakob van Oosterhout. Jakob er fæddur árið 1997 og kom nýverið sem stormsveipur inn í íslenska leiklistasenu. Lífið 15. mars 2026 07:01
Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Siumut-flokkurinn er hættur þátttöku í landsstjórn Grænlands vegna ágreinings við samstarfsflokkanna sem tengast yfirvofandi þingkosningum í Danmörku. Vivian Motzfeldt sem mikið hefur mætt á sem utanríkisráðherra undanfarið hverfur þannig úr ríkisstjórnin. Erlent 13. mars 2026 14:42
Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Marianne Elisabeth Klinke, prófessor við Háskóla Íslands og forstöðumaður fræðasviðs í tauga- og taugaendurhæfingarsjúklinga á Landspítala, segir enn of lítið vitað um konur með Parkinson. Hún leitar kvenna með sjúkdóminn til að taka þátt í nýrri samnorrænni rannsókn á sjúkdómnum. Innlent 13. mars 2026 06:32
Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana René Redzepi, stofnandi danska veitingastaðarins Noma, er hættur hjá fyrirtækinu í kjölfar ásakana um að hann hafi beitt starfsmenn andlegu og líkamlegu ofbeldi. Noma þótti um skeið einn besti veitingastaður í heimi. Erlent 12. mars 2026 14:59
Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi Allt besta fimleikafólk Danmerkur er hér á landi þessa dagana til að heimsækja fimleikadeildir víða á landinu til að kenna og vera með vinnustofur. Hópurinn, sem er á heimsmælikvarða, hefur á síðustu sex mánuðum verið á ferðalagi um heiminn. Innlent 11. mars 2026 21:02
Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Bandarísku fyrirtækin American Express og Blackbird hafa hætt við að styrkja pop-up viðburði danska veitingastaðarins Noma í Los Angeles, sem hefjast í dag. Ástæðan eru ásakanir um ofbeldi á hendur yfirmatreiðslumeistaranum René Redzepi. Erlent 11. mars 2026 07:41
„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill hvatamaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið, var hér oft í veiði og þekkti umræðuna hér vel. Skoðun 7. mars 2026 22:15
Tengsl, tími og traust: Reynslusaga úr móttökubekk í Kaupmannahöfn Íslenskt skólakerfi stendur á mikilvægum tímamótum. Þótt ég sé búsett í Kaupmannahöfn og starfi þar, fylgist ég náið með umræðunni um menntamál á Íslandi, enda brenna sömu spurningar á okkur öllum sem sinnum fjölbreyttum nemendahópum. Skoðun 5. mars 2026 12:02
Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Stofnandi dansks öfgahægriflokks og málgagns hefur verið ákærður fyrir að birta nákvæmra lýsingar á því hvernig þrettán ára gamalli stúlku var nauðgað. Hann er ákærður fyrir velsæmisbrot gegn stúlkunni. Erlent 3. mars 2026 14:41
Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins. Viðskipti erlent 1. mars 2026 15:29
Mette boðar óvænt til kosninga Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur hefur óvænt boðað til þingkosninga í Danmörku þriðjudaginn 24. mars næstkomandi. Erlent 26. febrúar 2026 11:54
Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Rithöfundarnir Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru í hópi þeirra þrettán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Eva Rún er tilnefnd fyrir Eldri konur og Jón Kalman fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún en báðar eru þær gefnar út af Benedikti bókaútgáfu. Menning 26. febrúar 2026 11:28
Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Yfirvöld á Norðurlöndunum eru sögð kanna alvarlega hótun sem beinist að orkukerfi allra landanna. Ekki liggur fyrir í hverju hótunin felst en hún er talin stafa frá erlendu ríki. Erlent 26. febrúar 2026 11:16
Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Talsmaður rekstraraðila veitingahúsa segir svör borgarinnar vegna stöðumælasekta starfsfólks veitingahúsa við affermingar ekki standast fulla skoðun. Gert sé ráð fyrir undanþágum fyrir litlar sendingar í miðborgum nágrannalandanna. Talsmaðurinn kallar eftir samtali, auglýsir eftir stjórnmálamönnum og býður sig fram í „friðarviðræður“ vegna málsins. Innlent 25. febrúar 2026 06:47
Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Snorri Sigurðsson og Kolbrún Anna Örlygsdóttir bjuggu ásamt börnum sínum á Hvanneyri þegar þau ákváðu að taka sér ársleyfi fyrir 15 árum af því að Snorra langaði til Danmerkur í endurmenntun. Þar leið fjölskyldunni vel, Snorri endurmenntaði sig við Háskólann í Árósum, Kolbrún fékk vinnu og krakkarnir undu sér vel. Þegar árið var á enda vildi Snorri heim, en ekki Kolla. Þau héldu atkvæðagreiðslu við eldhúsborðið heima - sem Snorri tapaði. Lífið 24. febrúar 2026 11:44
Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Danska ríkisstjórnin ætlar að leggja jafnvirði hátt í þriggja hundraða milljarða íslenskra króna í að verja strandbyggðir landsins fyrir vaxandi ágangi sjávar. Aðgerðirnar eru hluti af aðlögunaráætlun stjórnvalda að loftslagsbreytingum. Erlent 23. febrúar 2026 13:59
Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu. Erlent 22. febrúar 2026 11:24
Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Nokkrar grænlenskar heimasíður urðu fyrir svokallaðri dreifðri álagsárás í gær, þeirra á meðal er heimasíða fjölmennasta sveitarfélags landsins. Erlent 21. febrúar 2026 08:45
Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá Sepp Piontek, fyrrum landsliðsþjálfari Danmerkur, er látinn. Undir hans stjórn frá 1979-90 umbreyttist danska landsliðið og fyrir Dönum er þetta ein mesta goðsögn í þeirra knattspyrnusögu. Fótbolti 19. febrúar 2026 11:02
Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. Erlent 18. febrúar 2026 06:48
Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsay Graham er sagður hafa hellt sér yfir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formann landsstjórnar Grænlands, á öryggisráðstefnu í Þýskalandi á laugardag. Erlent 17. febrúar 2026 22:16