Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. september 2026 07:42 Félagarnir Thomas Vinterberg, Mads Mikkelsen og Thomas Bo Larsen í Cannes vegna Jagten árið 2012. Andreas Rentz/Getty Images Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg setti vini sínum danska leikaranum Thomas Bo Larsen afarkosti og sagði honum að ef hann gæfi áfengisdrykkju ekki upp á bátinn gæti hann ekki unnið með honum aftur. Vinterberg opnar sig um þetta ásamt nánustu vinum og fjölskyldu danska leikarans sem meðal annars hefur komið fram í íslensku sjónvarpsþáttunum Ófærð.
Fjallað er um áfengisfíkn leikarans í nýjum sjónvarpsþætti í danska ríkisútvarpinu, en tekið fram að leikarinn hafi nú verið edrú í tólf ár. Þar er rætt við Thomas Vinterberg sem kynntist nafna sínum í leiklistarskóla árið 1992. Þeir hafa síðan unnið saman við þekktustu myndir Danmerkur, meðal annars kvikmyndirnar Jagten og Druk. Þá fór Bo Larsen með hlutverk í þriðju seríu af Ófærð 3 og ræddi um Íslandsdvöl sína við Fréttablaðið árið 2020. Vinterberg segir að hann hafi orðið að vinna með Bo Larsen þegar hann kynntist honum 1992. Síðan hafi tekið við mikil velgengni og vinir leikarans aldrei hugsað að hann ætti erfitt með sína áfengisneyslu. „Á þessum tíma sé ég bara mann sem lifir lífinu til fulls, ég sé enga misnotkun,“ segir Vinterberg í sjónvarpsþættinum. Síðan hafi komið upp atvik við tökur á Jagten árið 2012 þar sem Bo Larsen man ekki línurnar sínar á setti, auk þess sem vodkaflaska fansnt í fataskáp hans. Vinterberg segist lengi hafa óttast að tala við vin sinn um málið, hafi raunar ekki fengið sig til þess fyrr en Bo Larsen fór sjálfur í meðferð, svokallaða 12 spora meðferð AA-samtakanna. Eitt af skrefunum hafi snúist um að biðja vini og vandamenn afsökunar og segist Vinterberg þá hafa séð sér leik á borði. Hann segist hafa boðið honum út að borða og sett honum afarkosti. „Þetta er tækifærið mitt til að gera gagn fyrir Thomas. Ef hann fellur aftur núna, þá er það hræðilegt, og það er núna sem ég get talað við hann. Það er núna sem ég hef aðgang að honum. Svo þar lagði ég allt í þetta samtal.“ Stikla úr kvikmyndinni Druk sem Vinterberg leikstýrði og Bo Larsen lék í.
Danmörk Bíó og sjónvarp Fíkn Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sahara Ray látin Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira